Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 357
Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, föstudaginn 17. apríl var haldinn 357. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 11:45. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason og Einar S. Hálfdánarson. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025, dags. 17. apríl 2026. Lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar vegna ársreiknings Reykjavíkurborgar 2025, dags. í dag. IER26010002
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir hjá fjármála- og áhættustýringarsviði taka sæti á fundinum undir þessum lið, ásamt Davíð Arnari Einarssyni og Bjarna Má Jóhannessyni frá Grant Thornton endurskoðun ehf.
- Klukkan 11:52 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
- Klukkan 12:03 tekur Sigrún Guðmundsdóttir sæti á fundinum.
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu Grant Thornton endurskoðunar ehf., dags. 22. apríl 2026. IER26010002
Davíð Arnar Einarsson og Bjarni Már Jóhannesson hjá Grant Thornton endurskoðun ehf. taka sæti á fundinum undir þessum lið, ásamt Halldóru Káradóttur, Sigurrós Ástu Sigurðardóttur, Jónasi Skúlasyni og Fjólu Þorgerði Hreinsdóttur frá fjármála- og áhættustýringarsviði.
-
Skipulagsferli Álfabakka 2A - Staða úttektar IER - IER25010004
-
Fram fer umræða um sjálfsmat endurskoðunarnefndar 2026. IER26040001
-
Fram fer umræða um viðhorfskönnun endurskoðunarnefndar 2026. IER26040002
Fundi slitið kl. 13:22
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar frá 17. apríl 2026