Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 16. júní, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björg Magnúsdóttir, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Birkir Ingibjartsson, Bjarni Fritzson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björn Gíslason, Brynjar Níelsson, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir og Stein Olav Romslo.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að innleiða símafrí í grunnskólum Reykjavíkur haustið 2026 og mæla áhrif þess á námsárangur og líðan barna og fagumhverfi í samstarfi við háskólasamfélagið.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060098Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fagnar samþykkt tillögu um símafrí í grunnskólum borgarinnar. Með símafríi er átt við að nemendur noti ekki eigin farsíma eða snjalltæki á skólatíma, þar með talið í frímínútum og hádegishléum, nema með sérstöku leyfi starfsfólks eða vegna skilgreindra undantekninga. Notkun snjallsíma er stór þáttur í daglegu lífi barna og ungmenna og hafa vaknað mikilvægar spurningar um áhrif símanotkunar á skólastarf, einbeitingu, samskipti nemenda og velferð. Skólinn á að vera griðastaður þar sem börn geta einbeitt sér að námi, þjálfað félagsfærni og tekið virkan þátt í skólasamfélaginu án stöðugs áreitis frá snjalltækjum. Áhrif símafrísins verða metin með skipulegum hætti í samstarfi við háskólasamfélagið á tveggja ára tímabili, en við matið verður meðal annars horft til námsárangurs, starfsumhverfis kennara og hvaða áhrif símafríið hefur á líðan nemenda.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar styðja að skólar setji sér skýrar reglur um notkun síma og snjalltækja á skólatíma. Raunin er að langflestir skólar hafa nú þegar gert það. Við höfum þó áhyggjur af því að enn eitt verkefnið verði lagt í hendur kennara sem eru nú þegar undir gríðarlegu álagi í sínu starfi. Það er mikilvægt að útfærslan verði ákveðin í samstarfi við bæði skólasamfélagið og foreldra.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Affarasælast er að treysta skólasamfélaginu, nemendum og foreldrum þeirra, stjórnendum, kennurum og starfsfólki til að útfæra snjallsímanotkun nemenda á skólatíma og í skólastarfi. Nú þegar eru reglur um símanotkun í langflestum ef ekki öllum grunnskólum Reykjavíkur. Drög að reglugerð stjórnvalda hafa verið sett fram og eru nú í samráðsgátt. Margar spurningar vakna: Er það verkefni borgarstjórnar og stjórnvalda að taka fram fyrir hendurnar á fagfólki í grunnskólum og íhlutast um það hvernig skóladegi nemenda og skólastarfi er háttað að öllum forspurðum og án samtals? Er ástandið þannig að það er nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að vera með slíka afskiptasemi og forræðishyggju? Verða þau úrlausnarefni sem steðja að ungu fólki í dag í sínu námi leyst með símabanni á skólatíma? Vinstrið telur að áhrif tækninnar og mótun samfélagsmiðla á fólk og samfélög sé stórt viðfangsefni sem þarfnast umræðu, rannsókna og fræðslu. Gjalda skal varhug við einföldum lausnum við flóknum viðfangsefnum samtímans.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands styður fyrirliggjandi tillögu og fagnar því að unnið verði að mótvægisaðgerðum samhliða símafríi til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og efla virka þátttöku í skólasamfélaginu með fjölbreyttri afþreyingu. Ljóst er að símafrí felur í sér töluverða breytingu á lífi barna og ungmenna og mikilvægt er að styðja við farsæla innleiðingu. Þetta verður að vera samstillt átak og leggur fulltrúinn áherslu á að farið verði í samráð við skólastjórnendur um samræmt fyrirkomulag um hvar og hvernig tækin skulu vera geymd í stað þess að fela hverjum og einum skóla að finna eigin reglur. Heilt á litið mun tillagan fela í sér jákvæða breytingu á skólastarfi ef innleiðing er skipulögð og markviss.