Borgarstjórn - Borgarstjórn 28.04.2026

Borgarstjórn

Ár 2026, þriðjudaginn 28. apríl, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:03. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir, Marta Guðjónsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Skúli Helgason, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorvaldur Daníelsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 24. apríl, mannréttindaráðs frá 16. apríl, menningar- og íþróttaráðs frá 21. apríl, umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl og velferðarráðs frá 22. apríl. MSS26010022

    - 2. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 24. apríl, stafræn stefna – síðari umræða, er samþykktur með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna.
    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttur óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. ÞON24090056

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðar forsætisnefndar:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að í stafræna stefnu vanti skýrari mælikvarða, ábyrgð og framkvæmdaáætlun svo hún verði raunhæft stjórntæki en ekki aðeins almenn framtíðarsýn. Núverandi markmið, á borð við „framsækna þjónustu“ og „gagnadrifna ákvarðanatöku“, eru of óskýr til að hægt sé að meta árangur. Mikilvægt er að skilgreina mælanleg markmið og lykilmælikvarða fyrir hvert verkefni. Einnig skortir upplýsingar um fjármögnun, kostnaðarmat og forgangsröðun verkefna. Án þess er hætta á að stefnan verði ekki innleidd með markvissum hætti. Þá vantar aðgerðaáætlun með skýrri ábyrgð, tímaáætlun og fjármögnun. Fulltrúarnir leggja áherslu á að ábyrgð á stafrænni umbreytingu verði dreifð á öll svið borgarinnar en ekki bundin eingöngu við þjónustu- og nýsköpunarsvið. Jafnframt þarf að tryggja að fjárhagslegur ábati verkefna skili sér inn á sviðin og að unnið sé í samhengi við fjárhagsáætlun borgarinnar.

    Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttur óháðir borgarfulltrúar leggja fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðar forsætisnefndar:

    Hér er um að ræða mjög óljósa stefnu þar sem ekki er að finna framkvæmdaáætlun, aðgerðaáætlun, fjármögnun eða tímasett mælanleg markmið. Hér er því um að ræða stefnu almenns eðlis þar sem ekki er að finna aðgerðaáætlun, kostnaðarmat, forgangsröðun verkefna né fjármögnun þeirra. Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja því hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:37

Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 28.04.2026 - Prentvæn útgáfa