Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 297

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2024, mánudaginn 11. mars var haldinn 297. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:
 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2023 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Félagsbústaði hf. IER240200020

    Sturla Jónsson, Gunnar Pétur Garðarsson, Sigrún Árnadóttir og Kristinn Karel Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    -    Klukkan 09:08 tekur Einar S Hálfdánarson sæti á fundinum með rafrænum hætti. 

    -    Klukkan 09:15 víkur Sunna Jóhannsdóttir af fundi

    -    Klukkan 09:58 víkur Ingunn Ólafsdóttir af fundi

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Félagsbústaða hf. fyrir árið 2023. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Félagsbústaða hf.  

    Formanni falið að ganga frá umsögn til stjórnar. 
     

Fundi slitið kl. 10:20

Lárus Finnbogason Sigrún Guðmundsdóttir

Einar S. Hálfdánarson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 11. mars 2024