Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, þriðjudaginn 13. október var haldinn 363. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:02. Viðstödd voru Björn Snær Atlason, Kristín Baldursdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram afgreiðslubréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 30.09.2026 og 07.10.2026 varðandi kosningu formanns endurskoðunarnefndar kjörtímabilið 2026-2030 og tilnefningu fulltrúa Orkuveitunnar í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar fyrir sama tímabil. Hvoru tveggja var samþykkt á fundi borgarstjórnar þann 06.10.2026. IER26080004
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju drög að starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2026-2027 og trúnaðarmerktar ábendingar endurskoðunarnefndar um starfsáætlun dags. 02.10.2026. IER26080002
Frestað.- Kl. 10:47 tekur Einar S. Hálfdánarson sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lögð fram til kynningar starfsskýrsla Innri endurskoðunar og ráðgjafar fyrir starfsárið 2025-2026. IER26080001
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf innri endurskoðanda, dags. 09.10.2026, varðandi breytingu á innri endurskoðunaráætlun fyrir Malbikunarstöðina Höfða hf. og fram fer kynning. IER26100004
Samþykkt og vísað til stjórnar.Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Félagsleg heimaþjónusta frá 2021 og lögð fram lokadrög eftirfylgniskýrslu dags. í dag, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. IER26020025
Skúli Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar frá 2022 og lögð fram lokadrög eftirfylgniskýrslu dags. í dag, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. IER26020023
Skúli Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum síðari eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Grunnskólar Reykjavíkur; Úthlutun fjárhagsramma og rekstur frá 2019 og lögð fram lokadrög eftirfylgniskýrslu nr. 2, dags. í dag, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. IER26020022
Skúli Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 8. október 2026, varðandi Stjórnunarkerfi upplýsingatækni Orkuveitunnar: Fyrirspurn endurskoðunarnefndar vegna ábendingar 1A. IER26010017
Frestað. -
Lagt fram bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 8. október 2026, varðandi niðurstöðu yfirferðar vegna úttektarskýrslunnar Sjálfstætt starfandi tónlistarskólar. IER24020004
Frestað. -
Lagðar fram trúnaðarmerktar ábendingar endurskoðunarnefndar við samþykkt endurskoðunarnefndar, dags. 2. október 2026. IER26090010
Frestað. -
Lagt fram yfirlit IER, dags. í dag, yfir fundi milli funda, alls einn fundur (IER26020002). IER26100005
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:42
Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason
Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð enduskoðunarnefndar frá 13.10.2026