Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 365

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 3. nóvember var haldinn 365. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 09:31. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Einar Sveinn Hálfdánarson, Björn Snær Atlason, Kristín Baldursdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir. Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram yfirlit IER, dags. í dag, yfir fundi milli funda, alls fjórir fundir (IER26090011, IER26090007, IER26020003, IER26100011). IER26100005

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á trúnaðarmerktu frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 og fimm ára áætlun 2027-2031, ásamt trúnaðarmerktri greinargerð fjármála- og áhættustýringarsviðs með frumvarpi að fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun 2027-2031 og trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða og B hluta fyrirtækja með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027. 

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26100015

  3. Lögð fram endurskoðunaráætlun innri endurskoðanda SORPU bs. árið 2026 og fram fer kynning. Jafnframt lagt fram undirritað ráðningarbréf PricewaterhouseCoopers (PwC) dags. 23. október 2026 um innri endurskoðun SORPU bs. til eins árs, ásamt óhæðisyfirlýsingu innri endurskoðenda, dags. 23. október 2026. 

    Samþykkt og vísað til stjórnar SORPU bs. 

    Magnús M. Vignisson, Ómar Gunnar Ómarsson, Jóhanna Guðmundsdóttir og Þórhallur Hákonarson taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26100016

  4. Lögð fram drög að endurskoðunaráætlun innri endurskoðanda Strætó bs. árið 2026 og fram fer kynning. Jafnframt lögð fram drög að ráðningarbréfi Deloitte um innri endurskoðun Strætó bs., ásamt undirritaðri óhæðisyfirlýsingu innri endurskoðenda, dags. 30. október 2026. 

    Samþykkt og vísað til stjórnar Strætó bs. 

    Sara Fönn Jóhannesdóttir, Sindri Björnsson og Jóhannes S. Rúnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26100017

  5. Lagt fram erindi Strætó bs. til endurskoðunarnefndar, dags. 29. október 2026, þar sem óskað er umsagnar nefndarinnar um ósk stjórnar að Deloitte haldi áfram sem innri endurskoðandi Strætó út starfstíma félagsins. Jafnframt er óskað eftir áliti nefndarinnar á því hvað þurfi að hafa í huga við slit Strætó í lok árs 2028. 

    Jóhannes S. Rúnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. IER26100017

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á trúnaðarmerktri endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings A hluta og samstæðu fyrir árið 2026. Jafnframt lögð fram undirrituð óhæðisyfirlýsing ytri endurskoðenda, dags. 3. nóvember 2026. 

    Davíð Arnar Einarsson og Bjarni Már Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26100019

  7. Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Innkaup og samningsstjórnun frá 2022 og lögð fram lokadrög eftirfylgniskýrslu dags. í dag, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. 

    Vísað til borgarráðs. 

    Skúli Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið. IER26020019

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um eftirfylgni endurskoðunarnefndar með ábendingum ytri endurskoðenda sem gerðar voru við endurskoðun ársreikninga ársins 2025. IER26100018

    Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd óskar eftir upplýsingum frá stjórnendum Reykjavíkurborgar og B hluta félaga um viðbrögð við ábendingum ytri endurskoðenda við endurskoðun ársreiknings ársins 2025 og óskar eftir því að svör berist nefndinni eigi síðar en 26. nóvember nk.

  9. Lagðar fram starfsskýrslur endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2025-2026 fyrir A hluta Reykjavíkurborgar og samstæðu, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaði hf., Malbikunarstöðina Höfða hf., Orkuveituna, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Strætó bs. og SORPU bs. IER26040004

    Frestað.

  10. Lögð fram að nýju fyrirspurn endurskoðunarnefndar, dags. 21. september 2026, um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. Jafnframt lagt fram að svar velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 16. október 2026.. IER26090009

    -  Kl. 13:00 víkur Sunna Jóhannsdóttir af fundi.

    Fylgigögn

  11. Fram fer umræða um samþykkt endurskoðunarnefndar sem síðast var samþykkt með breytingum í borgarstjórn 3. febrúar 2026. IER26090010

Fundi slitið kl. 13:05

Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason

Kristín Baldursdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 03.11.2026 - Prentvæn útgáfa