Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 157

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2019, mánudaginn 25. febrúar var haldinn 157. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Suðurlandsbraut 20 og hófst kl. 9:04. Viðstödd voru Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Félagsbústaða hf. fyrir árið 2018. IE18010006

Sigrún Árnadóttir og Kristín Guðmundsdóttir frá Félagsbústöðum hf. taka sæti á fundinum undir þessum lið. Sturla Jónsson og Theódór Sigurbergsson og Alda Óskarsdóttir frá Grant Thornton taka einnig sæti á fundinum og kynna vinnu við endurskoðun ársreiknings 2018 og helstu álitamál.

Samþykkt að formaður endurskoðunarnefndar útbúi drög að umsögn til stjórnar um ársreikning Félagsbústaða hf. fyrir 2018.

2.    Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Sorpu bs. fyrir árið 2018. IE18010006

Sturla Jónsson og Theódór Sigurbergsson og Haukur Hauksson frá Grant Thornton taka sæti á fundinum undir þessum lið og kynna vinnu við endurskoðun ársreiknings 2018 og helstu álitamál. Birkir Jón Jónsson formaður stjórnar Sorpu bs. boðaði forföll.

Samþykkt að formaður endurskoðunarnefndar útbúi drög að umsögn til stjórnar um ársreikning Sorpu bs. fyrir 2018.

Fundi slitið kl. 11:49

Lárus Finnbogason

Sunna Jóhannsdóttir    Sigrún Guðmundsdóttir

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 25.02.2019 - prentvæn útgáfa