Borgarstjórn - Borgarstjórn 21.04.2026
Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 21. apríl, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:02. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Alondra Veronica V. Silva Muñoz, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Kristinn Jón Ólafsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sara Björg Sigurðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Fram fer fyrri umræða um stafræna stefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl 2026.
Samþykkt að vísa stafrænni stefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030 til síðari umræðu. ÞON24090056Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn í borgarstjórn fagnar fyrstu stafrænu stefnu Reykjavíkurborgar og þeirri skýru framtíðarsýn sem hún endurspeglar: Reykjavík sem framsækin borg sem virkar, þar sem stafræn réttindi borgara eru tryggð og enginn er skilinn eftir. Stefnan byggist á fimm meginmarkmiðum: framsækinni og notendamiðaðri þjónustu, þverfaglegu samstarfi og samnýtingu innviða, stafrænni hæfni og borgaravitund, gagnadrifinni og opinni stjórnsýslu og net- og upplýsingaöryggi sem burðarstólpa stafrænna innviða. Sérstök áhersla á innleiðingu NIS2-tilskipunarinnar, stofnun öryggisráðs borgarinnar og aukið gagnsæi tryggir að öryggi og þjónusta haldist í hendur. Meirihlutinn er stoltur af þeirri vegferð sem hafin er og staðfestir einbeittan vilja til að halda áfram á sömu braut, nýta skattfé borgarbúa vel, sýna tíma þeirra virðingu og byggja borgina upp fyrir framtíðina.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að í stafræna stefnu vanti skýrari mælikvarða, ábyrgð og framkvæmdaáætlun svo hún verði raunhæft stjórntæki en ekki aðeins almenn framtíðarsýn. Núverandi markmið, á borð við „framsækna þjónustu“ og „gagnadrifna ákvarðanatöku“, eru of óskýr til að hægt sé að meta árangur. Mikilvægt er að skilgreina mælanleg markmið og lykilmælikvarða fyrir hvert verkefni. Einnig skortir upplýsingar um fjármögnun, kostnaðarmat og forgangsröðun verkefna. Án þess er hætta á að stefnan verði ekki innleidd með markvissum hætti. Þá vantar aðgerðaáætlun með skýrri ábyrgð, tímaáætlun og fjármögnun. Fulltrúarnir leggja áherslu á að ábyrgð á stafrænni umbreytingu verði dreifð á öll svið borgarinnar en ekki bundin eingöngu við þjónustu- og nýsköpunarsvið. Jafnframt þarf að tryggja að fjárhagslegur ábati verkefna skili sér inn á sviðin og að unnið sé í samhengi við fjárhagsáætlun borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að fela borgarstjóra að hefja viðræður við ríki og nágrannasveitarfélög um breytingar á forgangsröðun og fjármögnun verkefna innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, með það að markmiði að setja brýnustu og arðbærustu samgönguverkefni í forgang og tryggja skjótan og mælanlegan árangur fyrir borgarbúa. Sérstök áhersla verði lögð á að: 1. Snjallvæðing umferðarljósa verði sett í algeran forgang og innleidd á öllu höfuðborgarsvæðinu með miðlægu stýrikerfi sem lágmarkar biðtíma og tryggir forgang almenningssamgangna og viðbragðsaðila. 2. Forgangsaðgerðir fyrir almenningssamgöngur verði endurskipulagðar og styrktar, með uppbyggingu hraðvirks og hagkvæms leiðakerfis á sérakreinum þar sem það á við, án þess að þrengja að almennri umferð. Dregið verði úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Ráðist verði í úrbætur á leiðarkerfi, biðskýlum og skiptistöðvum og notendavænna greiðslukerfi innleitt. Gervigreind og tæknilausnir verði notaðar til að telja innstig og greina ferðir strætó strax á næsta kjörtímabili svo tryggja megi öflugra leiðakerfi og gera strætó snjallari. 3. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur á helstu flöskuhálsum, gatnamótum og tengingum, þar sem hægt er að bæta umferðarflæði með einföldum og hagkvæmum aðgerðum. Gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar verði hraðað eftir fremsta megni. 4. Falla skal tafarlaust frá fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi vegna Suðurlandsbrautar. Ekki verði þrengt að almennri umferð á brautinni. Nýjum sérakreinum almenningssamgangna verði þvert á móti komið fyrir án þess að fækka akreinum eða bílastæðum. Lögð verði áhersla á gott aðgengi að atvinnustarfsemi, verslun og þjónustu á svæðinu. Öruggar og skilvirkar göngu- og hjólatengingar verði jafnframt tryggðar. 5. Reykjavíkurborg lýsi því yfir að ráðist verði í undirbúning Miklubrautarganga með það að markmiði að þau verði framkvæmd í einkaframkvæmd utan samgöngusáttmála. Undirbúningur hefjist á þessu ári og að stefnt verði að verklokum árið 2032. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði uppfærð í samræmi við það. 6. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði endurskoðuð í heild, þannig að tryggt sé að tímasetningar standist, kostnaður sé undir stjórn og forgangsröðun verkefna sé í samfellu og tryggi greiðar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. 7. Verkefni samgöngusáttmála verði fjármögnuð án flýti- og umferðargjalda, í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins um að draga úr álögum á borgarbúa.
- Kl. 13:40 víkur borgarstjóri af fundinum og Ólöf Helga Jakobsdóttir tekur sæti.
- Kl. 14:40 tekur Skúli Helgason sæti á fundinum og Pétur Marteinn Urbancic víkur af fundi.Tillagan er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26040030Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti vinstriflokkanna í Borgarstjórn Reykjavíkur hefur enn á ný sýnt að hann hefur hvorki vilja né getu til að leysa umferðarvandann í borginni með því að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins. Tillagan fól í sér raunhæfa og heildstæða nálgun þar sem lögð var áhersla á mælanlegan árangur, úrbætur á flöskuhálsum og skilvirkari uppbyggingu samgönguinnviða. Borgarlína yrði endurskoðuð frá grunni með það að markmiði að innleiða nýtt hagkvæmara hraðvagnakerfi á sérakreinum, sem ekki þrengir að umferð, í góðri samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Með tillögunni var veggjöldum jafnframt hafnað sem fjármögnunarleið fyrir samgöngusáttmálann enda vill Sjálfstæðisflokkurinn ekki hækka álögur á borgarbúa. Ljóst er að umferðarvandi Reykjavíkur versnar ár frá ári og kallar á skýra forgangsröðun, hraðari framkvæmdir og betri nýtingu fjármuna. Þrátt fyrir það virðist meirihlutinn ekki tilbúinn að taka þau skref sem þarf til að bæta stöðuna með afgerandi hætti.