Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 2. mars var haldinn 352. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:05. Viðstödd voru Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir, Sunna Jóhannsdóttir og Einar S. Hálfdánarson.
Fundarritari var Ingunn Ólafsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að ársreikningi samstæðu Orkuveitunnar og skýrslu stjórnar fyrir árið 2025 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu samstæðunnar sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir stjórn. IER26010002
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Eiríkur Hjálmarsson, Bryndís María Leifsdóttir, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Gréta Guðnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Davíð Arnari Einarssyni, Sturlu Jónssyni og Bjarna Má Jóhannessyni.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Orkuveitunnar, skýrslu stjórnar og endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2025. Endurskoðunarnefnd mun skila umsögn til stjórnar Orkuveitunnar.
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum niðurstöðum síðari eftirfylgniúttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á viðhaldsstjórnun Hellisheiðarvirkjunar, dags. í dag. IER25060005
Samþykkt og vísað til stjórnar ON.Ingunn Ólafsdóttir og Guðjón Hlynur Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að innri endurskoðunarskýrslu PwC fyrir SORPU bs. dags. mars 2026. IER25100006
Samþykkt að vísa skýrslunni til stjórnar SORPU bs.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á úttekt PwC. Að mati nefndarinnar vekur athygli að margar ábendingar eru enn í vinnslu. Mikilvægt er að brugðist sé við ábendingunum sem fyrst og að þeim verði fylgt vel eftir. Vakin er athygli á ítrekaðri athugasemd um stjórnskipulag SORPU bs. Þar er bent á óvissu um umboð stjórnar sem og flækjustig vegna eigendavettvangs og stefnuráðs, en hlutverk þess virðist vera óskýrt. Endurskoðunarnefnd samþykkir að vísa skýrslunni til stjórnar SORPU bs.
Magnús Mar Vignisson, Ómar Ómarsson, Þórhallur Hákonarson og Jóhanna Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum niðurstöðum úttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á netöryggi hjá Félagsbústöðum, dags. í dag. IER25020024
Samþykkt og vísað til stjórnar Félagsbústaða.Ingunn Ólafsdóttir og Stefán Viðar Grétarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer umræða um fundi milli funda:
- Fundur haldinn þann 26. febrúar 2026 í Ráðhúsi Reykjavíkur með formanni borgarráðs, borgarritara og borgarlögmanni varðandi ráðningarferli innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. IER25030010
Fundi slitið kl. 12:00
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 02.03.2026 - Prentvæn útgáfa