Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 347
Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, þriðjudaginn 10. febrúar var haldinn 347. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir boðaði forföll. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á stöðu endurskoðunar Grant Thornton vegna ársreiknings Reykjavíkurborgar og samstæðu 2025. IER26010002.
Davíð A. Einarsson og Bjarni M. Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lögð fram samantekt yfir reikninga Grant Thornton vegna ytri endurskoðunar 2025. IER26020001.
Davíð A. Einarsson og Bjarni M. Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Klukkan 11:03 víkur Ingunn Ólafsdóttir af fundi.
Fylgigögn
-
Lagt fram afgreiðslubréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. febrúar 2026, um breytingu á samþykkt endurskoðunarnefndar sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar þann 3. febrúar sl. Fram fer umræða. IER25030005
Frestað.
- Klukkan 11:20 tekur Ingunn Ólafsdóttir aftur sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21. janúar 2026, um reikningsskil Reykjavíkurborgar. IER26010022.
Fylgigögn
-
Lögð fram skýrsla verkefnahóps um sjálfbærni og rekstrarhæfni Félagsbústaða, dags. október 2025. IER26010019
Magnús Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram eftirfarandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd óskaði eftir skýrslu verkefnahóps um sjálfbærni í rekstri Félagsbústaða: „Frá skuldsettum vexti til sjálfbærni“ sem hér er lögð fram. Nefndin tekur undir með Innri endurskoðun og ráðgjöf að skýrslan varpi ljósi á mikilvæga þætti er varða framtíðarrekstur félagsins. Nefndin er sammála þeim ábendingum er fram komu í kynningu á rýni Innri endurskoðunar og ráðgjafar þess efnis að tilefni kunni að vera til ítarlegri greiningar á skuldaþoli og sjálfbærni Félagsbústaða, vaxtanæmi og viðhaldsþörf, m.a. í tengslum við niðurgreiðslutíma lána. Einnig raunhæfi áætlaðs ávinnings af þeim úrbótatillögum er fram koma í skýrslunni. Þá telur nefndin rétt að óska eftir nánari sviðsmyndagreiningu á áhrifum fjölgunar kaupréttaríbúða og hagræðingaraðgerða á sjóðstreymi félagsins, auk áhættugreiningar er lýtur að mögulegri stofnun uppbyggingarfélags.
Nefndin leggur áherslu á að framangreind atriði verði tekin til frekari skoðunar áður en teknar verða ákvarðanir um umfangsmiklar kerfis- eða rekstrarbreytingar á starfsemi Félagsbústaða.- Klukkan 12:18 víkur Einar S. Hálfdánarson af fundi.
Fylgigögn
-
Lagðar fram upplýsingar frá Deloitte um framgang innri endurskoðunar Strætó bs. IER25100007
Fundi slitið kl. 12:22
Lárus Finnbogason Sigrún Guðmundsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 10.02.2026