Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, fimmtudaginn 21. maí var haldinn 359. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 17:05. Viðstaddir voru: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á stjórnsýsluúttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar á skipulagsferli við Álfabakka 2A í Suður-Mjódd. IER25010004
Endurskoðunarnefnd samþykkir að vísa skýrslunni til borgarráðs.Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið og Pétur Ingi Haraldsson tekur sæti með rafrænum hætti.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á stjórnsýsluúttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar á skipulagsferli við Álfabakka 2A. Ljóst er að mikil vinna hefur verið lögð í gagnaöflun, úrvinnslu og skýrslugerð. Að mati nefndarinnar sýnir skýrslan fram á verulega ágalla í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Nefndin telur að ábendingar og tillögur Innri endurskoðunar og ráðgjafar séu afar gagnlegar og muni nýtast vel til úrbóta. Mikilvægt er að brugðist verði við framsettum úrbótatillögum Innri endurskoðunar og ráðgjafar.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 19:01
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 21.05.2026 - Prentvæn útgáfa