Borgarstjórn - Borgarstjórn 17.02.2026

Borgarstjórn - Borgarstjórn 17.02.2026

Borgarstjórn

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna:

    Borgarstjórn samþykkir að fela menningar- og íþróttaráði að undirbúa tilraunaverkefni sem feli í sér að hægt verði að nýta frístundastyrk fyrir styttri námskeið en núverandi reglur gera ráð fyrir. Núverandi reglur gera ráð fyrir nýtingu fyrir ákveðna tímalengd þar sem félagslegir þættir eru til hliðsjónar. Í ljósi þess að margt bendir til að tekjulægstu hóparnir eigi síður kost á að nýta styrkinn nema í styttri námskeið, er lagt til að farið verði af stað með umrætt tilraunaverkefni. Áhrifin verði metin sem og nýting frístundastyrksins. Menningar- og íþróttaráði verði falið að leggja fram áfanganiðurstöður eigi síðar en 20. mars 2026 og lokaniðurstöður eigi síðar en 8. maí 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26020075

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við viljum að öll börn og unglingar geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Frístundakortinu er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta, lista og tómstunda. Í gildandi reglum um frístundastyrk er gert ráð fyrir að frístundakortið nýtist vegna námskeiða sem standa yfir tiltekinn lágmarkstíma, með hliðsjón af félagslegum markmiðum og mikilvægi samfellu í starfi. Í sáttmála samstarfsflokkanna er sérstaklega kveðið á um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundakort þannig að heimilt verði að nýta það til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Markmiðið er að draga úr aðstöðumun og auka möguleika barna í viðkvæmri stöðu til að taka þátt í fjölbreyttu starfi en á árunum 2024 og 2025 voru að meðaltali 3.550 börn sem ekki nýttu frístundakortið. Tillaga þessi miðar að því að auka sveigjanleika kerfisins, bæta aðgengi og stuðla að aukinni þátttöku barna í fjölbreyttu frístundastarfi. Með því að hrinda af stað afmörkuðu tilraunaverkefni gefst tækifæri til að meta áhrif aukins sveigjanleika á nýtingu frístundakortsins og kanna hvort breytingin leiði til aukinnar þátttöku barna sem annars stæðu utan skipulagðs starfs. Menningar- og íþróttaráði verður falið að útfæra og kostnaðarmeta efni tillögunnar.

    Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að sjá nýja útfærslu sem hentar mögulega hópi barna og ungmenna sem nú eru ekki að nýta styrk sinn. Vonast fulltrúinn jafnframt til þess að þetta geti jafnvel leitt til þess að þeir sem hefji nú að sækja styttri námskeið geti jafnvel í framhaldi orðið virkir þátttakendur í lengri námskeiðum og virkri hreyfingu. Styttri námskeið geta líka mætt hópi sem hefur ekki færni til að sækja löng námskeið en fá þó að nýta styrk sinn að einhverju leyti. Samhliða breytingunni þarf að horfa til þess hvernig námskeiðshaldari geti óskað eftir að iðkendur geti greitt með styrk fyrir námskeið sem og aukið framboð námskeiða verulega.

    Borgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi tillaga samstarfsflokkanna hefur þann brag á sér að vera útspil til að afla atkvæða í aðdraganda borgarstjórnarkosninga en af tillögunni leiðir að útkoman af henni eigi að vera tilkynnt átta dögum fyrir kjördag. Í gögnum málsins er engin tilraun gerð til að greina hvaða afleiðingar tillagan kunni að hafa á fjárhag Reykjavíkurborgar. Eigi að síður hefur tillagan sitthvað til síns ágætis þar eð það kann að vera skynsamlegt að auka sveigjanleika frístundakortsins, meðal annars til að mæta hagsmunum hóps barna og ungmenna sem hafa minna á milli handanna. Í þessu ljósi styður borgarfulltrúinn að kostir og gallar þessa tilraunaverkefnis verði kannaðir nánar.

