Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 21. september var haldinn 362. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:03. Viðstödd voru Einar S. Hálfdánarson, Björn Snær Atlason, Kristín Baldursdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um Orkuveitu Reykjavíkur. IER26090006
Snorri Hafsteinn Þorkelsson og Ásgeir Westergren taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer umræða um reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. IER26090009
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd óskar eftir upplýsingum frá velferðarsviði um umfang fjárhagsaðstoðar hjá Reykjavíkurborg frá og með árinu 2016. Jafnframt hvað varðar þjóðerni bótaþega, kyn og aldur og hversu lengi einstakir bótaþegar hafa þegið fjárhagsaðstoð og umfang þeirrar aðstoðar. Einnig hvert hlutfall erlendra bótaþega er í samanburði við fjölda viðkomandi þjóðernis hér á landi. Í framhaldinu mun endurskoðunarnefnd leggja mat á hvort þörf sé á að framkvæma úttekt á þessum málaflokki.
Fylgigögn
-
Niðurstöður eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Félagsleg heimaþjónusta frá 2021. IER26090009
Frestað.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Stjórnunarkerfi upplýsingatækni hjá Orkuveitunni frá 2023 og lögð fram trúnaðarmerkt lokadrög þriggja eftirfylgniskýrslna dags. í dag fyrir Orkuveituna, Orku Náttúrunnar og Veitur, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. IER26010017
Vísað til stjórna Orkuveitunnar, ON og Veitna.Stefán Viðar Grétarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttektarverkefninu Netöryggi Orkuveitunnar frá 2023 og lögð fram trúnaðarmerkt lokadrög eftirfylgniskýrslu dags. í dag, ásamt fylgibréfi innri endurskoðanda. IER26010023
Vísað til stjórnar Orkuveitunnar.Stefán Viðar Grétarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lögð fram lokadrög að verksamningi endurskoðunarnefndar og PwC um álitsgerð varðandi reikningsskil Félagsbústaða hf. og fram fer umræða. IER26090007
Samþykkt.
-
Lögð fram drög að starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir nýhafið starfsár 2026-2027 og fram fer umræða. IER26080002
Frestað.
-
Fram fer umræða um samþykkt endurskoðunarnefndar. IER26090010
Fundi slitið kl. 12:45
Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason
Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefnder frá 21.09.2026 - Prentvæn útgáfa