Endurskoðunarnefnd
Ár 2025, mánudaginn 28. apríl var haldinn 327. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason og Einar S. Hálfdánarson. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 og trúnaðarmerktum drögum að skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs við framlagningu ársreiknings Reykjavíkurborgar 2024, dags. 25. apríl 2025. Lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar vegna ársreiknings Reykjavíkurborgar 2024, dags. í dag. IER25010013
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir hjá fjármála- og áhættustýringarsviði taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Sturlu Jónssyni, Davíð Arnari Einarssyni og Bjarna Má Jóhannessyni frá Grant Thornton endurskoðun ehf.
- Kl. 10:13 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
- Kl. 10:27 tekur Sigrún Guðmundsdóttir sæti á fundinum.
Umsögn endurskoðunarnefndar samþykkt.
Vísað til borgarráðs. -
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu Grant Thornton endurskoðunar ehf., dags. í dag., auk þess sem lagt er fram erindi Grant Thornton til Reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga, dags. 20.01.2025, og svarbréf nefndarinnar, dags. 11.04.2025. Jafnframt lögð fram drög að áritun óháðra endurskoðenda til borgarstjórnar Reykjavíkur 2024. IER25010013
Sturla Jónsson, Davíð Arnar Einarsson og Bjarni Már Jóhannesson hjá Grant Thornton endurskoðun ehf. taka sæti á fundinum undir þessum lið, ásamt Halldóru Káradóttur, Sigurrósu Ástu Sigurðardóttur, Jónasi Skúlasyni og Fjólu Þorgerði Hreinsdóttur frá fjármála- og áhættustýringarsviði.
-
Önnur mál.
Gerð grein fyrir aðkomu fulltrúa í endurskoðunarnefnd að fundum hjá A og B hluta frá síðasta fundi endurskoðunarnefndar:
o Borgarráðsfundur dags. 10. apríl 2025 vegna ársreiknings og endurskoðunar. IER25010013
Fundi slitið kl. 11:20
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar frá 28. apríl 2025