Borgarstjórn - Borgarstjórn 26.05.2026

Borgarstjórn

Ár 2026, þriðjudaginn 26. maí, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:14. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Einar Þorsteinsson, Ellen Jacqueline Calmon, Friðjón R. Friðjónsson, Helgi Áss Grétarsson, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Marta Guðjónsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Skúli Helgason, Þorvaldur Daníelsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um Græna planið, uppfærða heildarstefnu Reykjavíkur til 2030. MSS22030045

  2. Fram fer umræða um reglulegt samtal forsætisnefndar við verkalýðshreyfinguna. MSS25030107

    -    Kl. 13:10 tekur Helga Þórðardóttir sæti á fundinum og Einar Sveinbjörn Guðmundsson víkur af fundi.

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttir:

    Lagt er til að nöfn á götum við Nýja Landspítalann verði endurskoðuð með það fyrir augum að þær verði kenndar við heilbrigðisstarfsfólk sem lagt hefur stóran skerf af mörkum í þágu lækninga og hjúkrunar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. MSS26050030

    Fylgigögn

  4. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 21. maí.

    -    Kl. 14:20 víkur Líf Magneudóttir af fundi og Stefán Pálsson tekur þar sæti.

    10. liður, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026, er samþykktur.
    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir og Helgi Áss Grétarsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Lagðar fram fundargerðir skóla- og frístundaráðs frá 11. maí 2026 og velferðarráðs frá 6. maí. MSS26010022

    Fylgigögn

  5. Fram fara kveðjuræður borgarfulltrúa við lok kjörtímabilsins 2022-2026. MSS26050071

    Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eftir átta ár í borgarstjórn stendur fyrst og fremst eftir þakklæti. Þakklæti fyrir traustið, samstarfið, samtölin, ágreininginn, lærdóminn og samferðina. Það hefur verið mikill heiður að fá að þjóna Reykjavík og vinna að málum sem skipta borgarbúa máli, s.s. í samgöngum, fjármálum, húsnæðismálum, stafrænni þróun, atvinnumálum, góðum stjórnarháttum og betri þjónustu. Ég hef alltaf trúað á frjálslynda, ábyrga og framsækna borg. Borg sem hugsar stórt, en gleymir ekki hversdagslegri þjónustu. Borg sem byggist upp í litlum skrefum, með samvinnu, þolinmæði og kjarki til að taka erfiðar ákvarðanir til framtíðar. Það sem stendur eftir eru ekki átökin heldur fólkið. Samstarfsfólkið í borgarstjórn, fólk úr öllum flokkum, starfsfólk borgarinnar og borgarbúar sjálfir. Enginn gerir neitt einn í pólitík. Enginn á einn hugmyndirnar, breytingarnar eða árangurinn. Ég kveð borgarstjórn sátt, þakklát og stolt af mörgu sem hefur áunnist. Reykjavík verður aldrei fullkláruð. Hún er lifandi verkefni sem þarf stöðugt nýjar hugmyndir, nýja orku, ný samtöl og nýtt fólk. Kæru íbúar, takk fyrir traustið. Kollegar, takk fyrir samstarfið. Takk fyrir samtölin, lærdóminn og samferðina. Starfsfólki skrifstofu borgarstjórnar og starfsfólki Ráðhússins þakka ég sérstaklega fyrir samstarfið, traustið og vináttuna.

Fundi slitið kl. 16:40

Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 26.05.2026 - Prentvæn útgáfa