Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 271

Endurskoðunarnefnd

Ár 2023, mánudaginn 3. apríl var haldinn 271. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 10:14. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason og Sigrún Guðmundsdóttir. Einar S. Hálfdánarson og Sunna Jóhannsdóttir boðuðu forföll.
Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 ásamt trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða  og sjóða A-hluta, trúnaðarmerktri greinargerð B-hluta fyrirtækja og trúnaðarmerktri skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs. IER22110076

    Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason hjá fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Sturlu Jónssyni hjá Grant Thornton endurskoðun sem tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Samþykkt endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að nefndin hafi eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila og eftirlit með ytri og innri endurskoðun og fari auk þess yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Nefndin hefur í samræmi við það fengið kynningu fjármála- og áhættustýringarsviðs á drögum að ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 ásamt fylgigögnum. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu á grundvelli ofangreinds að ekkert bendi til annars en að ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022, sem verður lagður fram á fundi borgarráðs þann 13. apríl nk., teljist fullgerður og tilbúinn til endurskoðunar í samræmi við 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fundi slitið kl. 11:43

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 3. apríl 2023