Endurskoðunarnefnd
ENDURSKOÐUNARNEFND
Ár 2023, mánudaginn 20. mars var haldinn 269. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 13:07. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir og Einar S. Hálfdánarson.
Fundarritari var Hallur Símonarson.
Þetta gerðist:
1. Fram fer umræða um reikningsskil A og B hluta Reykjavíkurborgar sbr. reglugerð 1212/2015. IER22110076
- Kl. 13:10 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum
Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Halldóra Káradóttir og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. Gísli Hlíðberg Guðmundsson tekur sæti á fundinum með fjarfundabúnaði undir þessum lið.
- Kl. 13:50 víkur Sigrún Guðmundsdóttir af fundinum
2. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2022 ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Félagsbústaði hf.. og drögum að umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar félagsins dags. í dag. IER22110076
Sigrún Árnadóttir og Kristinn Karel Jóhannsson hjá Félagsbústöðum taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Sturlu Jónssyni og Theodóri Sigurbergssyni hjá Grant Thornton endurskoðun.
Samþykkt að fela formanni að ganga frá umsögn endurskoðunarnefndar um ársreikning 2022 til stjórnar Félagsbústaða í samræmi við umræður á fundinum.
3. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2022 ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Malbikunarstöðina Höfða hf. og drögum að umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar félagsins dags. í dag. IER22110076
Ásberg K Ingólfsson hjá Malbikunarstöðinni Höfða tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Sturlu Jónssyni og Theodóri Sigurbergssyni hjá Grant Thornton endurskoðun.
Frestað
Fundi slitið kl. 15:29
Lárus Finnbogason
Einar S. Hálfdánarson Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 20.03.2023 - prentvæn útgáfa