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Umræður á borgarstjórnarfundinum sýna brýna þörf á stefnubreytingu í samgöngumálum í Reykjavík. Falla þarf frá áformum um rándýra og óhagkvæma Borgarlínu en stórefla þess í stað núverandi strætisvagnakerfi með skilvirkum aðgerðum. Jafnframt þarf að hraða framkvæmdum við ýmsar stórframkvæmdir eins og t.d. Sundabraut, Miklubrautargöng og gatnamót Reykjanesbrautar-Bústaðavegar. Einnig þarf að ráðast í umfangsmikla snjallvæðingu umferðarljósa í borginni, sem myndi stórauka umferðaröryggi og auka umferðarflæði um tugi prósenta. Undirrituð geta fallist á mörg áhersluatriði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytta forgangsröðun samgönguverkefna en telja þó að ýmsu leyti gengið of skammt í tillögu þeirra. Þar er til dæmis lagt til að „dregið verði úr áherslu á miðjusetningu sérakreina“ Borgarlínu þegar rétt væri að hverfa alveg frá henni. Þá er ekki tekin bein afstaða til borgarlínuverkefnisins í tillögu Sjálfstæðisflokksins heldur einungis kveðið á um að endurskoða eigi tæknileg atriði samgöngusáttmálans. Þá segir í tillögu Sjálfstæðisflokksins að fjármagna eigi verkefni samgöngusáttmálans án flýti- og umferðargjalda án þess að fram komi hvernig eigi þá að fjármagna hina rándýru og óhagkvæmu Borgarlínu. Eftir stendur að Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem tekur skýra afstöðu gegn Borgarlínu en Sjálfstæðisflokkurinn styður verkefnið með vinstriflokkunum og um leið þær skattahækkanir á Reykvíkinga sem það myndi hafa í för með sér.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháðu borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur um nýja samgöngustefnu Reykjavíkurborgar:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að falla frá áformum um svokallaða Borgarlínu. Þess í stað verði þegar hafist handa við að stórbæta almenningssamgöngur með eflingu núverandi strætisvagnakerfis. Jafnframt verði leitast við að hraða framkvæmdum við Miklubrautargöng og endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar-Bústaðavegar, sem og snjallvæðingu umferðarljósa í borginni. Ráðist verði í eftirfarandi aðgerðir til eflingar strætisvagnakerfinu með sérstakri áætlun. Stefnt verði að því að öllum markmiðum aðgerðaáætlunarinnar verði náð fyrir árið 2030. 1. Forgangsakreinar. Ráðist verði í átak við lagningu hægrisettra forgangakreina fyrir strætisvagna á umferðarþungum stöðum þar sem þeir verða helst fyrir töfum. 2. Umferðarljósaforgangur. Forgangur strætisvagna verði tryggður með snjallstýringu umferðarljósa. 3. Biðskýli og skiptistöðvar. Ráðist verði í úrbætur á biðskýlum og skiptistöðvum í borginni. Upphituð biðskýli verði sett upp á fjölförnum biðstöðvum að erlendri fyrirmynd, t.d. við háskóla, framhaldsskóla og aðra fjölmenna vinnustaði og stofnanir. 4. Umbætur á leiðakerfi. Umbætur verði gerðar á leiðakerfi Strætós bs. Meðal annars verði þjónusta bætt í eystri hverfum Reykjavíkur og ýmsar tengingar styrktar. Tímatöflur verði endurskoðaðar í því skyni að auka áreiðanleika kerfisins og tryggja vagnstjórum umsaminn hvíldartíma. 5. Vagnafloti. Hraða þarf endurnýjun vagnaflota Strætó bs. 6. Greiðslukerfi. Núverandi greiðslukerfi verði skipt út fyrir hraðvirkt og notendavænt kerfi. Gjaldskrá Strætó bs. verði endurskoðuð og afsláttarkjör tryggð fyrir fasta viðskiptavini. Borgarstjóra er falið hefja án tafar viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélögin um þessa nýju samgöngustefnu og þær breytingar á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem hún felur í sér.
Tillagan er felld með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins, Viðreisnar og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030063Fylgigögn
-
Fram fer fyrri umræða um stefnu og áætlun um gönguvæna Reykjavík, sbr. 20. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl 2026.