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna greiningu á helstu áhrifum mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu (ESB) og upptöku evru á fjárhag, fjárfestingargetu og innviðauppbyggingu Reykjavíkurborgar. Í ljósi þess að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi er mikilvægt að dregin verði upp skýr mynd af hagsmunum sveitarfélagsins fyrir íbúa Reykjavíkur. Borgarstjóra er falið að vinna erindisbréf sem lagt verður fram í borgarráði en í hópnum skulu m.a. sitja sérfræðingar af fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar auk þess sem gera skal ráð fyrir aðkomu sérfræðinga á sviði Evrópumála og hagfræði, s.s. frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og/eða hugveitunni Evrópustraumum. Gera skal ráð fyrir að hópurinn skili borgarstjóra stuttri, hnitmiðaðri samantekt eigi síðar en 14. ágúst næstkomandi. Gera skal ráð fyrir kostnaði vegna sérfræðinga utan stjórnkerfis borgarinnar, sbr. 6. gr. reglna um starfs- og stýrihópa, sem rúmast innan fjárhagsramma borgarráðs.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með sextán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Sósíalistaflokks Íslands gegn fimm atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar að vísa tillögunni frá.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060099Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Þjóðaratkvæðagreiðslan sem fram fer 29. ágúst nk. snýr að því hvort hefja eigi að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu, en ekki að því hvort Ísland gangi í Evrópusambandið. Tillagan byggir því á forsendum sem ekki liggja fyrir. Reykjavíkurborg hefur hvorki sérstakt hlutverk né sérstöðu við mat á áhrifum hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu umfram önnur sveitarfélög landsins. Ef og þegar tilefni skapast til að meta áhrif mögulegrar aðildar eða upptöku evru á sveitarfélög landsins væri eðlilegra að slík vinna færi fram á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga þannig að tryggt sé samræmt og faglegt mat á hagsmunum sveitarfélaga um land allt. Með hliðsjón af framangreindu telur meirihlutinn ekki ástæðu til að skipa sérstakan starfshóp á vegum Reykjavíkurborgar vegna málsins á þessu stigi.
Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn telur að forgangsverkefni borgarinnar eigi að vera hagræðing í rekstri frekar en greining á óvissum framtíðarútkomum. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst í þá átt að halda áfram aðildarviðræðum við ESB, telur Miðflokkurinn tímabært að hefja slíkar greiningar. Að stofna starfshóp á þessum tímapunkti er sóun á almannafé.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokksins bendir á að tímasetning Samfylkingarinnar er furðuleg. Betra hefði verið ef þessi tillaga hefði verið sett fram fyrr í vor ef setja ætti skýra mynd fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Nú er ansi knappur tími til greina möguleg áhrif aðildar á hagsmuni Reykjavíkur fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna ef markmiðið er heildrænt mat. Umfram þá þætti sem kveðið er á um í tillögunni eru fjölmargir aðrir þættir sem er nauðsynlegt að skoða til að fá heildstæða mynd af áhrifunum. Meðal annars þyrfti að greina hvernig aðild hefði áhrif á launakjör og launaþróun starfsfólks Reykjavíkur, þ.m.t. áhrif á samningsstöðu stéttarfélaganna. Einnig þyrfti að kanna áhrif á stjórnsýsluna, hvernig valdframsali yrði háttað og almennt hvernig aðild hefði áhrif á lýðræðislega stjórn sveitarfélagsins. Með aðild að Evrópusambandinu myndum við ganga inn í regluverk sambandsins og því þyrfti að athuga hvernig það hefði áhrif á innkaupaferli, útboðsreglur og möguleika sveitarfélagsins til að innvista þjónustu. Aðild að Evrópusambandinu mun ekki hafa afmörkuð áhrif á Reykjavík heldur væri um að ræða breytingar þvert yfir ríki, sveitarfélög og á lífskjörum almennings. Ef niðurstaðan í ágúst verður já verður nauðsynlegt að skoða áhrifin á heildstæðan hátt og ætti því tillagan meira erindi í gegnum Samband íslenskra sveitarfélaga, samstarf við ríkið og við hagsmunasamtök almennings.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- og skipulagsráði að móta og afgreiða tillögur sem hafa það að markmiði að leysa úr fjölþættum áskorunum og vandamálum sem snúa að bílastæðamálum í Reykjavík. Leitast verði við að mæta þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið frá íbúum og atvinnurekendum í borginni. Með samþykktinni felur borgarstjórn umhverfis- og skipulagsráði að móta og afgreiða tillögur sem snúa meðal annars að eftirfarandi breytingum: 1. Gjaldskyldutími bílastæða í miðborg verði styttur í samráði við hagaðila og íbúa. 2. Einfalda fyrirkomulag rafrænna greiðslumáta vegna bílastæða í miðborg. 3. Reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar verði afnumdar og aukinn sveigjanleiki tryggður svo unnt verði að meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig. 4. Kortleggja hvar koma má bílastæðum aftur í notkun sem nú eru ekki aðgengileg í miðborg. Samhliða verði skilgreindar heimildir til aðstöðusköpunar fyrir veitingamenn á afmörkuðum svæðum. Metið verði hvort slík aðstaða eigi einungis að vera heimil yfir sumarmánuðina. 5. Tryggður verði 90% afsláttur af gatnagerðargjaldi á stæðum í bílakjallara. 6. Bæta lýsingu og eftirlit í bílastæðahúsum á vegum Bílastæðasjóðs. 7. Eiga samtal við hagaðila um ný sleppistæði fyrir sendla og vörudreifingu í miðborginni svo greiða megi fyrir afhendingu vara.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 14:20 tekur Sanna Magdalena Mörtudóttir sæti á fundinum og Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir víkur af fundi.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins MSS26060100Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á að Reykjavík verði borg sem þjónar fjölbreyttum þörfum íbúa, gesta og atvinnulífs. Reglur um bílastæði hafa verið meðal þeirra mála sem íbúar og fyrirtæki hafa hvað oftast bent á að þurfi að endurskoða. Með þessari tillögu er stigið skref í átt að notendavænna og sveigjanlegra fyrirkomulagi sem tekur mið af aðstæðum í borginni. Markmið tillögunnar er að bæta aðgengi að miðborginni, styrkja atvinnulíf, auka öryggi og þjónustu í bílastæðahúsum og einfalda líf borgarbúa. Jafnframt er lögð áhersla á að ákvarðanir um framtíðarfyrirkomulag verði unnar í samráði við íbúa og hagaðila. Þá verður uppbyggingaraðilum gert auðveldara fyrir að þróa sín verkefni og taka mið af þörfum markaðarins. Góð borg þarf að virka fyrir alla borgarbúa og alla samgöngumáta. Tillagan endurspeglar þá sýn að jafnvægi, skynsemi og notagildi eigi að vera leiðarljós í þróun borgarumhverfisins í Reykjavík.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillaga nýs meirihluta um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík er um margt ágæt þó sum atriði tillögunnar orki tvímælis og taki á atriðum sem nýlega hefur þegar verið samþykkt að taka til endurskoðunar, t.a.m. er varðar gjaldskyldu bílastæða í miðborginni. Að sleppa hámarksfjölda bílastæða á nýbyggingarreitum lausum mun skapa óvissu í skipulagsgerð og ekki einfalda þá þegar flóknu vinnu sem deiliskipulagsvinna getur oft verið. Liður nr. 4 í tillögunni vekur ugg um að nýr meirihluti ætli að taka til baka þær breytingar í miðborginni þar sem mannlífinu hefur verið gefið aukið pláss. Mikilvægt er að tryggja göngugötur áfram í sessi og að áætlanir um stækkun gönguvænna svæða haldi.
Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Að því er varðar 4. tölulið tillögunnar leggur Miðflokkurinn áherslu á að skýrt verði kveðið á um að fjarlægðir verði aðskotahlutir sem komið hefur verið fyrir í bílastæðum miðbæjarins í þeim tilgangi að ekki sé hægt að leggja þar.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu þessarar tillögu vegna þess að um er að ræða fjölbreyttar tillögur og afstaða er ólík í mismunandi málum. Stytting gjaldskyldu er af hinu góða og löngu tímabært að einfalda greiðslumáta. Ég hvet meirihlutann til að innleiða eigið bílastæðaforrit til að sleppa við þjónustugjöld, en Sósíalistaflokkurinn hefur þegar hannað grunnkóða sem stendur borginni til boða. Afnám reglna um hámarksfjölda stæða við nýbyggingar vekur hins vegar áhyggjur. Það býður upp á óreiðu og skapar óskilvirkt ferli ef umhverfis- og skipulagsráð á að meta hvert tilfelli sérstaklega. Betra væri að endurskoða reglurnar frekar en að afnema þær alveg. Kortlagning ónotaðra stæða er sjálfsögð en mörg bílastæði hafa verið fjarlægð vegna öryggissjónarmiða og ríkari áhersla ætti að vera á betri nýtingu á gömlu stæðunum. Varðandi 90% afslátt af gatnagerðargjöldum á stæðum í kjallara á ekki að gilda jafn mikill afsláttur fyrir kjallara í íbúðarhúsum og bílastæðahúsum í hagnaðarskyni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins:
