Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 350

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, mánudaginn 23. febrúar var haldinn 350. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:03. Viðstödd voru Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir og Páll Grétar Steingrímsson. Einar S. Hálfdánarson og Sunna Jóhannsdóttir boðuðu forföll. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á stöðu uppgjörsvinnu hjá fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar. IER26020013

    Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  2. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2025 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Veitur ohf. IER26010002
    Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Veitna.

    Sólrún Kristjánsdóttir, Ólafía Sigurrós Bjarkadóttir, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir, Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bjarni Már Jóhannesson, Davíð A. Einarsson og Sif Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Veitna ohf.

  3. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2025 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Orku náttúrunnar ohf. og ON Power ohf. IER26010002
    Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn endurskoðunarnefndar til stjórna félaganna.

    Árni Hrannar Haraldsson, Einar Ólafsson, Gréta Guðnadóttir, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð A. Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn ON og ON Power.

  4. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2025 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Ljósleiðarann ehf. IER26010002
    Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Ljósleiðarans.

    Þuríður Björg Guðnadóttir, Valdimar Karl Sigurðsson, Gyða Erludóttir Einarsdóttir, Sigurjón Oddsson, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð A. Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Ljósleiðarans ehf.

    -    Kl. 12:50 víkur Ingunn Ólafsdóttir af fundi.

  5. Fram fer umræða um ráðningarferli innri endurskoðanda. IER25030010

  6. Fram fer umræða um fundi milli funda:
    i.    Stjórnarfundur SHS 20. febrúar 2026 þar sem fylgt var eftir umsögn endurskoðunarnefndar um ársreikning félagsins 2025. IER26010002
    ii.    Stjórnarfundur SHS 20. febrúar 2026 þar sem kynnt var starfsskýrsla endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2024-2025. IER25080003

     

Fundi slitið kl. 13:04

Lárus Finnbogason Sigrún Guðmundsdóttir

Páll Grétar Steingrímsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 23.02.2026