Borgarstjórn - Borgarstjórn 29.09.26

Borgarstjórn

Ár 2026, þriðjudaginn 29. september, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:07. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björg Magnúsdóttir, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný María Jóhannsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela borgarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu um endurreisn íslenska forvarnarmódelsins í Reykjavík, ásamt þjónustusamningi við Rannsóknir og greiningu (R&G) um framkvæmd fyrsta áfanga verkefnisins í grunnskólum Reykjavíkurborgar árið 2026, þar sem meðal annars verði notast við gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni. Jafnframt er lagt til að skóla- og frístundasviði verði falið að vinna að því í samstarfi við R&G að fullmóta tillögu að framhaldi verkefnisins fyrir árin 2027– 2029. Tillagan liggi fyrir eigi síðar en 15. nóvember 2026, þar á meðal kostnaðarmat, svo taka megi tillit til hennar við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26090114

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar því að íslenska forvarnarmódelið, sem varð til fyrir aldarfjórðungi í samstarfi rannsakenda, sveitarfélaga, æskulýðsstarfs, skóla, foreldra og íþróttahreyfingarinnar, verði endurreist í Reykjavík. Íslenska forvarnarmódelið er eitt árangursríkasta forvarnarstarf sem þekkist á alþjóðavettvangi. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem höfðu orðið ölvaðir lækkaði til að mynda úr 42% árið 1998 í um 5% árið 2016. Árangurinn hefur vakið athygli víða og módelið orðið fyrirmynd forvarnarstarfs víða um heim. Kjarni módelsins felst meðal annars í reglulegri gagnasöfnun um stöðu og líðan ungmenna og að niðurstöðunum sé hratt og með aðgengilegum hætti miðlað til skóla, foreldra, félagsmiðstöðva, íþróttafélaga og annarra sem þjónusta börn og ungmenni. Á þeim grunni setja aðilar á vettvangi sér markmið, móta aðgerðir, fylgja þeim markvisst eftir og nýta niðurstöðurnar til áframhaldandi þróunar starfsins. Jafnframt er lögð áhersla á að draga úr áhættuhegðun með því að beina börnum og ungmennum í uppbyggilegt starf. Margt er vel gert í Reykjavík, en ýmis merki eru um aukna áhættuhegðun meðal ungmenna. Því er mikilvægt að ráðast í markvissa endurreisn þessa mikilvæga forvarnarstarfs, sem reynslan sýnir að getur skilað verulegum árangri í þágu farsældar barna og ungmenna. Innleiðingin hefst í haust og gert er ráð fyrir að starfið nái fullum krafti skólaárið 2027-2028.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að meirihlutinn taki nú undir mikilvægi íslenska forvarnarmódelsins, sem var einmitt grunnurinn að tillögu Samfylkingarinnar um víðtækar aðgerðir í forvarnarmálum, sem lögð var fram 8. september síðastliðinn. Tillaga meirihlutans snýr fyrst og fremst að gögnunum og það er vel, en gögnin gera lítið nema þau leiði til aðgerða úti í hverfunum, hjá fagfólkinu sem þekkir börnin. Barna- og fjölskylduteymi í fjórum hverfum borgarinnar, eins og Samfylkingin leggur til hér í dag, er sá vettvangur sem þarf til að vinna áfram með niðurstöðurnar og því í raun forsenda þess að tillaga meirihlutans skili árangri. Miðlæg skrifstofa í Borgartúni getur ekki ein gegnt því hlutverki. Áður en borgin skuldbindur sig til lengri tíma þarf líka að liggja fyrir kostnaðarmat og skýr ábyrgð á eftirfylgninni.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nú á skömmum tíma hefur ýmislegt breyst í umhverfi barna og ungmenna. Sem dæmi hafa ólögráða ungmenni greiðara aðgengi að ávanabindandi efnum í gegnum samfélagsmiðla og netverslanir. Neysla hefur aukist og þeim fjölgar sem byrja fyrr að drekka áfengi og reykja. Aðgerða er þörf og styður Vinstrið allar góðar tillögur sem snúa að forvörnum og æskulýðsrannsóknum. Það skýtur hins vegar skökku við að Sjálfstæðisflokkurinn tali fyrir auknu aðgengi að áfengi í ljósi afgreiðslu þessarar mikilvægu forvarnartillögu sem hér er lögð fram. Þá er kaldhæðnislegt að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn tali um að „endurreisa íslenska forvarnarmódelið“ á meðan þessir sömu flokkar munda niðurskurðarhnífinn í verkefnum tengdum börnun og ungmennum í hverfum borgarinnar.