Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 266

Endurskoðunarnefnd

Ár 2023, föstudaginn 3. mars var haldinn 266. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík, og hófst kl. 10:36. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason og Sunna Jóhannsdóttir.

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á úttektum lnnri endurskoðunar og ráðgjafar á fjárfestingarferli innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur sef. IER22110024
    Benedikt Kjartan Magnússon, Brynja Kolbrún Pétursdóttir og Arna Vigdís Jónsdóttir frá OR taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Guðjóni Hlyni Guðmundssyni, lngunni Ólafsdóttur og Viðari Kárasyni hjá IER.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á úttektum lnnri endurskoðunar og ráðgjafar og telur að þær muni nýtast stjórnendum Veitna, Carbfix, ON, Ljósleiðarans og OR vel við innleiðingu nýs verklags við ákvarðanatöku og áætlunargerð við fjárfestingar. Endurskoðunarnefnd telur mikilvægt að eftirfylgni með þessum úttektum gangi tímanlega fyrir sig og eigi síðar en á næsta ári eins og ráð er fyrir gert í innri endurskoðunaráætlun samstæðu OR.
     

  2. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2022 ásamt drögum endurskoðunarskýrslu fyrir samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur sef. IER22110076

    Benedikt Kjartan Magnússon, Bryndís María Leifsdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir frá OR taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Davíð Arnari Einarssyni og Theodór Sigurbergssyni hjá Grant Thornton endurskoðun.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar: 

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd mun skila umsögn nefndarinnar til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
     

  3. Lagt fram bréf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar dags. 1. þ.m. með ósk um staðfestingu á staðgengli innri endurskoðanda í samræmi við samþykkt lnnri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar og innri endurskoðanda. IER23030004

    Samþykkt.
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:21

Lárus Finnbogason Sunna Jóhannsdóttir