Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 241

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2022, þriðjudaginn 8. mars var haldinn 241. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 15:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild, Lárus Finnbogason og Sigrún Guðmundsdóttir. 

Einar S. Hálfdánarson boðaði forföll

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á ársreikningi 2021 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Malbikunarstöðina Höfða hf.  IE21080015

Sturla Jónsson, Haukur Hauksson, Theodór S Sigurbergsson, Hafdís Ósk Guðlaugsdóttir, Hörður Gunnarsson og Ásberg K Ingólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti

Samþykkt að fela formanni að ganga frá og kynna umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf.

2.    Fram fer kynning á ársreikningi 2021 ásamt endurskoðunarskýrslu fyrir Strætó bs.  IE21080015

Sturla Jónsson, Haukur Hauksson, Theodór S. Sigurbergsson, Hjálmar Sveinsson Jóhannes Svavar Rúnarsson og Elísa Kristmannsdóttir og taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti

Samþykkt að fela formanni að ganga frá og kynna umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Strætó bs.

3.    Lögð fram að beiðni forstöðumanns reikningshalds Orkuveitu Reykjavíkur sef. dags. í dag um umsögn um skipan endurskoðunarnefndar hjá Ljósleiðaranum hf. IE21080012

Lögð fram svohljóðandi umsögn endurskoðunarnefndar:

Samkvæmt ársreikningalögum ber stjórn ábyrgð á skipun endurskoðunarnefndar og skal hún skipuð eigi síðar en mánuði eftir aðalfund.  Verkefni endurskoðunarnefndar eru m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila og eftirlit með endurskoðun ársreiknings.  Verkefni nefndarinnar eru einnig að setja fram tillögu til stjórnar um val endurskoðenda sem og að meta óhæði þeirra.  Í lögunum kemur fram að kjósa skuli sömu endurskoðendur fyrir dótturfélög og móðurfélag sé þess nokkur kostur.  Þá er nánar fjallað um verkefni endurskoðunarnefnda í reglugerð ESB nr. 537/2014, um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum sem tengjast almannahagsmunum en reglugerðin hefur lagagildi hér á landi. Samkvæmt grein 3a í tilskipun ESB 2014/56, sem bíður lögfestingar á Íslandi, kemur jafnframt fram að ekki sé gerð krafa um að endurskoðunarnefnd sé skipuð í dótturfélögum, þrátt fyrir að þau teljist einingar tengdar almannahagsmunum, ef skipuð hefur verið endurskoðunarnefnd í móðurfélagi sem uppfyllir ákvæði reglugerðar ESB nr. 537/2014 og starfar á samstæðustigi. Vinna við reikningsskil innan samstæðu OR er unnin með samræmdum hætti og endurskoðun er unnin af sama endurskoðunarfyrirtæki.  Endurskoðunarnefnd OR telur að verulegt óhagræði fælist í því að skipan endurskoðunarnefndar dótturfélaga OR væri með öðrum hætti en hjá móðurfélaginu.  Nefndin leggur því til að um sömu endurskoðunarnefnd verði að ræða fyrir þau félög innan samstæðu OR sem skipa ber endurskoðunarnefnd.

Samþykkt

4.    Formaður gerði grein fyrir aðkomu sinni að fundi hjá Stjórn OR fyrr í dag þar sem ársreikningur 2021 var afgreiddur.

Fundi slitið kl. 16:13

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 08.03.2022 - prentvæn útgáfa