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillögunni er tekið fagnandi enda orðið tímabært að endurreisa íslenska forvarnarmódelið. Þrátt fyrir að áhættuhegðun barna sé ekki komin á þann stað sem hún var á tíunda áratugnum er mikilvægt að grípa strax í taumana miðað við vísbendingar um að áhættuhegðun sé að aukast. Þegar ráðist verður í aðgerðir er nauðsynlegt að einblína ekki aðeins á fræðslu heldur aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif á umhverfi barna. Tryggja þarf jafnt aðgengi barna og ungmenna að æskulýðs-, tómstunda- og íþróttastarfi sem er ein lykilstoð forvarna. Einnig er nauðsynlegt að Reykjavík beiti sér fyrir takmörkuðu aðgengi að áfengi og nikótínvörum en með komu netsölu áfengis hefur aldrei verið jafn auðvelt fyrir ungmenni að nálgast áfengi. Áhrif auglýsinga verslana sem selja áfengi og nikótínvörur hafa einnig aukist á síðustu árum. Að lokum er bent á þá afturför í forvarnarstarfi sem felst í veitingu áfengisleyfa á íþróttaviðburðum og lengingu útivistartímans. Kjarni íslenska forvarnarmódelsins felst í öflugu samstarfi allra sem koma að málefnum barna og ungmenna. Falin verðmæti liggja hjá ungmennunum sjálfum og er því mikilvægt að tryggja aðkomu þeirra að aðgerðunum.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Borgarstjórn samþykkir að endurskoða yfirstandandi skipulags- og niðurskurðaraðgerðir borgarinnar með það að markmiði að tryggja nærþjónustu í hverfum borgarinnar. Þá verði málaflokkur forvarna staðsettur hjá skrifstofu barna og fjölskyldumála í stað skrifstofu öldrunarmála á velferðarsviði til að tryggja faglega samlegð og rökrétta stjórnsýslu. Barna- og fjölskylduteymi Reykjavíkurborgar verði staðsett og starfrækt úti í hverfunum til að tryggja nálægð, þekkingu og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Þannig verði fjögur teymi starfandi í borginni sem taki mið af núverandi hverfaskiptingu sviðanna. Hverfin verði: 1. Hverfi I. Vesturbær, Miðborg og Hlíðar. 2. Hverfi II. Laugardalur, Háaleiti, Bústaðahverfi. 3. Hverfi III. Breiðholt. 4. Hverfi IV. Grafarvogur, Kjalarnes, Úlfarsárdalur, Grafarholt, Árbær og Norðlingaholt. Barna- og fjölskylduteymin annist forvarnarstarf, félagslega ráðgjöf vegna barna og ungmenna, sálfræðiþjónustu og aðra sérfræðiþjónustu s.s. hegðunarráðgjöf, sérkennslu og kennsluráðgjöf, talmeinaþjónustu og störf þroskaþjálfa. Þá verði tryggt að starfsemi farteyma og yfirumsjón með frístundastarfi og félagsmiðstöðvum tengist teymunum auk þjónustu sem Keðjan hefur veitt. Tryggja þarf barna- og fjölskylduteymunum viðeigandi húsnæði á hverjum stað til að sinna starfi sínu.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Tillagan er felld með fimmtán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afreiðslu málsins. MSS26090115

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar tryggir að þjónusta við börn og fjölskyldur verði áfram veitt úti í hverfunum, af fólki sem þekkir samfélagið, skóla og félagsmiðstöðvar, fjölskyldurnar og þær áskoranir sem hvert hverfi stendur frammi fyrir. Tillagan fjallar einkum um að sálfræðingar, félagsráðgjafar, talmeinafræðingar, sérkennsluráðgjafar og þroskaþjálfar veiti börnum og fjölskyldum þjónustu í nærumhverfi þeirra. Þá felur hún í sér leiðréttingu á þeirri furðulegu ákvörðun að staðsetja málaflokk forvarna, sem fyrst og fremst nýtast börnum og ungmennum, á skrifstofu öldrunarmála. Það er fráleit ráðstöfun og undirstrikar þann stjórnsýslulega glundroða sem einkennir margar niðurskurðaraðgerðir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa yfir miklum vonbrigðum með að meirihlutinn hafi fellt tillöguna en það er ekki of seint að vinda ofan af vanhugsuðum ákvörðunum.

