Borgarstjórn - Borgarstjórn og Reykjavíkurráð ungmenna 10.2.2026

Borgarstjórn

Ár 2026, þriðjudaginn 10. febrúar, var haldinn sameiginlegur fundur Borgarstjórnar Reykjavíkur og Reykjavíkurráðs ungmenna. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 15:06. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Ellen Jacqueline Calmon, Erlingur Sigvaldason, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Kjartan Magnússon, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Sabine Leskopf, Sandra Hlíf Ocares, Skúli Þór Helgason og Stefán Pálsson. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna: Dagbjört Freyja Gígja, Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Jökull Logi Sigurjónsson, Jörundur Þór Hákonarson, Magnús Sigurður Jónasson, Ragnheiður Gróa Elvarsdóttir,  Sigríður Dúa Brynjarsdóttir og Sjöfn Sveinsdóttir.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um tillögur fulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna sem lagðar voru fram á fundi borgarstjórnar 28. janúar 2025.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga Sigríðar Dúu Brynjarsdóttur, fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela menningar- og íþróttasviði að lengja opnunartíma sundlauga í Reykjavík til kl. 22:00 um helgar yfir veturinn og taka upp sérstakan sumaropnunartíma til kl. 23:30 alla daga. Breytingin taki gildi 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar menningar- og íþróttaráðs. MSS26020039

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga Jökuls Loga Sigurjónssonar, fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva til kl. 22:00 á mánudögum og miðvikudögum og á föstudagskvöldum til kl. 22:30 og bæta jafnframt við einni kvöldopnun á viku. Breytingin taki gildi frá og með hausti 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    -    Kl.15:54 víkur Einar þorsteinsson af fundi og Ásta Björg Björgvinsdóttir tekur þar sæti.

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS26020040

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga Ragnheiðar Gróu Elvarsdóttur, fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela menningar- og íþróttaráði að hækka frístundastyrk fyrir börn og ungmenni um 25.000 kr., það er, hækka styrkinn upp í 100.000 kr. frá 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    -    Kl. 16:20 víkur Sandra Hlíf Ocares af fundi og Birna Hafstein tekur þar sæti.

    Vísað til meðferðar menningar- og íþróttaráðs. MSS26020041

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga Indriða Nökkva Þóreyjarsonar, fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna fái áheyrnarrétt í velferðarráði, umhverfis- og skipulagsráði og menningar- og íþróttaráði þegar málefni sem tengjast börnum og ungmennum eru til umfjöllunar. Breytingin taki gildi á næsta kjörtímabili borgarstjórnar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar forsætisnefndar. MSS26020042

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga Magnúsar Sigurðar Jónassonar, fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundaráði að veita ungmennum á aldrinum 13-18 ára, 15 þúsund króna styrk til bókakaupa árlega. Tillagan kæmi til framkvæmda 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS26020043

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga Dagbjartar Freyju Gígju, fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að innleiða kennslu í grunnþáttum sjálfsvarnar fyrir nemendur í unglingadeild í öllum grunnskólum Reykjavíkur eigi síðar en á haustönn 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS26020044

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga Jörundar Þórs Hákonarsonar, fulltrúa í ungmennaráði Breiðholts:

    Lagt er til að að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að útbúa gervigreindarstefnu í samstarfi við grunnskóla og að stefnan taki gildi í öllum grunnskólum frá 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar stafræns ráðs. MSS26020046

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga Sjafnar Sveinsdóttur, fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela Vinnuskóla Reykjavíkur að bjóða unglingum í 9. og 10. bekk upp á hlutastörf á starfsstöðum Reykjavíkurborgar yfir vetrartímann frá og með hausti 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. MSS26020047

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 17:58

Sanna Magdalena Mörtudottir Erlingur Sigvaldason

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarstjórn og Reykjavíkurráð ungmenna 10.02.2026 - prentvæn útgáfa