    Fylgigögn

  2. Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra, ásamt fylgiskjölum, sem vísað var til borgarstjórnar, sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. febrúar 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar tillögur stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla, dags. 16. febrúar 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Samþykkt. 
    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og borgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er sannfæring samstarfsflokkanna í Borgarstjórn Reykjavíkur að með þessum breytingum á skipulagi leikskólastarfs í Reykjavík séu mörkuð vatnaskil. Breytingarnar fela í sér að boðið verður upp á 36 tíma endurgjaldslausa dvöl fyrir öll leikskólabörn fyrir utan fæðisgjald en tekið er hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun. Þá eru innleiddir nýir afsláttarflokkar sem taka betur mið af raunverulegum aðstæðum einstæðra foreldra, efnaminni foreldra og foreldra barna með lítið bakland. Gjöldin hækka hjá þeim sem hæstar hafa tekjurnar. Lagðar eru fram nýjar tillögur um systkinasameiningu, umsjónarmenn leikskólahúsnæðis, aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk og umsækjendur með annað móðurmál en íslensku, einn lokunardag í vetrarfríi og starfsþjálfun. Markmið vinnunnar er að bæta náms- og starfsaðstæður í leikskólum Reykjavíkur, styrkja faglegt starf, bæta mönnun og minnka álag, samhliða því að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í starfi leikskólans. Tillögurnar byggja á þverpólitísku starfi sem kynnt var á haustdögum og fór í kjölfarið í umfangsmikið samráðsferli við foreldra, starfsfólk, leikskólastjórnendur og verkalýðsfélög. Unnið var úr tæplega 200 umsögnum sem bárust í gegnum samráðsgáttina. Vandlega verður fylgst með innleiðingu aðgerðanna, árangur metinn reglulega og brugðist við ef þörf krefur.

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja fyrirliggjandi tillögur fela í sér ýmsar jákvæðar breytingar, svo sem innleiðingu systkinaforgangs og aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk. Að öðru leyti lýsa fulltrúarnir verulegum áhyggjum af þeirri þjónustuskerðingu og því óhagræði sem breytingarnar geta skapað fyrir fjölskyldur í borginni. Virðist meirihlutinn keppa að því að bjóða ódýrustu leikskólavistina á höfuðborgarsvæðinu, þegar eðlilegra væri að keppa að því að bjóða bestu þjónustuna. Fulltrúarnir draga í efa að fyrirliggjandi gjaldskrárbreytingar muni stórbæta starfsumhverfi leikskóla, en telja mikilvægustu aðgerðina til að endurheimta fagfólk aftur, að leikskóladagurinn verði endurskipulagður til samræmis við grunnskólann. Þá leggjast fulltrúarnir gegn þjónustuskerðingum í vetrarleyfum en leikskólaþjónusta hefur verið skert verulega á síðustu árum. Foreldrar með börn í grunnskóla og leikskóla geta þurft að leysa allt að 70 frídaga barna sinna árlega, en fólk á almennum vinnumarkaði nýtur aðeins 24-30 frídaga árlega. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að leikskólaþjónusta í Reykjavík sé fjölskylduvæn, fjölbreytt og sveigjanleg. Fjölskyldum bjóðist úrval valkosta, svo sem borgarreknir leikskólar, sjálfstætt starfandi leikskólar, daggæsla á vinnustöðum og heimgreiðslur, svo dæmi séu tekin.

    Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Að frumkvæði Framsóknar var hafin vinna fyrr á kjörtímabilinu við að greina kosti og galla þeirra leiða sem sveitarfélög höfðu farið til þess að bæta starfsaðstæður í leikskólum. Framsókn telur afar brýnt að bæta starfsaðstæður leikskólakennara og skapa hvata til þess að foreldrar skrái réttan dvalartíma barna. Ný gjaldskrá er mun skárri er sú sem kynnt var fyrir áramót og Framsókn mótmælti harðlega. Óljóst er þó hvort gjaldskráin nái þeim tilgangi að stytta dvalartíma barna og þannig bæta starfsaðstæður barna. Framsókn fagnar aukinni íslenskukennslu fyrir leikskólastarfsfólk en telur að viðmiðið hefði mátt vera þyngra. Einnig vantar viðmið um fjölda starfsfólks með góða íslenskukunnáttu á hverri deild. Tillaga um markvissari nýliðaþjálfun er til bóta. Framsókn furðar sig á tillögu um „systkinasameiningu“, í henni felst engin breyting á núverandi fyrirkomulagi. Þá er ekkert komið inn á bættan leikfanga- eða námsgagnakost né hljóðvist eða birtu í leikskólum sem hefur mikil áhrif á starfsumhverfi leikskóla. Framsókn leggst gegn því að bætt sé við lokunardegi í vetrarfríi enda felur það í sér skerðingu á þjónustu við fjölskyldur. Af þessum sökum situr Framsókn hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að stýrihópurinn hafi hlutstað á tillögur Viðreisnar við úrbætur tillögunar. Enn standa eftir áhyggjur af stöðugum hvata til fækkunar vistunartíma og vill Viðreisn fremur sjá áherslur á að bjóða gæðaþjónustu lengur og með sveigjanlegri opnunartíma til að geta betur mætt ólíkum þörfum íbúa borgarinnar. Umsjónarmenn fasteigna eru frábær viðbót og takmarkar vonandi lokanir vegna viðhalds og viðgerða. Einnig gerir fulltrúinn athugasemd við að horft sé til fjölskyldunúmers er varðar systkini við úthlutun leikskólaplássa. Nútímafjölskyldur falla oft undir ólík fjölskyldunúmer og væri því betra að horfa til þess í víðara samhengi, s.s. með forsjágrunn, og þátturinn sé þannig ekki bundinn einum þætti. Þá verður að segjast að afsláttarkerfið minnir óneitanlega á tekjutengingu en áhrif slíkrar tengingar geta verið neikvæð og dregið úr atvinnuþátttöku tekjulágra og ber að varast. Að lokum virðist mikið kapp lagt á að gjöldin séu lægri en hæstu gjöld annarra sveitarfélaga óháð kostnaði við vistunina sem verður að teljast einkennilegt þegar horft er til eins stórrar rekstrareiningar og leikskólar eru í borgarkerfinu. Gjaldfrjáls leikskóli 36 tíma á dag er ekki sú sýn sem fulltrúinn hefur á það hvernig best megi reka þennan þjónustulið.

    Borgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ágreiningslaust er að bæta verði náms- og starfsumhverfi leikskóla. Fyrirliggjandi tillögur stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla eru yfirgripsmiklar. Um verulegar breytingar er að ræða miðað við eldri tillögur sama stýrihóps (MSS25050076) frá október 2025. Borgarfulltrúar fengu fyrst tækifæri í morgun, þriðjudaginn 17. febrúar, til að kynna sér tillögurnar. Þótt sumt í tillögunum hugnist borgarfulltrúanum þá er ólíklegt að þær gangi nógu langt til að draga verulega úr mannekluvanda leikskólakerfisins. Einnig er kostnaðaraukinn við tillögurnar líklegast vanmetinn. Með hliðsjón af þessu treystir borgarfulltrúinn sér ekki til að styðja tillögurnar og situr hjá.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarstjórn samþykkir að fela Reykjavíkurborg að taka þegar í stað til heildstæðrar endurskoðunar þær breytingar sem nýlega hafa verið gerðar á umferðarskipulagi við Höfðabakka, þar á meðal við Bæjarháls, Dverghöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú. Endurskoðunin skal sérstaklega taka til: A. Áhrifa framkvæmdanna á umferðarflæði, þar á meðal myndun umferðarteppa eftir Höfðabakka, inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku. B. Áhrifa á umferðaröryggi, bæði á stofnæðum og innan íbúðahverfa, þar sem umferð hefur í auknum mæli leitað inn í Höfðahverfi/Ártúnshöfða, Bryggjuhverfi og Ártúnsholt. C. Áhrifa breytinganna á neyðarakstur, sérstaklega með tilliti til viðbragðstíma slökkviliðs, sjúkrabíla og lögreglu frá slökkvistöðinni við Tunguháls. D. Áforma um fjarlægingu beygjuvasa við Bæjarháls og hvort slík ráðstöfun samræmist markmiðum um skilvirkni, öryggi og greiðar samgöngur á einni af lykiltengingum borgarinnar. Borgarstjórn felur jafnframt viðeigandi sviðum borgarinnar að eiga formlegt og skjalfest samráð við Íbúasamtök Grafarvogs, Árbæjar og Norðlingaholts og aðra hagsmunaaðila. Svara þarf án tafar þeirri formlegu áskorun sem Íbúasamtök Grafarvogs hafa þegar sent borgarfulltrúum og leggja fram tillögur að úrbótum sem miða að því að endurheimta eðlilegt umferðarflæði og tryggja öryggi allra vegfarenda.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. MSS26020076

