Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 244

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2022, miðvikudaginn 16. mars var haldinn 244. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild, Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. 

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á ársreikningi 2021 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Faxaflóahafnir sf. IE21080015

Theodór S Sigurbergsson, Sif Jónsdóttir, Stefán Þór Ingvarsson, Skúli Þór Helgason, Magnús Þór Árnason og Gunnar Tryggvason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti

-    Kl. 13:06 tekur Einar S. Hálfdánarson sæti á fundinum með rafrænum hætti

-    Kl. 13:38 yfirgefur Sunna Jóhannsdóttir fundinn

Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá og kynna umsögn endurskoðunarnefndar fyrir stjórn Faxaflóahafna sf.

    Fundi slitið kl. 14:00

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir    Einar S. Hálfdánarson

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 16.03.2022 - prentvæn útgáfa