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Markmið skipulagsbreytinganna er að bæta og samræma þjónustu milli borgarhluta og skapa svigrúm til að vinna á biðlistum. Stofnuð hefur verið sérstök þjónustueining fyrir börn og fjölskyldur þar sem allir þeir sérfræðingar sem koma að málefnum barna vinna þverfaglega saman. Með því skapast enn betri tækifæri til að vinna að innleiðingu farsældar barna, stytta biðlista og bæta þjónustu. Ábendingar hafa komið fram um hvar í skipuriti borgarinnar forvarnarmál skuli vera vistuð og er það nú til skoðunar, ásamt fleiri atriðum. Það stendur hins vegar ekki til að stíga skref til baka frá skipulagsbreytingunni í heild sinni eins og tillaga Samfylkingar gerir ráð fyrir.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þegar farið er í jafn umfangsmiklar skipulagsbreytingar líkt og þær sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar hefur boðað er mikilvægt að vanda til verka og undirbúa framkvæmdina vel. Til að ná sem bestum árangri þarf að undirbúa breytingarnar að eins miklu leyti og hægt er með starfsfólkinu sem þekkir best til starfseminnar. Slíkt var ekki gert og eftir sitjum við með skipulag sem hefur skiljanlega fengið á sig mikla gagnrýni. Tillaga Samfylkingarinnar er lögð fram af góðum hug en fulltrúar Vinstrisins greiða ekki atkvæði með tillögu sem snýr að því að leiðrétta meingallaða tillögu Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar. 

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Gert skal ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til 2ja ára og geti samtals orðið til 8 ára.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    -    Kl. 13:55 víkur Bjarni Guðjónsson af fundinum og Björn Gíslason tekur sæti.

    Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að vísa tillögunni til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs.

    Málsmeðferðartillagan er felld með fimmtán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.

    Lögð fram svohljóðandi breytingartilaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Fyrirliggjandi tillaga: Gert skal ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. Breytingartillaga: „Gert skal ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til tveggja ára með mögulega framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til fjögurra ára“

    Breytingartillagan er felld með 17 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands.

    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um útboð sorphirðu við heimili í Breiðholti er samþykkt með 15 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afreiðslu málsins. MSS26090116