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillögu Sjálfstæðisflokksins, um að taka til heildstæðrar skoðunar þær breytingar, sem hafa nýlega verið gerðar á umferðarskipulagi við Höfðabakka, þ. á m. við Bæjarháls, Dverghöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú, hefur nú verið vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Áður hafði meirihluti Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna fellt tillögu Sjálfstæðisflokksins um að hverfa frá þrengingu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls. Ófremdarástand ríkir á þeim gatnamótum, sem hefur í för með sér verulegar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar. Þrenging gatnamótanna, sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðust gegn á sínum tíma, var beinlínis gerð í því skyni að tefja fyrir umferð. Um leið og beygjuakreinunum var lokað jukust umferðartafir gífurlega á gatnamótunum og þar er nú hreinasta umferðaröngþveiti á annatímum. Unnt er að stórbæta öryggi gangandi og hjólandi á gatnamótunum án þess að þrengja þau og fjarlægja umræddar beygjuakreinar. Brýnt er að skoða áhrif allra áðurnefndra breytinga á umferðarflæði og finna leiðir til úrbóta, t.d. vegna umferðarteppu á Höfðabakka og öðrum nálægum umferðaræðum, sem og vegna aukinnar umferðar í íbúahverfum. Þá þarf að skoða áhrif breytinganna á neyðarakstur á svæðinu, þ.e. slökkviliðs, sjúkrabifreiða og lögreglu.

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að endurnýja umferðarljósabúnað við Höfðabakka til að snjallvæða umferðarljósastýringarnar en búið er að margfalda fjármagn sem sett er í snjallvæðingu með 400 milljónum í ár. Búið er að endurnýja umferðarljósabúnað og stýringu á gatnamótum Höfðabakka við Stórhöfða, Dverghöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls. Það er á öllum gatnamótunum nema við Bíldshöfða. Vinna þar hefur frestast út af frosti í jörðu þar sem nauðsynlegt er að ráðast þar í jarðvinnu til að endurnýja lagnaleiðir, og ekki hægt að klára samstillingu gatnaljósanna á meðan. Framkvæmdum er sumsé ekki lokið en þegar framkvæmdum lýkur eiga gatnamótin að verða skilvirkari með meiri afkastagetu. Framkvæmdir valda alltaf ónæði og þær eru tafasamar, hvort sem við erum sammála eða ósammála markmiðum þeirra. En þær eru nauðsynlegar ef við ætlum að stuðla að framþróun og bættum innviðum. Á sama tíma er verið að bæta öryggi fyrir gangandi og hjólandi, ekki síst börn sem munu fara þarna um og fólk á leið til vinnu. Þarna er að byggjast upp heilt hverfi, Ártúnshöfðinn, svo umferð gangandi er að stóraukast þarna og við þurfum að bregðast við því.

    Borgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga um endurskoðun umferðarskipulags við Höfðabakka og Bæjarháls er ítarleg. Fyrir tillögunni eru færð góð rök. Mikilvægt er að borgaryfirvöld mæti í þessum efnum hagsmunum fólks og fyrirtækja í hverfum á borð við Árbæ og Grafarvog. Mistök eru til þess að læra af. Góður bragur væri á því að umhverfis- og skipulagssvið ynni hratt að því að bæta umferðarskipulagið við jafn mikilvæg gatnamót og þau við Höfðabakka og Bæjarháls.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að borgin fjölgi ungmennahúsum þannig að þau verði að lágmarki tvö og staðsett í sitt hvorum borgarhluta. Annað þeirra verði staðsett í miðborginni með skýra áherslu á menningu, listir og skapandi starf fyrir ungt fólk. Hitt ungmennahúsið verði áfram staðsett á núverandi stað. Jafnframt er lagt til að menningar- og íþróttasviði, í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið, verði falið að finna hentugt húsnæði í miðborginni fyrir starfsemina. Markmið tillögunnar er að skapa aukin tækifæri fyrir ungt fólk til þátttöku í menningu og listum, efla félagslega þátttöku og bregðast markvisst við þeim vanda sem felst í auknu atvinnuleysi og vaxandi hópi ungs fólks sem er ekki í námi, starfi eða annarri virkni. Einnig er lagt til að starfsemi ungmennahúsanna nái til aldurshópsins 16-30 ára í samræmi við evrópsk viðmið um skilgreiningu á ungmennastarfi.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs. MSS26020077

    Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vill fjölga ungmennahúsum borgarinnar þannig að þau verði tvö, eitt í austurhluta borgarinnar og annað í vesturhluta borgarinnar, með það að markmiði að auka aðgengi ungs fólks að ungmennahúsi. Það hús sem lagt er til að staðsett verði í miðborginni er samkvæmt tillögunni ætlað að vera með áherslu á skapandi greinar til að styðja betur við menningarstarf Hins hússins. Jafnframt er lagt til að viðmiðunaraldurinn verði rýmkaður þannig að Hitt húsið þjónustu 16-30 ára í samræmi við Evrópuviðmið um ungmennastarf. Þá gerir tillagan ráð fyrir því að starf Hins hússins verði eflt með það að markmiði að grípa ungt fólk í vanvirkni betur en atvinnuleysi ungs fólks hefur aukist og fjölgun hefur átt sér stað í NEET hópnum (ungt fólk sem ekki er í virkni, vinnu eða námi). Umræðan í borgarstjórn ber ekki með sér mikinn áhuga meirihlutans á að fjölga ungmennahúsum í borginni en Framsókn vonar að tillagan fái góðan framgang í borgarráði.

    Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgin þarf að leita allra leiða til að efla unga fólkið okkar á gerbreyttum tímum. Með ungmennahúsi er átt við börn á aldrinum 16 til 18 ára. Frábært væri ef þessi tillaga yrði rýnd vel og myndi fulltrúi Viðreisnar vilja sjá starfið mun útbreiddara en lagt er til. Sem og að efla þjónustu fyrir 10 til 12 ára, en þarna eru tvö göt í þjónustu borgarinnar sem þarf að mati fulltrúa Viðreisnar að fylla í fljótt og örugglega. Bæði aldursbilin eru miklir mótunartímar í lífi ungs fólks.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um þáttöku barna með fötlun í íþróttastarfi í Reykjavík. MSS26020078

    Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar þakkar kærlega fyrir góð viðbrögð við umræðunni, sjaldan hefur fötluð börn borið jafn oft á góma á borgarstjórnarfundi, en þau komu upp í flestum málum í dag. Vonast fulltrúinn eftir að umræðurnar kveiki neista og áhuga á að gera betur, ekki verði farið í frekari greiningar heldur hafist handa við að auka möguleika fatlaðra barna til að taka þátt í íþróttum víða um borg. Sem og að vinna að aukinni fræðslu og þekkingu þvert á menntastig.

