Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 264

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2023, mánudaginn 20. febrúar var haldinn 264. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 9:08. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild, Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einar S Hálfdánarson boðaði forföll.

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning drögum á ársreikningi 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Veitur ohf. IER22110076

Davíð Arnar Einarsson, Sturla Jónsson, Bryndís María Leifsdóttir, Benedikt Kjartan Magnússon, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Þorgeir Hafsteinn Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Veitna. 

2.    Fram fer kynning á ársreikningi 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Ljósleiðarann hf. IER22110076

Davíð Arnar Einarsson, Sturla Jónsson, Erling Freyr Guðmundsson, Bragi Þór Bjarnason, Bryndís María Leifsdóttir, Benedikt Kjartan Magnússon, og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn Ljósleiðarans.

3.    Fram fer kynning á ársreikningi 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Orku náttúrunnar ohf. IER22110076

Frestað.

Davíð Arnar Einarsson, Sturla Jónsson, Bryndís María Leifsdóttir, Benedikt Kjartan Magnússon, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Einar Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

4.    Fram fer kynning á ársreikningi 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir ON Power hf.  IER22110076

Frestað.

Davíð Arnar Einarsson, Sturla Jónsson, Bryndís María Leifsdóttir, Benedikt Kjartan Magnússon, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Einar Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

Fundi slitið kl. 11:23

Lárus Finnbogason

Sunna Jóhannsdóttir    Sigrún Guðmundsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 20.2.2023 - Prentvæn útgáfa