Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 276

Endurskoðunarnefnd

Ár 2023, mánudaginn 19. maí var haldinn 276. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 15:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fundarritari var Hallur Símonarson

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á árshlutareikningi Orkuveitu Reykjavíkur sef. fyrir tímabilið 1. janúar 2023 – 31. mars 2023 IER23050024
    Benedikt K Magnússon, Bryndís María Leifsdóttir, Arna Vigdís Jónsdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 
    -    Kl. 15:15 tekur Einar S Hálfdánarson sæti á fundinum
    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar
    Þakkað er fyrir kynningu á árshlutareikningi Orkuveitu Reykjavíkur sef. Endurskoðunarnefnd telur reikninginn tilbúinn til afgreiðslu í stjórn OR.
     

  2. Lagt fram afgreiðslubréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 17. þ.m. með afgreiðslu á tillögu endurskoðunarnefndar til borgarstjórnar sem tekin var til afgreiðslu og samþykkt á fundi borgarstjórnar 16. þ.m. Jafnframt lögð fram drög að bréfum endurskoðunarnefndar til eftirfarandi B hluta fyrirtækja með tillögu um val á endurskoðunarfyrirtæki fyrir samstæðu Reykjavíkurborgar dags. 17. þ.m. IER22110079
    -    Faxaflóahafnir sf.
    -    Félagsbústaðir hf.
    -    Malbikunarstöðin Höfði hf.
    -    Orkuveita Reykjavíkur sef.
    -    Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
    -    SORPA bs.
    -    Strætó bs.
    -    Þjóðarleikvangur ehf.

    Samþykkt
    Vísað til stjórna ofangreindra fyrirtækja
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 16:05

Lárus Finnbogason Sigrún Guðmundsdóttir

Einar S. Hálfdánarson