Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 16. febrúar var haldinn 348. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:06. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á ársreikningi 2025 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. IER26010002
Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.Birgir Finnsson, Ástríður Þórðardóttir, Sif Jónsdóttir og Rakel Ingvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
-
Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir tímabilið 2026-2027, dags. 16.02.2026. IER25120006
Ingunn Ólafsdóttir og Guðjón Hlynur Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt og vísað til stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum niðurstöðum eftirfylgniúttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar hjá Veitum, Vöktun á hreinu vatni og hreinum ströndum, eftirfylgni 2, dags. 16.02.2026. IER25060006.
Ingunn Ólafsdóttir og Guðjón Hlynur Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Klukkan 11:29 víkur Sunna Jóhannsdóttir af fundi.
-
Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun A hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 2026-2028. IER25110001
Ingunn Ólafsdóttir og Guðjón Hlynur Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt og vísað til borgarráðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju afgreiðslubréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. febrúar 2026, um breytingu á samþykkt endurskoðunarnefndar sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar þann 3. febrúar sl. Fram fer umræða. IER25030005
Frestað.
Fundi slitið kl. 13:45
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 16.2.2026 - Prentvæn útgáfa