Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 356
Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, fimmtudaginn 9. apríl var haldinn 356. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 11:18. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025, dags. 7. apríl 2026, ásamt trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða og sjóða A hluta, trúnaðarmerktri greinargerð B hluta félaga og trúnaðarmerktri skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs. IER26010002
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Samþykkt endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að nefndin hafi eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila og eftirlit með ytri og innri endurskoðun og fari auk þess yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Nefndin hefur í samræmi við það fengið kynningu fjármála- og áhættustýringarsviðs á drögum að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 ásamt fylgigögnum sem verður lagður fram á fundi borgarráðs þann 22. apríl nk. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu á grundvelli ofangreinds að ekkert bendi til annars en að ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 teljist fullgerður og tilbúinn til endurskoðunar í samræmi við 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. -
Gerð grein fyrir aðkomu fulltrúa í endurskoðunarnefnd að B hluta félögum og öðrum fundum frá síðasta fundi endurskoðunarnefndar:
- Mánaðarlegur fundur með formanni borgarráðs og formanni endurskoðunarnefndar dags. 30. mars 2026. IER26020003
Fundi slitið kl. 12:38
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 9.4.2026 - Prentvæn útgáfa