Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 216

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2021, mánudaginn 29. mars var haldinn 216. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 230/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á ársreikningi Strætó bs. fyrir árið 2020 ásamt endurskoðunarskýrslu ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar á ársreikningi 2020. IE20080004.

Jóhannes Svavar Rúnarsson, Elísa Kristmannsdóttir og Hjálmar Sveinsson frá Strætó bs. taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði ásamt Theodór S Sigurbergssyni, Margréti Ýr Flygenring og Sturlu Jónssyni frá Grant Thornton.

Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn til stjórnar Strætó.

-    Kl. 13:20 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum með fjarfundabúnaði 

2.    Lögð fram tilkynning reikningsskila- og upplýsinganefndar varðandi álit nefndarinnar nr. 1/2020. IE20100011

Gísli Hlíðberg Guðmundsson og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði ásamt Theodór S Sigurbergssyni og Sturlu Jónssyni frá Grant Thornton. 

3.    Lagt fram bréf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar dags. 27. þ.m. um úttekt á innheimtumálum eignasjóðs. Jafnframt fer fram kynning á helstu niðurstöðum úttektarinnar. IE20010006.

Halldóra Káradóttir, Helga Benediktsdóttir og Gísli Hlíðberg Guðmundsson frá fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði ásamt Önnu Margréti Jóhannesdóttur og Jennýju Stefaníu Jensdóttur frá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar.

-    Kl. 14:56 víkur Einar S Hálfdánarson af fundi 

4.    Formaður gerði grein fyrir fundum utan reglubundinna funda endurskoðunarnefndar það sem af er ári:

•    7.1. 2021. Fundur í OR (fjarfundur).   Kynning á áhættustjórnunarkerfi hjá OR samstæðunni.  Frá endurskoðunarnefnd, formaður og Sunna Jóhannsdóttir.

•    20.1.2021. Fundur Sunnu Jóhannsdóttur og Sigrúnar Guðmundsdóttur með stjórnendum Fjármála hjá OR þar sem kynnt voru drög á greinargerð Deloitte um aðlöguð reikningsskil 2019.

•    26.1.2021.  Fundur með formanni borgarráðs (fjarfundur).  Fundinn sat einnig innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar.

•    27.1.2021.  Fundur (fjarfundur) með stjórnarformanni OR, fjármálastjóra og lykilstarfsfólki í reikningshaldi um aðlöguð reikningsskil. 

•    25.2.2021. Stjórnarfundur í Félagsbústöðum hf., afgreiðsla ársreiknings.  Staðarfundur.

•    26.2.2021.  Stjórnarfundur í SORPU, afgreiðsla ársreiknings.  Staðarfundur.

•    5.3.2021. Fundur með formanni borgarráðs (fjarfundur).  Fundinn sat einnig innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar.

•    9.3.2021.  Stjórnarfundur í OR, afgreiðsla ársreiknings.  Fjarfundur.

•    12.3.2021.  Stjórnarfundur í SORPU, framlagning skýrslu innri endurskoðunar.  Staðarfundur.

•    19.3.2021.  Stjórnarfundur í Faxaflóahöfnum, afgreiðsla ársreiknings.  Fjarfundur.

•    22.3.2021.  Fundur með fjármálastjóra OR, ytri endurskoðanda og lykilstarfsfólki í reikningshaldi.  Rýning á ársuppgjörsferli.  Fjarfundur.

•    23.3.2021. Fundur með formanni borgarráðs (fjarfundur).  Fundinn sat einnig innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar.

•    25.3.2021. Stjórnarfundur í Malbikunarstöðinni Höfða hf., afgreiðsla ársreiknings.  Fjarfundur.

•    25.3.2021.  Aðalfundur Félagsbústaða hf.  Fjarfundur. Fundinn sótti einnig Sigrún Guðmundsdóttir.

•    26.3.2021.  Stjórnarfundur í Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, afgreiðsla ársreiknings.  Fjarfundur.

Fundi slitið kl. 15:32

Fundargerðin var staðfest í tölvupósti

í samræmi við ákvæði um fjarfundabúnað

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir    Sunna Jóhannsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 29.03.2021 - prentvæn útgáfa