Samþykkt að vísa stefnu og áætlun um gönguvæna Reykjavík til síðari umræðu. MSS24110133Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrsta stefna Reykjavíkur um gönguvæna borg lítur hér dagsins ljós sem fer í kjölfarið í samráð. Sérstök áhersla er á öryggi, aðgengi og vellíðan barna í hverfum borgarinnar. Lagt er upp með stórfellt átak í úrbótum á innviðum fyrir gangandi, bætta vetrarþjónustu fyrir gangandi með sérstökum snjósöfnunarsvæðum sem skerða ekki aðgengi gangandi, betri tengingar fyrir gangandi við almenningssamgöngur og að setja óskastíga inn í gangstéttanetið, aðgerðir til að lækka raunhraða, bæta lýsingu og skapa ánægjulegt umhverfi sem hvetur til göngu. Stýrihópurinn var þess heiðurs aðnjótandi að fá aðstoð Walk21 og Jim Walker sem er helsti sérfræðingur í göngumálum í heiminum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að ráðast í skipulagsbreytingar á miðstöðvum borgarinnar þannig að þeim verði fækkað úr fjórum í tvær og eftir standi ein fjölskyldumiðstöð og ein miðstöð virkni og ráðgjafar. Þá verði ábyrgð á framkvæmd og rekstri málaflokks eldra fólks færð af miðstöðvum inn á skrifstofu málaflokksins á velferðarsviði. Markmiðið með þessari breytingu er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir, auka þjónustu við íbúa inni í hverfum borgarinnar og bæta samþættingu faglegra og fjárhagslegra ákvarðana.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 16:13 víkur Dóra Björt Guðjónsdóttir af fundinum og Magnús Davíð Norðdahl tekur þar sæti.
- Kl. 16:14 tekur borgarstjóri sæti á fundinum og Ólöf Helga Jakobsdóttir víkur af fundi.
- Kl. 16:15 víkur Marta Guðjónsdóttir af fundinum og Helgi Áss Grétarsson tekur þar sæti.
- Kl. 16:20 tekur Andrea Helgadóttir sæti á fundinum og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir víkur af fundi.
- Kl. 17:15 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum og Unnur Þöll Benediktsdóttir tekur þar sæti.Tillögunni er vísað frá með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarsson óháðra borgarfulltrúa. MSS26040027
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn gagnrýnir meirihlutann fyrir að vilja ekki nýta þau tækifæri sem felast í því að ráðast í skipulagsbreytingar á miðstöðvum borgarinnar. Sífellt færri íbúar mæta í miðstöðvarnar til að sækja þjónustu og helst það í hendur við aukna stafræna þjónustu. Framsókn telur að fækkun miðstöðva myndi einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir, auka þjónustu við íbúa inni í hverfum borgarinnar og bæta samþættingu faglegra og fjárhagslegra ákvarðana. Með þessu væri verið að draga úr yfirbyggingu og hagræða um tæpar 700 milljónir sem væri hægt að verja til aukinnar þjónustu við íbúa.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Því ber að halda til haga að fullyrðingar um 700 m.kr. sparnað eru fullkomlega úr lausu lofti gripnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að hefja vinnu við gerð fjárhagslegs reiknilíkans fyrir velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar („velferðarlíkanið Freyja“). Líkanið hafi það að markmiði að: Skilgreina með skýrum og gagnsæjum hætti forsendur fjárúthlutunar innan velferðarsviðs, styðja við markvissari fjármálastjórn og ákvarðanatöku, tryggja jafnræði í þjónustu óháð hverfum og notendahópum og gera kleift að meta áhrif breytinga á þjónustu og umfang með greiningum. Við gerð líkansins verði horft til þeirrar vinnu sem þegar hefur farið fram við þróun fjárhagslíkans í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 17:40 víkur Einar Þorsteinsson af fundinum og Ásta Björg Björgvinsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 17:45 víkur Aðalsteinn Haukur Sverrisson af fundinum og Þorvaldur Daníelsson tekur þar sæti.
