Endurskoðunarnefnd - Endurskoðunarnefnd þriðjudaginn 20. október 2026 nr. 364

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 20. október var haldinn 364. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 10:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Sunna Jóhannsdóttir, Björn Snær Atlason og Kristín Baldursdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir. Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram að nýju drög að starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2026-2027. Samþykkt.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram að nýju fyrirspurn endurskoðunarnefndar, dags 21. september 2026, um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. IER26090009

    Fylgigögn

  3. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 8. október 2026, varðandi Stjórnunarkerfi upplýsingatækni Orkuveitunnar: Fyrirspurn endurskoðunarnefndar vegna ábendingar 1A.

  4. Lagt fram bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 8. október 2026, varðandi niðurstöðu yfirferðar vegna úttektarskýrslunnar Sjálfstætt starfandi tónlistarskólar. Skúli Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á uppljóstrunargátt Reykjavíkurborgar.

    Halldóra Alexandersdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið kl. 12:00

Sunna Jóhannsdóttir Björn Snær Atlason

Kristín Baldursdóttir