Endurskoðunarnefnd
Ár 2024, mánudaginn 16. desember var haldinn 315. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:07. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Jafnframt tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram orðsending Innri endurskoðunar og ráðgjafar varðandi viðbrögð A hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar vegna eftirfylgni endurskoðunarnefndar með ábendingum ytri endurskoðenda. IER24100011
Kristín Henley Vilhjálmsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun Faxaflóahafna sf. fyrir tímabilið 2025-2026. IER24030030
Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt og vísað til hafnarstjórnar.
-
Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. fyrir tímabilið 2025-2026. IER24100004
Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað.
-
Lögð fram skýrsla regluvarðar Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. febrúar 2023 – 31. janúar 2024. IER24060004
-
Lagt fram svar mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar dags. 02.12.2024 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar dags. 02.09.2024 um veikindahlutfall starfsfólks Reykjavíkurborgar á tímabilinu 2021-2024. IER24080015
-
Fram fer umræða um starfsskýrslur endurskoðunarnefndar 2023-2024. IER24080012
Frestað.
Fundi slitið kl. 12:17
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 16.12.2024