Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 261

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2023, mánudaginn 9. janúar var haldinn 261. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:32. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild, Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir og Einar S. Hálfdánarson. Sigrún Guðmundsdóttir boðaði forföll. 

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Lögð fram beiðni Grant Thornton, ytri endurskoðenda dags. 4. þ.m.um viðbótarverk vegna endurskoðunar hjá OR samstæðunni ásamt umsögn framkvæmdastjóra Fjármála hjá OR IER23010014

Samþykkt

2.    Lögð fram breyting á starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir tímabilið 2022-2023 

Samþykkt

3.    Rætt um forval vegna útboðs ytri endurskoðunarþjónustu

Fundi slitið kl. 13:58

Lárus Finnbogason

Sunna Jóhannsdóttir    Einar S. Hálfdánarson

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 9.01.2023 - prentvæn útgáfa