Borgarstjórn
Ár 2025, þriðjudaginn 6. maí, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:04. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Björn Gíslason, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Kristinn Jón Ólafsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Skúli Helgason, Þorvaldur Daníelsson og Þórdís Lóa Þorhallsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2024, ódags, sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. maí 2025. Einnig er lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. apríl 2025, greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta, dags. 10. apríl 2025, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 10. apríl 2025, greinargerð um innleiðingu kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar, ódags., verkstöðuskýrsla nýframkvæmda, ódags., skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 7. apríl 2025, um framkvæmd styrkjareglna, skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. apríl 2025, um samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2024, ábyrgða- og skuldbindingayfirlit, dags. 11. apríl 2024, yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar, ódags., og umsögn endurskoðunarnefndar, dags. 28. apríl 2025. Jafnframt er lögð fram umsögn Grant Thornton, dags. 2. maí 2025.
- Kl. 13:46 víkur Marta Guðjónsdóttir af fundi og Helgi Áss Grétarsson tekur sæti.
Samþykkt að vísa ársreikningi Reykjavíkurborgar 2024 til síðari umræðu sem fram fer á fundi borgarstjórnar 13. maí nk. FAS25010016
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Helstu mælikvarðar í ársreikningi fyrir árið 2024 sýna aukinn styrk í fjárhagsstöðu borgarinnar með betri nýtingu fjármuna og bættu fjárhagslegu jafnvægi. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 10,7 milljarða króna á síðasta ári sem er 14,1 milljarði betri niðurstaða en árið 2023. Þá var rekstur A-hluta jákvæður um 4,7 milljarða sem er viðsnúningur upp á 9,7 milljarða frá árinu áður. Þá lækkar skuldahlutfall. Rekstur Reykjavíkurborgar er traustur og mikill árangur náðist á síðasta ári bæði í rekstri borgarinnar og með tímamótakjarasamningum sem höfðu áhrif á að vinda ofan af háum vöxtum og verðbólgu. Mikilvægir áfangar náðust varðandi leiðréttingu á vanfjármögnuðum málaflokkum sem laga stöðuna í fjárhagslegum samskiptum við ríkið. Fjármagni verður forgangsraðað í grunnþjónustu fyrir borgarbúa í samræmi við þörf og sterkur rekstrargrundvöllur gerir okkur kleift að halda áfram með húsnæðisuppbyggingu til að tryggja örugg heimili fólks, leikskólauppbyggingu samhliða bættum starfsaðstæðum og umbótum í velferðarþjónustu, vinna gegn fátækt og ójöfnuði, efla skólaþjónustu, bæta þjónustu við strætófarþega og bæta göngu- og hjólaleiðir svo nokkur dæmi séu tekin. Við munum áfram standa vörð um reksturinn og sýna ábyrgt viðbragð við ytri áskorunum. Tryggja þarf lífsgæði til framtíðar og það þarf m.a. að eiga sér stað með skynsamlegum og nauðsynlegum fjárfestingum.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa áhyggjum af ósjálfbærum rekstri borgarsjóðs. Reglulegar tekjur standa ekki undir reglulegum útgjöldum borgarinnar. Jákvæða rekstrarniðurstöðu má fyrst og fremst rekja til aukinna skatttekna sem fylgdu útsvarshækkun og óreglulegra tekna á borð við eignasölu og sölu byggingarréttar. Jafnframt leiðir breyting lífeyrisskuldbindingar af sér 4,6 milljarða jákvæða sveiflu í rekstri borgarinnar en breytingin er bókhaldstæknilegt atriði sem engin áhrif hefur á grunnrekstur borgarinnar til skamms tíma. Ekki birtast áhrif hagræðingar í fyrirliggjandi ársreikningi en laun og launatengd gjöld og annar rekstrarkostnaður aukast um 12,5 milljarða milli ára. Þá fjölgar starfsmönnum á áður óþekktum hraða eða um 895 árinu 2024, eða sem samsvarar 8,4%. Á sama tíma fjölgaði íbúum aðeins um 1,9%. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka mikilvægi þess að ráðist verði í hagræðingar í rekstri borgarinnar, minni yfirbyggingu, skipulega niðurgreiðslu skulda og eignasölu. Einungis þannig hreyfum við nálina og tryggjum raunverulega sjálfbærni í rekstri borgarinnar, en traustur rekstur er forsenda öflugrar grunnþjónustu.
Fylgigögn
- Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2024
- Ársreikningur A-hluta 2024
- Ársreikningur B-hluta 2024
- Skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs með ársreikningi 2024
- Greinargerð fagsviða með ársreikningi 2024
- Greinargerð B-hluta fyrirtækja með ársreikningi 2024
- Framvinduskýrsla ársins 2024
- Skýrsla til borgarráðs um framkvæmd styrkjareglna 2024
- Samantekt viðauka við fjárhagsáætlun 2024
- Yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar
- Ábyrgða- og skuldbindingayfirlit 31.12.2024
-
Samþykkt að taka á dagskrá kosningu í mannréttindaráð. Lagt til að Tinna Helgadóttir taki sæti sem varamaður í mannréttindaráði í stað Oktavíu Hrundar Guðrúnar Jóns.
Samþykkt. MSS25020083 -
Lagt til að Andrea Helgadóttir taki sæti í umhverfis- og skipulagsráði í stað Ástu Þórdísar Skjalddal Guðjónsdóttur. Jafnframt lagt til að Ásta Þórdís taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Andreu.
Samþykkt. MSS22060158 -
Lagt til að Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir taki sæti í stafrænu ráð í stað Andreu Helgadóttur. Jafnframt lagt til að Andrea taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Ástu Þórdísar.
Samþykkt. MSS22060046 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 10. apríl, 11. apríl og 2. maí.
- 5. liður fundargerðarinnar frá 10. apríl, tillaga nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar – skipan fulltrúa í stjórn SORPU bs., er samþykktur.
- 2. liður fundargerðarinnar frá 2. maí, tillaga nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar – skipan fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, er samþykktur. MSS25010002Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 2. maí, mannréttindaráðs frá 3. apríl, mannréttindaráðs frá 10. apríl, menningar- og íþróttaráðs frá 11. apríl, skóla- og frístundaráðs frá 7. apríl, stafræns ráðs frá 9. apríl, umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. apríl og velferðarráðs frá 9. apríl. MSS25010033
Fylgigögn
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 3. apríl 2025
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 3. apríl 2025
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 11. apríl 2025
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 7. apríl 2025
- Fundargerð stafræns ráðs frá 9. apríl 2025
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. apríl 2025
- Fundargerð velferðarráðs frá 9. apríl 2025
- Fundargerð forsætisnefndar frá 4. apríl 2025
Fundi slitið kl. 14:43
Sanna Magdalena Mörtudottir Alexandra Briem
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarstjórn 6.5.2025 - prentvæn útgáfa