Endurskoðunarnefnd
Ár 2023, mánudaginn 27. nóvember var haldinn 289. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1 í Skála og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir, Einar S Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Hallur Símonarson
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að samanteknum árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar 2023 – 30. september 2023 ásamt greinargerð, greinargerð fagsviða með árshlutareikningi og skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningi. IER23050024
Halldóra Káradóttir og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgniúttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá móðurfélagi Orkuveitu Reykjavíkur. IER23020027
Ingunn Ólafsdóttir og Stefán Viðar Grétarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgniúttektar á netöryggi hjá Orkuveitu Reykjavíkur. IER23020027
Ingunn Ólafsdóttir og Stefán Viðar Grétarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer umræða um endurskoðun á samþykkt og starfsreglum endurskoðunarnefndar. IER23060006
Edda Andrésdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2023. IER23110001
Sturla Jónsson, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð Einar Arnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings Strætó bs. fyrir árið 2023. IER23110001
Sturla Jónsson, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð Einar Arnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2023. IER23110001
Sturla Jónsson, Bjarni Már Jóhannesson og Davíð Einar Arnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundi slitið klukkan 16:00
Lárus Finnbogason Sunna Jóhannsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir Einar S. Hálfdánarson
PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 27.11.2023 - prentvæn útgáfa