Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 355
Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 30. mars var haldinn 355. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 11:06. Viðstödd voru Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. fyrir árið 2025, ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu félagsins sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir stjórn. IER26010002
Theodór Sigurbergsson og Sif Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið og Birkir Hrafn Jóakimsson og Hafdís Ósk Guðlaugsdóttir taka sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Frestað.
-
Lögð fram til kynningar trúnaðarmerkt drög að innri endurskoðunarskýrslu Strætó bs. fyrir árið 2025, dags. 30. mars 2026. IER25100007
Samþykkt að vísa skýrslunni til stjórnar Strætó bs.Sara Fönn Jóhannesdóttir, Jóna Kristín Benediktsdóttir og Lovísa Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Við höfum fengið kynningu á niðurstöðum innri endurskoðunar Strætó bs. vegna ársins 2025. Að okkar mati er skýrslan vel unnin og úttekt í samræmi við samþykkta verkefnisáætlun. Endurskoðunarnefnd samþykkir að vísa skýrslunni til stjórnar Strætó bs.
-
Lögð fram að nýju beiðni Strætó bs., dags 23. desember 2025, ásamt fyrirspurn endurskoðunarnefndar til Grant Thornton, dags. 26. janúar 2026, sbr. 5. liður fundargerðar endurskoðunarnefndar s.d., um aukaverk ytri endurskoðenda varðandi mat á eignum Strætó bs. Jafnframt lagt fram svarbréf Grant Thornton, dags. 18. mars 2026.
Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd samþykkir að Grant Thornton aðstoði Strætó bs. við mat á eignum félagsins við uppskiptingu og yfirfærslu til nýs félags, Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., enda ógnar það ekki óhæði þeirra sem ytri endurskoðenda Strætó bs. að þeirra mati.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um ráðningarferli innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar og lögð fram umsögn endurskoðunarnefndar, dags. 23. mars 2026, varðandi skýrslu ráðgefandi hæfnisnefndar um umsækjendur um starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. IER25030010
Lögð fram svohljóðandi bókun Einars S. Hálfdánarsonar:
Ég tel ekki við hæfi að taka þátt í að veita efnislega umsögn sem er hluti af ferli sem stenst ekki viðurkennd viðmið um góða stjórnsýsluhætti. Þess vegna get ég tekið undir með öðrum nefndarmönnum í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar og geri ekki efnislegar athugasemdir við niðurstöður ráðgefandi hæfnisnefndar um umsækjendur um starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Ráðningarferlið við ráðningu í starf innri endurskoðanda mun veikja Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar (IER) þar eð stærsta dótturfyrirtæki borgarinnar verður þar með m.a. gert ókleift að nýta sér þjónustu IER. Hvergi nokkurs staðar í víðri veröld nema hjá Reykjavíkurborg er staða innri endurskoðanda skilgreind sem ein af æðstu stjórnunarstöðum né framkvæmdastjóra falið að stýra ráðningu hans eða brottvikningu. Enda stangast það á grundvallarreglur um sjálfstæði innri endurskoðanda. Ef Reykjavíkurborg felur endurskoðunarnefnd sinni að aðhafast eitthvað það sem er í andstöðu við sjálfstætt eftirlitshlutverk nefndarinnar verður nefndin því að hafna því að verða við slíku erindi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:56
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 30.3.2026 - Prentvæn útgáfa