Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 197

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2020, miðvikudaginn 14. október var haldinn 197. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst klukkan 9:04. Lárus Finnbogason, Diljá Mist Einarsdóttir, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir taka þátt í fundinum. Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Lögð fram endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings A- hluta Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 IE20080004

Harpa Guðlaugsdóttir, Sturla Jónsson og Theodór S Sigurbergsson hjá Grant Thornton ásamt Halldóru Káradóttur sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

-    Klukkan 9:38 tekur Þorsteinn Gunnarsson borgarritari sæti á fundinum með fjarfundabúnaði.

-    Klukkan 9:58 víkur Þorsteinn Gunnarsson borgarritari af fundinum

2.    Lögð fram endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings SORPU bs. fyrir árið 2020 IE20080004

Harpa Guðlaugsdóttir, Sturla Jónsson og Theodór S Sigurbergsson hjá Grant Thornton ásamt Helga Þór Ingasyni og Guðrúnu Eva Jóhannesdóttir hjá SORPU bs. og Halldóru Káradóttur sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

3.    Lögð fram endurskoðunaráætlun ytri endurskoðenda vegna endurskoðunar ársreiknings Strætó bs fyrir árið 2020 IE20080004

Harpa Guðlaugsdóttir, Sturla Jónsson og Theodór S Sigurbergsson hjá Grant Thornton ásamt Jóhannesi Rúnarssyni og Elísu Kristmannsdóttur hjá Strætó bs., og Halldóru Káradóttur sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

4.    Lögð fram breytt starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2020–2021 IE20090049.

Samþykkt

Fundi slitið kl. 11:30

Staðfest í tölvupósti 

í samræmi við ákvæði reglna um fjarfundabúnað

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir    Diljá Mist Einarsdóttir

Sunna Jóhannsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 14.10.2020 - prentvæn útgáfa