- Kl. 17:50 víkur Hjálmar Sveinsson af fundinum og Birkir Ingibjartsson tekur þar sæti.Vísað til borgarráðs. MSS26040048
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Viðreisnar fagnar því að borgarstjórn hafi samhljóða samþykkt að vísa tillögu um gerð fjárhagslegs reiknilíkans fyrir velferðarþjónustu Reykjavíkur til borgarráðs til frekari úrvinnslu. Það er mikilvæg viðurkenning á því að velferðarmálin eru síbreytilegur málaflokkur sem krefst stöðugrar aðlögunar, bæði í þjónustu og fjármögnun. Umfang og eðli verkefna velferðarsviðs hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, meðal annars vegna lýðfræðilegrar þróunar, aukinna verkefna í barnavernd og fjölgunar notenda, þar á meðal flóttafólks. Þessi þróun kallar á skýrari tengingu milli þarfa, þjónustu og fjármögnunar. Með tillögunni er stigið skref í átt að því að byggja upp sambærilegt verklag og þegar hefur gefið góða raun í leik- og grunnskólum borgarinnar, þar sem fjármögnun fylgir breyttum forsendum með gagnsæjum hætti. Slík nálgun styrkir bæði faglega stjórnun og hlutverk borgarstjórnar sem ábyrgðaraðila fjármála. Velferðarlíkanið Freyja er stjórntæki sem getur aukið yfirsýn, stuðlað að jafnræði í þjónustu og bætt undirbúning ákvarðana. Með samhljóða stuðningi er skýr vilji til að þróa áfram ábyrga, gagnsæja og framtíðarmiðaða fjármálastjórn í þágu borgarbúa.
Fylgigögn
-
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta umræðu um stöðu skóla- og íþróttamála í Laugardal.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26020048 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Reykjavíkurborg lýsir því yfir að Miklubrautargöng verði sett í einkaframkvæmd og hefjist vinna við undirbúning þeirra á þessu ári og stefnt verði að því að þeim verði lokið árið 2032. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði breytt til samræmis.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn ellefu atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta málinu. MSS26030065
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháðu borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur um hverfislögreglustöð í Breiðholti:
Borgarstjórn samþykkir að taka upp viðræður við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um starfrækslu hverfislögreglustöðvar í Breiðholti í því skyni að styrkja löggæslu í borgarhlutanum. Stöðin verði starfrækt í anda svonefndrar samfélagslöggæslu og áhersla lögð á að tengja hana skólunum í hverfinu með jákvæðum hætti. Um yrði að ræða samstarfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að Reykjavíkurborg sæi stöðinni fyrir húsnæði eins og gert var þegar hverfislögreglustöð var áður starfrækt í Breiðholti með góðum árangri.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta málinu. MSS25090069
Fylgigögn
-
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta umræðu um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS25120075 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að hefja undirbúning aðgerða til að dreifa umferð betur yfir daginn og draga úr umferðarþunga á háannatímum, með hliðsjón af niðurstöðum skýrslunnar „Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu“, sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í tengslum við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029, og vísa málinu til umhverfis- og skipulagssviðs.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta málinu. MSS26030064
Fylgigögn
-
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa að fresta umræðu um stöðu húsnæðismála skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS25110070 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 15. og 16. apríl 2026.
- Kl. 18:27 víkur Hildur Björnsdóttir af fundinum og Birna Hafstein tekur sæti.
1. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035, er samþykktur með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.11. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, Sigtúnsreitur, breyting á deiliskipulagi, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.12. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, Suðurlandsbraut 18-28 og Ármúli 15-27, breyting á deiliskipulagi, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.13. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, Suðurlandsbraut 30-34 og Ármúli 29-31 (Orkureitur), breyting á deiliskipulagi, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.14. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, Suðurlandsbraut, Hallarmúli, Ármúli og Vegmúli, breyting á deiliskipulagi, er samþykktur með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.17. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, tillaga að reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, uppfærsla 2026, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.22. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026 er samþykktur með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins, Vinstri grænna og Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, Ástu Bjargar Björgvinsdóttur og Unnar Þallar Benediktsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Þorvaldur Daníelsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.29. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, breyting á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.31. liður fundargerðarinnar frá 16. apríl, samþykkt velferðarráðs um breytingu á gjaldskrá veitinga og fæðis, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fram fer síðari umræða um innkaupastefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030 og innkaupareglur, sbr. 36. lið fundargerðarinnar frá 16. apríl. Samþykkt að taka á dagskrá og bæta við innkaupastefnu almennum aðgerðum á árinu 2026 sem snúa að gerð aðgerðaáætlunar fyrir árið 2027.
