Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, fimmtudaginn 26. febrúar var haldinn 351. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 13:33. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Páll Grétar Steingrímsson og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2025 fyrir Carbfix hf. IER26010002
Edda Sif Aradóttir, Helga Sigríður Böðvarsdóttir, Gísli Björn Björnsson, Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bryndís María Leifsdóttir, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð A. Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
- Klukkan 14:14 víkur Páll Grétar Steingrímsson af fundi.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi. Á fundinum komu fram ábendingar varðandi reikninginn sem brugðist verður við áður en reikningurinn verður lagður til samþykktar fyrir stjórn félagsins. Að gefnum þeim breytingum telur nefndin að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Carbfix.
Fundi slitið kl. 14:24
Lárus Finnbogason Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 26.2.2026 - Prentvæn útgáfa