Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 214

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2021, miðvikudaginn 3. mars var haldinn 214. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 9:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði, með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 230/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir.

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á ársreikningi Orkuveitu Reykjavíkur sef. og samstæðu fyrir árið 2020 ásamt endurskoðunarskýrslu ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar á ársreikningi 2020. IE20080004.

Ingvar Stefánsson, Bryndís María Leifsdóttir, Brynhildur Davíðsdóttir, Elín Smáradóttir, og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir frá Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Már Jóhannesson, Davíð Arnar Einarsson, Sturla Jónsson, og Theodór S Sigurbergsson frá Grant Thornton taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur sef.

Fundi slitið kl. 10:00

Fundargerðin var staðfest í tölvupósti 

í samræmi við ákvæði um fjarfundabúnað

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir    Sunna Jóhannsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
endurskodunarnefnd_0303.pdf