Liðurinn svo breyttur er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 17. apríl, menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl, skóla- og frístundaráðs frá 13. apríl, stafræns ráðs frá 10. og 15. apríl, umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl og velferðarráðs frá 15. apríl. MSS26010022
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna og Andrea Helgadóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun undir 36. lið fundargerðar borgarráðs:
Framtíðarsýn innkaupastefnu Reykjavíkur 2026-2030 er meðal annars að með skipulögðum hætti geti borgin átt þátt í því að stuðla að bættum aðstæðum á vinnumarkaði, bættu úrvali umhverfisvænnar vöru og þjónustu og ýtt undir nýjar og skapandi lausnir við áskorunum samfélagsins, ásamt því að stuðla að heilbrigðri samkeppni á íslenskum markaði. Endurskoðun innkaupareglna snýr að smávægilegum orðalagsuppfærslum og að styðja við eftirlitshlutverk innkaupa- og framkvæmdaráðs. Samhliða aðgerðum á innleiðingarárinu 2026 er stefnan tekin á að hefja undirbúning á frekari greiningu á markmiðum í stefnum borgarinnar og áætlanagerð næsta árs til að tryggja að þeim markmiðum verði náð með áþreifanlegum hætti í gegnum innkaup á gildistíma hennar. Mat á áhrifum verður einnig að taka mið af því að ekki er í öllum tilfellum hægt að notast við núllkosti sem gera ráð fyrir óbreyttum aðferðum, en samfélagslegar afleiðingar aðgerðaleysis geta verið dýrar, sérstaklega ef reikningurinn er sendur á kynslóðir framtíðar eða ef fé er sótt í einn vasa í borginni og fært í annan. Borgin er aðili að alþjóðlegum samningum, meðal annars um kolefnishlutleysi, til viðbótar við eigin stefnur. Innkaupastefnunni er ætlað að vera verkfæri til að nýta innkaup í þágu þeirra og mun verða unnið út frá þeim markmiðum á gildistímanum.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir liðum 11-14 í fundargerð borgarráðs frá 16. apríl:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun er ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og borgarfulltrúi Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl:
Í ljósi þess að ekki er hægt að nota framleiðslueldhúsið á Vitatorgi á meðan á framkvæmdum stendur við úrbætur þarf að kaupa mat af þriðja aðila til þess að bjóða upp á samfellu í þjónustu. Það er auðséð að það kostar meira að bjóða matinn út en að elda matinn sjálf, af því leiðir þessi hækkun sem fjármagnar aukinn kostnað eingöngu að hluta til. Máltíðir hækka annarsvegar um 90 krónur og 95 krónur og verð fyrir akstur hækkar um 55 krónur. Almennt verð fyrir aðra en þá sem eru með greiðslur lífeyris fer úr 1.755 kr. í 1.915 kr. en fáir hafa verið að kaupa máltíðir á því verði. Þegar framkvæmdum er lokið á Vitatorgi og framleiðslueldhúsið hefur opnað að nýju er mögulega hægt að endurskoða verð aftur í samræmi við framleiðslukostnað. Áhersla borgarinnar er að bjóða upp á góðan mat og að samfella sé í þjónustuveitingu.