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samþykkt tillögu um útboð á sorphirðu í Breiðholti er skref að því að kanna hvort veita megi borgarbúum jafn góða eða betri sorphirðu með hagkvæmari hætti. Verkefnið í Breiðholti skapar grundvöll fyrir raunhæfan samanburð á útboðinni þjónustu og eigin rekstri borgarinnar. Árangur verður metinn reglulega með hliðsjón af kostnaði, þjónustugæðum, áreiðanleika og sveigjanleika þjónustunnar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að ábyrg meðferð fjármuna og góð grunnþjónusta fari saman. Borgin á ávallt að vera reiðubúin að prófa nýjar leiðir og leggja málefnalegt mat á árangurinn. Niðurstöður verkefnisins munu veita mikilvægar upplýsingar fyrir framtíðarákvarðanir um sorphirðu í borginni. Hagsmunir borgarbúa og mælanlegur árangur eiga að ráða för við val á rekstrarfyrirkomulagi.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar eru ekki mótfallnir því að kanna ólík rekstrarform, en ef fara á í tilraun þá þarf hún að vera hönnuð þannig að hægt sé að læra af henni og hætta við hana ef hún gengur ekki upp. Hér er lagt til að sorphirða í Breiðholti verði boðin út til sex ára með möguleika á framlengingu í átta, án þess að fram komi hvernig borgin geti losnað undan samningnum ef þjónustan versnar eða kostnaðurinn reynist hærri. Það er langur tími fyrir tilraun og lítur frekar út eins og fyrsta skrefið í útvistun allrar sorphirðu í borginni, án þess að skýrt sé hvort markmiðið sé betri þjónusta, lægri kostnaður eða einfaldlega breytt rekstrarform. Ekki liggur heldur fyrir hver núverandi kostnaður og þjónustugæði í Breiðholti eru og án þess að vera með þau gögn til samanburðar verður erfitt að meta árangurinn. Ekkert kemur fram um kröfur varðandi laun og kjör starfsfólks en mikilvægt er að þetta sé skýrt í útboðsgögnum. Þar sem útboðið verður auglýst um miðjan október og þessum mikilvægu spurningum er enn ósvarað sitja borgarfulltrúar Samfylkingarinnar hjá.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í flóknu umhverfi úrgangsmála leysir útvistun úrgangshirðunnar ekkert. Nýsamþykkt útvistun gæti aftur á móti leitt til minni sveigjanleika í þjónustu, hækkun gjalda til lengri tíma og lakara þjónustustigs. Þá er hætt við því að þekking á einu helsta umhverfis- og loftslagsmáli sem úrgangsstýring er glatist, kostnaðarvitund og yfirsýn borgarinnar versni og framþróun úrgangsþjónustu sitji á hakanum. Í Reykjavík er mikill sveigjanleiki gagnvart íbúum um m.a. tunnusamsetningu. Reykjavík beitir líka hvötum til að ná umhverfis- og loftslagsmarkmiðum sínum um flokkun. Sem dæmi er kostnaður við plasttunnurnar í Reykjavík 30% lægri en í Garðabæ, 11% lægri en í Kópavogi og 23% lægri en í Hafnarfirði. Meðalkostnaður við hvert heimili í Reykjavík á ári er rétt rúmar 60 þúsund krónur. Sem dæmi má nefna er meðalgjald á íbúð í Kópavogi og Garðabæ hærra. Úrgangsstjórnun er flókið fyrirbæri og að mörgu að hyggja. Reykjavík hefur farnast vel í sinni úrgangsstýringu. Hins vegar er ekki að sjá að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hafi áhuga á að byggja á því góða verklagi borgarinnar. Þeir telja að hið opinbera kunni ekkert og geri ekkert vel. Útvistun á einu stærsta viðfangsefni okkar samtíma og grunnhlutverki borgarinnar, úrgangsmálum, á eftir að draga dilk á eftir sér.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggst alfarið gegn fyrirliggjandi tillögu um að bjóða út sorphirðu í Breiðholti. Slíkt er fyrsta skref að einkavæðingu sorphirðu og jafnvel sorpvinnslu. Reykjavík er síðasta sveitarfélagið sem hefur ekki boðið út sorphirðu og ef markmið hægri meirihlutans rætist munu allir innviðir sem hafa verið byggðir upp í marga áratugi og öll sérþekking innan hins opinbera hverfa og þá er ekki aftur snúið. Á sorphirðu markaðnum eru aðeins þrjú fyrirtæki nægilega stór til að sjá um þjónustuna; Terra, Kubbur og Íslenska gámafélagið. Samanlagt skiluðu þessi þrjú fyrirtæki 822 milljóna króna hagnaði á síðasta ári og vaknar því spurningin hvort þetta sé ekki sóun á skattfé, íbúa að fela einkafyrirtækjum með hagnaðarsjónarmið að sinna lögbundinni skyldu sveitarfélaganna. Sorphirða er nefnilega ekki venjuleg vara sem almenningur getur neitað sér um ef þeim misbýður sífelld verðhækkun á þjónustunni. Eflaust munu fyrirtækin bjóða Reykjavík hagstætt verð í fyrstu útboðslotu enda í þeirra hag að Reykjavík útvisti sorphirðunni endanlega og þá er ekkert sem stendur í vegi fyrir að einkafyrirtækin hækki verðið til muna.
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins:

    Borgarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða löggjöf um túlkaþjónustu með það að markmiði að setja samræmdar reglur um rétt einstaklinga til þjónustunnar og kostnaðarskiptingu ríkis, sveitarfélaga og notenda. Við endurskoðunina verði sérstaklega skoðað að greiðsluþátttöku verði hætt eftir ákveðinn tímaramma.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    -    Kl. 16:30 víkur Einar Þorsteinsson af fundinum og Magnea Gná Jóhannsdóttir tekur sæti.

    Samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs. MSS26090117

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að fyrirkomulag túlkaþjónustu verði tekið til skoðunar, bæði með tilliti til kostnaðar, ábyrgðar ríkis og sveitarfélaga og þess hvernig þjónustan styður sem best við þátttöku og sjálfstæði fólks í íslensku samfélagi. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna túlkaþjónustu hefur aukist verulega á undanförnum árum og því er fullt tilefni til að skoða hvort núverandi fyrirkomulag sé sjálfbært til framtíðar og hvort hægt sé að nýta fjármuni með markvissari hætti. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að íslenskukunnátta sé lykill að virkri samfélagsþátttöku og góðum samskiptum foreldra og skóla. Í því samhengi er mikilvægt að horfa ekki eingöngu til túlkaþjónustu heldur jafnframt til þess hvernig Reykjavíkurborg getur hvatt fólk af erlendum uppruna til íslenskunáms. Við frekari skoðun málsins þarf þó að tryggja að aðgangur að túlkun sé áfram fyrir hendi þegar mikilvægir hagsmunir og réttindi barna eru í húfi og þegar túlkun er nauðsynleg til að tryggja fullnægjandi þjónustu. Meirihlutinn telur því rétt að skoða málið heildstætt, þar á meðal möguleg tímamörk almennrar gjaldfrjálsrar túlkaþjónustu, samhliða auknum stuðningi við íslenskunám og skýrum undanþágum þegar aðstæður kalla á túlkun.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þjóðernishyggja og útlendingaandúð hafa á undanförnum árum sótt í sig veðrið víða í hinum vestræna heimi. Tillagan vekur óþægileg hugrenningatengsl við þessa þróun, þar sem kostnaður vegna fólks sem hér hefur sest að er ítrekað dreginn sérstaklega fram, s.s. móttaka flóttafólks, fjárhagsaðstoð og nú túlkaþjónusta. Kostnaðaraukning túlkaþjónustu nemur hins vegar einungis 0,06% af árlegri veltu borgarsjóðs, svo augljóst er að tilgangur tillögunnar er af öðrum toga en rekstrarlegum. Túlkaþjónusta er ekki lúxus heldur gerir hún íbúum þ.m.t. foreldrum kleift að skilja hvernig börnunum þeirra gengur í skólanum eða átta sig á réttindum sínum og skyldum. Tillagan gerir ráð fyrir að undanskilja þurfi túlkun vegna barna, félagsþjónustu, barnaverndar, fötlunar og réttaröryggis frá gjaldtöku, en það eru einmitt þau svið sem túlkaþjónusta borgarinnar beinist fyrst og fremst að. Verkefnið er að auka íslenskukennslu fólks af erlendum uppruna. Eðlilegt er að skora á ríkið að efla íslenskukennslu og borgin axli líka aukna ábyrgð með eflingu íslenskukennslu fyrir sína íbúa og starfsfólk. Íslenskukennsla er lykill að inngildingu, og þegar við höfum tekið skýr skref í þá átt að auka hana, samhliða tækniþróun, verður þörfin fyrir langtíma túlkaþjónustu minni. Við erum hinsvegar ekki komin þangað í dag.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga Miðflokksins er ekkert annað en dulbúin tortryggni gagnvart innflytjendum og þýðinga- og túlkaþjónustu Reykjavíkurborgar. Vinstrið greiðir atkvæði gegn því að taka hana til umræðu í borgarráði á þeim forsendum sem Miðflokkurinn gefur sér í framlagningu hennar. Vinstrið telur að enginn sé að sækja sér þjónustu í þessum efnum umfram þarfir. Myndu Miðflokksmenn fara og láta draga úr sér tennurnar ef það væri ókeypis að gera það hjá tannlækni?

