Endurskoðunarnefnd
Ár 2025, mánudaginn 7. apríl var haldinn 326. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024, dags. 4. apríl 2025, ásamt trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða og sjóða A hluta, trúnaðarmerktri greinargerð B hluta félaga og trúnaðarmerktri skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs. IER25010013
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:12 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Samþykkt endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að nefndin hafi eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila og eftirlit með ytri og innri endurskoðun og fari auk þess yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Nefndin hefur í samræmi við það fengið kynningu fjármála- og áhættustýringarsviðs á drögum að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 ásamt fylgigögnum sem verður lagður fram á fundi borgarráðs þann 10. apríl nk. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu á grundvelli ofangreinds að ekkert bendi til annars en að ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 teljist fullgerður og tilbúinn til endurskoðunar í samræmi við 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
-
Lagt fram minnisblað sjálfbærnistjóra Orkuveitunnar, dags. 22. mars 2025, varðandi sjálfbærnireikningsskil Orkuveitunnar 2024. IER25040004
-
Fram fer umræða um breytingar á samþykkt fyrir Innri endurskoðun og ráðgjöf og innri endurskoðanda sem samþykkt var af borgarstjórn 15.06.2021. IER25030009
-
Önnur mál.
Gerð grein fyrir aðkomu fulltrúa í endurskoðunarnefnd að B hluta félögum frá síðasta fundi endurskoðunarnefndar:
o Stjórnarfundur Malbikunarstöðvarinnar Höfða dags. 4. apríl 2025 vegna ársreiknings og endurskoðunar. IER25010013
Fundi slitið kl. 11:37
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar frá 7. apríl 2025