Kjartan Magnússon óháður borgarfulltrúi leggur fram svohljóðandi bókun undir liðum 11-14 í fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl:
Fyrirliggjandi tillögur vegna 11.–14. liðar í fundargerð borgarráðs frá 16. apríl kveða á um aðlögun að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínu. Suðurlandsbraut er ein helsta umferðaræð borgarinnar en um hana fara um 25 þúsund bifreiðar á dag. Gatan er mikilvæg tengibraut milli austurs og vesturs og þjónar fjölmennum íbúahverfum og atvinnuhverfum. Tillagan er hluti af þeirri vegferð vinstrimeirihlutans að þrengja að umferð í Reykjavík og auka umferðartafir í borginni. Vinstrimeirihlutinn ætlar sér að taka tvær akreinar af almennri umferð á drjúgum kafla Suðurlandsbrautar og gera þær að sérakreinum fyrir borgarlínu. Jafnframt er ætlunin að fækka stórlega bílastæðum við brautina en þau eru nú þegar af skornum skammti. Undirritaður leggst eindregið gegn slíkum fyrirætlunum. Bent er á að unnt er að koma fyrir sérakreinum fyrir strætisvagna við brautina í stað þess að þrengja að bílastæðum og almennri umferð. Auk þess munu auknar umferðartafir á Suðurlandsbraut leiða til þess að umferð þaðan leiti í meiri mæli inn í nærliggjandi íbúahverfi. Við Suðurlandsbraut eru mörg atvinnufyrirtæki og vinsælir veitingastaðir. Þrenging brautarinnar og mikil fækkun bílastæða myndi torvelda aðgang að fyrirtækjunum og hafa neikvæð áhrif á rekstur þeirra. Mörg fyrirtæki við brautina hafa látið áhyggjur sínar í ljós vegna fyrirhugaðrar fækkunar akreina og bílastæða á svæðinu.
Helgi Áss Grétarsson óháður borgarfulltrúi leggur fram svohljóðandi bókun undir 17. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl:
Frá árinu 2019 hafa afar þröngar og flóknar reglur gilt um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, sem verið hafa til óþurftar og leitt af sér vandræði fyrir marga borgarbúa. Mörg dæmi eru um að bílastæði séu of fá við nýbyggingar, sem valdið hefur íbúum þeirra miklum vandræðum, t.d. í Gufunesi. Þá eru einnig mörg dæmi um að þétting byggðar leiði til aukins skorts á bílastæðum í grónum hverfum vegna óbreytts fjölda og jafnvel fækkunar bílastæða eins og t.d. í Brautarholti, íbúum til ama og óþæginda. Margir byggjendur kvarta yfir því að borgaryfirvöld þvingi þá til að hafa miklu færri bílastæði við nýbyggingar en þörf er fyrir. Brýnt er að einfalda og rýmka þessar reglur til muna. Tillaga vinstrimeirihlutans um breytingar á þeim gengur hins vegar mjög skammt og mun engan veginn vinda ofan af því ófremdarástandi sem nú ríkir að þessu leyti. Afnema þarf reglu um hámarksfjölda bílastæða og svæðaskiptingu en leitast við að tryggja að fjöldi bílastæða sé í samræmi við þarfir íbúa í viðkomandi húsum og hverfum. Eðlilegt væri að kveðið væri á um eitt bílastæði á hverja íbúð að lágmarki og tvö stæði að lágmarki fyrir íbúðir með fjögur herbergi eða fleiri.
Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs frá 15. apríl
- Fundargerð borgarráðs frá 16. apríl
- - 1. liður; húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035
- - 11. liður; Sigtúnsreitur - breyting á deiliskipulagi
- - 12. liður; Suðurlandsbraut 18-28 og Ármúli 15-27 - breyting á deiliskipulagi
- - 13. liður; Suðurlandsbraut 30-34 og Ármúli 29-31 (Orkureitur) - breyting á deiliskipulagi
- - 14. liður; Suðurlandsbraut, Hallarmúli, Ármúli og Vegmúli - breyting á deiliskipulagi
- - 17. liður; tillaga að reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík - uppfærsla 2026
- - 22. liður; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026
- - 29. liður; breyting á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva
- - 31. liður; samþykkt velferðarráðs um breytingu á gjaldskrá veitinga og fæðis
- - 36. liður; innkaupastefna Reykjavíkurborgar 2026-2030 og innkaupareglur, síðari umræða
- Fundargerð forsætisnefndar frá 17. apríl
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 13. apríl
- Fundargerð stafræns ráðs frá 10. apríl
- Fundargerð stafræns ráðs frá 15. apríl
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl
- Fundargerð velferðarráðs frá 15. apríl
Fundi slitið kl. 18:57
Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 21.04.2026 - Prentvæn útgáfa