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Að taka upp gjald fyrir notkun túlkaþjónustu mun ekki skila tilætluðum árangri. Helsta hindrun að íslensku er aðgengi að námi þar sem engin heildræn stefna er hjá ríki né sveitarfélögum sem stuðlar að íslenskukennslu meðal innflytjenda. Úrval af íslenskunámi er verulega takmarkað og kostnaðarsamt og ef við viljum raunverulega hvetja innflytjendur til að læra íslensku þurfum við að gera þeim auðvelt að sækja það nám. Túlkaþjónusta er forsenda þess að upplýsingar komi rétt til skila og að samskipti milli þjónustuþega og þjónustuveitenda séu skilvirk. En kostnaður við misskilning getur orðið ansi dýr sérstaklega ef takmarka á aðgengi túlkaþjónustu í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Því þeir sem þurfa túlkaþjónustu eftir langa dvöl eru oft í viðkvæmri félags- og efnahagslegri stöðu. Í staðinn fyrir að búa til fjárhagslegar hindranir væri æskilegra að fara í aðgerðir sem skapa raunverulega hvata og auka aðgengi að íslenskunámi.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi ályktunartillaga Vinstrisins:

    Borgarstjórn samþykkir að við vinnu fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verði almennar hækkanir gjaldskráa hjá A-hluta Reykjavíkurborgar ekki umfram 2,5 prósent.

    Samþykkt að vísa tillögunni til skoðunar hjá fjármála- og áhættustýringarsviði við gerð fjárhagsáætlunar. MSS26090118

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavíkurborg leggur áherslu á að sýna ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og leggja sitt af mörkum til að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum. Við ákvörðun gjaldskrár fyrir árið 2027 er því horft til ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög landsins lýsa yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Með því vilja sveitarfélögin taka virkan þátt í sameiginlegu átaki til aukins stöðugleika í efnahagslífinu. Slíkt átak getur þó aðeins skilað tilætluðum árangri ef ábyrgðin er sameiginleg. Reykjavíkurborg tekur því undir áherslu landsþingsins um að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimili og fyrirtæki. Jafnframt er mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni saman á grundvelli trausts og gagnkvæms skilnings. Reykjavíkurborg tekur undir þá afstöðu landsþingsins að sveitarfélögum verði ekki áfram gert að taka á sig nýjar skyldur eða aukinn kostnað vegna ákvarðana ríkisins án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Ef sveitarfélög eiga að geta haldið aftur af gjaldskrárhækkunum, tryggt öfluga grunnþjónustu og jafnframt lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu verður að tryggja að nýjum verkefnum og auknum skyldum fylgi full fjármögnun frá upphafi og að staðið sé við gerða samninga. Reykjavíkurborg mun þannig leggja sitt af mörkum til sameiginlegs átaks gegn verðbólgu, en leggur jafnframt áherslu á að ríkið, stofnanir þess og aðrir helstu aðilar samfélagsins axli sambærilega ábyrgð.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Við erum á afar viðkvæmum stað í efnahagsmálum þar sem verðbólga eykst sífellt með tilfallandi stýrivaxtahækkunum, kjarasamningar eru komnir að forsendubresti, atvinnuleysi er að aukast og vísbendingar eru um kulnun á almennum markaði. Reykjavík þarf að leggja sitt af mörkum sem langstærsta sveitarfélagið í baráttunni gegn verðbólgu. Í forsendum rammaúthlutunar sem voru lagðar fyrir borgarráð þann 16.júlí 2026 var gert ráð fyrir að jafnaði 4% hækkun á gjaldskrám sem er langt umfram 2,5% verðbólgumarkmið. Í síðustu viku var ályktunartillaga samþykkt á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að hækka ekki almennar gjaldskrár umfram 2,5% og þarf Reykjavíkurborg að standa sína plikt. 

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:

    Lagt er til að borgarstjóra verði falið að tryggja að íbúar Kjalarness búi við jafngóðar og tíðar almenningssamgöngur og aðrir borgarbúar og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að ná því markmiði. Verkefni þessu verði lokið innan hundrað daga.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til borgarráðs. MSS26090119

    Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Miðflokksins taka undir það að bæta þarf almenningssamgöngur á Kjalarnesi, enda voru þær í ólestri á síðasta kjörtímabili, hjá fyrrverandi vinstri meirihluta, og eru það enn. Finna þarf fjárhagslega skynsama lausn sem leysir þetta óviðunandi ástand og mikilvægt að sú lausn náist í samráði við íbúa á Kjalarnesi.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands styður þá tillögu að bæta almenningssamgöngur á Kjalarnesi. Löngu er orðið tímabært að bæta aðgengi í hverfinu til að gæta jafnræðis og til að mæta þörf miðað við fyrirhugaða stækkun á hverfinu. Í dag keyrir leið 29 um Kjalarnes þar sem aðeins eru fjórar biðstöðvar í íbúðarhverfinu. Leiðin nær ekki til Brautarholtskirkju, golfklúbbsins né heimilanna meðfram Brautarholtsveg, og ná því almenningssamgöngur ekki til allra lykilsvæða á Kjalarnesi. Tíðni ferðanna er einnig verulega ábótavant sérstaklega um helgar þar sem Strætó kemur á rúmlega tveggja klukkustunda fresti. Ferðir hefjast jafnframt ekki nægilega snemma á virkum dögum til þess að íbúar á Kjalarnesi geti notað almenningssamgöngur til að fara í vinnu eða sækja nám miðsvæðis, en fyrsta ferðin er kl 07:31. Annað jafnræðismál sem þarf að kippa í lag er verðlagningin þar sem almennt miðaverð er 690kr en ferðin á Kjalarnes frá miðborginni kostar 1.290kr. Ekki er ásættanlega að íbúar í Reykjavík þurfi að borga mismunandi verð til að nota sömu þjónustu.

    Fylgigögn

  7. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 10. september og 17. september 2026. MSS26010002
    16. liður fundargerðar borgarráðs frá 17. september; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026, er samþykktur með fimmtán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26030008
    19. liður fundargerðar borgarráðs frá 17. september; tillaga um kjarasamningsumboð Reykjavíkurborgar, er samþykktur með sextán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Sósíalistaflokks Íslands gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. MOS26080002

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun undir 16. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september:

    Viðaukar við fjárfestingaáætlun gefa ágætis vísbendingu um hvaða verkefni meirihlutinn velur að verja og hvað hann lætur mæta afgangi. Í þessum viðauka við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026 lækkar fjárfesting í leikskólum um 168 milljónir króna, endurnýjun mötuneyta í leikskólum verður engin og hverfapottar, sem íbúar ráðstafa sjálfir í gegnum verkefnið Betri hverfi, eru skornir niður um helming. Á sama tíma bætist við 90 milljóna fjárfesting í Borgartúni 12–14 ásamt 50 milljónum í LED-skjái og nýja stóla í borgarstjórnarsalinn. Það er erfitt að sjá hvar minna kerfi, meira hverfi birtist í þessari forgangsröðun, því hér fær kerfið meira og hverfin minna. Loks eru 42 verkefni í viðaukanum sögð fara „hægar af stað en gert var ráð fyrir“ og þar fór lítið fyrir straxinu. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar hefðu viljað sjá peningana fylgja börnum og fara út í hverfin, en ekki fundarsal borgarstjórnar og skrifstofuturninum í Borgartúni.

    Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun undir 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september:

    Vinstrið mótmælir þessari tillögu og telur að Reykjavíkurborg eigi sjálf að sinna kjarasamningsgerð og bera ábyrgð gagnvart fólkinu sem vinnur fyrir hana í stað þess að færa ákvarðanatöku frá borginni og firra sig þannig pólitískri ábyrgð.

    Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun undir 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september:

    Í ljósi þess að formenn stéttarfélaga sem náðist samband við stilltu sér ekki upp á móti tillögunni er henni ekki mótmælt. Ákveðin tækifæri felast í að færa umboðið hvað varðar samræmi kjarasamninga og þar með aukið jafnræði. Sambandið sér nú þegar um kjarasamningsgerð við sum stéttarfélög t.d. aðildarfélög KÍ og hefur því umboðinu verið framselt að hluta til. Við kjarasamningsgerð liggur lýðræðisvaldið helst hjá stéttarfélögunum þar sem félagsmenn geta beitt sér fyrir betri kjörum og gripið til aðgerða ef þörf krefur. Það er hægt að draga umboðið til baka þremur mánuðum áður en kjarasamningar renna út og því auðvelt að færa umboðið til baka ef ekki er ánægja með sambandið.

    Fylgigögn

  8. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 22. september, fundargerð menningarráðs frá 11. september, íþrótta- og útilífsráðs frá 9. og 11. september, leikskóla- og daggæsluráðs frá 14. september, skóla- og frístundaráðs frá 14. september, umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. og 23. september og velferðarráðs frá 9., 16. og 17. september. MSS26010022

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 17:42

Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Silja Sóley Birgisdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar frá 29.09.2026