  6. Umræðu um stöðu húsnæðismála skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs er frestað. MSS25110070

  7. Umræðu um íbúalýðræði í Reykjavík frestað með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar. MSS25030069

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarstjórn samþykkir að taka upp viðræður við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um starfrækslu hverfislögreglustöðvar í Breiðholti í því skyni að styrkja löggæslu í borgarhlutanum. Stöðin verði starfrækt í anda svonefndrar samfélagslöggæslu og áhersla lögð á að tengja hana skólunum í hverfinu með jákvæðum hætti. Um yrði að ræða samstarfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að Reykjavíkurborg sæi stöðinni fyrir húsnæði eins og gert var þegar hverfislögreglustöð var áður starfrækt í Breiðholti með góðum árangri.

    Samþykkt að fresta tillögunni með með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar. MSS25090069

    Fylgigögn

  9. Umræðu um tillögu að nýju deiliskipulagi við Holtsgötu 10-12 og Brekkustíg 16 er frestað með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar. MSS25120074

  10. Umræðu um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd er frestað með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar. MSS25120075

  11. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 5. og 12. febrúar 2026. MSS26010002
    8. liður fundargerðar borgarráðs frá 5. febrúar, flöggun á fána Grænlands við Ráðhús Reykjavíkur, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar.
    Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26010133
    10. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. febrúar, tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum borgarráðs um veitingastaði og gististaði, er samþykktur með 17 atkvæðum Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar og Skúla Helgasonar borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Alexöndru Briem borgarfulltrúa Pírata, borgarfulltrúa Viðreisnar, Flokks fólksins, Vinstri grænna og borgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar gegn fjórum atkvæðum, Guðnýjar Maju Riba og Sabine Leskopf borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Magnúsar Davíðs Norðdahl borgarfulltrúa Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Andrea Helgadóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25090023

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun undir 20. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. febrúar:

    Unnið er hörðum höndum að því að koma fullri matarþjónustu aftur af stað, enda er það mörgum afar mikilvægt að geta borðað hádegismat í góðum félagsskap.

    Guðný Maja Riba og Sabine Leskopf borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata leggja fram svohljóðandi bókun undir 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. febrúar:

    Mótatkvæði borgarfulltrúanna lýtur einungis að 5. lið tillögunnar, þar sem lagt er til að 11. gr. verði breytt þannig að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði verði heimilar að uppfylltum tilteknum skilyrðum í stað þess að vera bannaðar. Borgarfulltrúarnir leggjast gegn þeirri breytingu með vísan til lýðheilsusjónarmiða og þess að börn og ungmenni sækja íþróttaviðburði í ríkum mæli. Að okkar mati er mikilvægt að íþróttaviðburðir, sem eru vettvangur barna og fjölskyldna, séu áfengislausir.

    Andrea Helgadóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúinn kýs að sitja hjá í afgreiðslu málsmeðferðarreglna vegna þess að hann telur að áfengisneysla ætti alls ekki að vera sjálfsagður hluti þeirrar menningar sem íþróttaáhorf og -þátttaka er. Áfengisdrykkja á íþróttaviðburðum og þar af leiðandi innan um börn er óásættanleg og erfitt að samþykkja tillögu um að draga til baka bann við því.

    Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. febrúar:

    Framsókn samþykkir þessar breytingar en bendir á að óþarfi er að lengja afgreiðslutíma umsókna. Frekar ætti hraða afgreiðslu mála. Þá setur Framsókn þann fyrirvara við afgreiðslu málsins sem varðar áfengisveitingar í íþróttamannvirkjum að ef upp koma brot á þessum reglum þá verði ráðist í endurskoðun á regluverkinu og áfengisveitingar bannaðar aftur. Niðurstaðan byggir á trausti og mikilvægt er að íþróttafélögin standi undir því.

    Fylgigögn

  12. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 13. febrúar, mannréttindaráðs frá 5. febrúar, skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar, umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. og 11. febrúar og velferðarráðs frá 4. og 10. febrúar. MSS26010022

    Fylgigögn

  13. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 17. febrúar 2026. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 21:04.

Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir

Björn Gíslason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 17.02.2026 - Prentvæn útgáfa