Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 262

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2023, mánudaginn 6. febrúar var haldinn 262. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 13:07. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir.

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Kynnt drög að ársreikningi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins ásamt drögum endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings 2022. IER22110076

Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að gera umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 

Birgir Finnsson, Ástríður Þórðardóttir og Sturla Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. Gunnar Pétur Garðarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

2.    Fram fer umræða um stöðu uppgjörsvinnu vegna ársreiknings Reykjavíkurborgar 2022. IER22110076

Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Gísli Hlíðberg Guðmundsson og Sturla Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði. 

3.    Fram fer umræða um stöðu endurskoðunar vegna ársreiknings Reykjavíkurborgar 2022 og fyrstu skoðun ytri endurskoðenda (e. early warnings). IER22110076

Sturla Jónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið

4.    Lagt fram bréf skrifstofustjóra upplýsingatækniþjónustu dags. í dag um viðbrögð skrifstofu upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar (UTR) við úttekt innri endurskoðunar á netöryggi. IER22110041

Óskar J Sandholt, Ólafur Óskar Egilsson, Jón Kristinn Ragnarsson, Arnar Freyr Guðmundsson og Ingunn Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar

Endurskoðunarnefnd þakkar upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar fyrir svör við stöðu úrbóta vegna útistandandi ábendinga í úttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar og óskar eftir umsögn innri endurskoðanda um málsmeðferðartillögu UTR.

5.    Lögð fram ódags. skýrsla regluvarðar Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. febrúar 2022 til 31. janúar 2023. IER23020004

Frestað

Ólöf Marín Úlfarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

6.    Lögð fram orðsending Innri endurskoðunar og ráðgjafar um viðbrögð við ábendingum ytri endurskoðenda dags. 3. þ.m. IER22110078

Frestað

7.    Fram fer umræða um útboð ytri endurskoðunarþjónustu IER22110079

8.    Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttekt á uppgjörsferli Reykjavíkurborgar IER22110109

Elfa Ingibergsdóttir og Ingunn Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið

9.    Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttekt á ferðaheimildum og greiðslu ferðakostnaðar IER22110106

Elfa Ingibergsdóttir og Ingunn Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið

10.    Fram fer kynning á niðurstöðum eftirfylgni Innri endurskoðunar og ráðgjafar með úttekt á samþykktarferli reikninga og lotun gjalda IER22110107

Elfa Ingibergsdóttir og Ingunn Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið

Fundi slitið kl. 16:34

Lárus Finnbogason

Sunna Jóhannsdóttir    Einar S. Hálfdánarson

Sigrún Guðmundsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 06.02.2023 - prentvæn útgáfa