Lagt er til að mannréttindaráð Reykjavíkur verði lagt niður, verkefni þess flutt til velferðarráðs og eftir atvikum menningarráðs. Forsætisnefnd er falið að vinna að breytingum á samþykktum velferðarráðs og menningarráðs eftir því sem þurfa þykir, í samráði við mannréttindaskrifstofu, velferðarsvið og menningar- og íþróttasvið. Tillögu að slíkum breytingum skal leggja fram til afgreiðslu á fundi borgarstjórnar í september nk.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með fimmtán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands að vísa tillögunni til meðferðar stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. MSS26060101Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar telja að það hafi verið farsælt skref að stofna mannréttindaráð og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Það er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að tryggja jafnrétti kynjanna og skipa þeim hópum sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu verðugan sess í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Við köllum eftir skýrleika í tillögunni um hvað sparast með niðurlagningu mannréttindaráðs og mannréttindaskrifstofu þar sem verkefnin eiga að flytjast á önnur svið.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skrifstofa mannréttinda og mannréttindaráð halda utan um mikilvæg verkefni, bæði lögbundin og ólögbundin, á sviði jafnréttismála, í málefnum hinsegin fólks, ofbeldisvörnum, í málefnum fatlaðs fólks, innflytjenda og fólks með erlendan bakgrunn í þjónustu hjá borginni en einnig þeirra sem eru starfsmenn borgarinnar. Flest verkefnanna eru lögbundin og því ekki hægt að leggja þau niður og engan veginn er boðlegt að ætla jafn mikilvægu og verkefnahlöðnu velferðarsviði og -ráði að taka við jafn flóknum og mikilvægum málaflokkum til viðbótar við sín yfirdrifnu verkefni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:
Borgarstjórn samþykkir að fela skóla- og frístundasviði og fjármála- og áhættustýringarsviði að vinna tímasetta kostnaðaráætlun um uppfærslu, breytingar eða stækkun skólamötuneyta og hvernig megi lagfæra aðstöðu þeirra svo unnt sé að elda skólamáltíðir á staðnum. Áætlunin og fjárfestingin taki til allra borgarrekinna leik- og grunnskóla.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:
Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði, skóla- og frístundasviði og fjármála- og áhættustýringarsviði að vinna kostnaðaráætlun um uppfærslu, breytingar eða stækkun skólamötuneyta og hvernig megi lagfæra aðstöðu þeirra svo unnt sé að elda skólamáltíðir á staðnum. Áætlunin og fjárfestingin taki til allra borgarrekinna leik- og grunnskóla. Þegar hún liggur fyrir er borgarráði falið að forgangsraða fjárfestingu skólamötuneyta í fimm ára fjárhagsáætlun og formgera vinnu í samstafi við stjórnendur í leik- og grunnskólum um hvaða leiðir eru best færar til að taka mötuneytin í notkun sem fyrst eftir að framkvæmdum lýkur.
Breytingartillagan er samþykkt.
Tillaga um skólamötuneyti er samþykkt svo breytt.Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkja fyrirliggjandi breytingatillögu sem felur í sér að framkvæmt verði kostnaðarmat fyrir mögulega uppfærslu, breytingar eða stækkun skólamötuneyta, í því skyni að kanna möguleika á því að allar skólamáltíðir verði eldaðar í skólum. Þegar kostnaðarmat liggur fyrir verður tekin afstaða til þess hvort ástæða sé til að ráðast í breytingar á skólamötuneytum.
MSS26060102
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, varðandi uppsögn á afnotasamningi um borgarland í Gufunesi, sem færð var í trúnaðarbók á fundi borgarráðs 11. júní 2026 og var birt við boðun borgarstjórnarfundar 16. júní.
Samþykkt með fimmtán atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands. MSS26030016Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Íbúar hjólhýsabyggðarinnar eru fjölbreyttur hópur vinnandi fólks og lífeyristaka sem kýs þetta búsetuform af fúsum og frjálsum vilja. Eftir dvöl í Laugardal, þar sem þeir sinntu eigin nærumhverfi af alúð, var þeim gert að flytja á Sævarhöfða árið 2023. Það átti að vera tímabundið neyðarúrræði en tæp þrjú ár eru liðin. Þar eru aðstæður óásættanlegar, mikill hávaði, mengun og skelfilegt óöryggi vegna óreglu sem Reykjavíkurborg hefur hleypt inn á svæðið. Borgin hefur nú rift samningi um framtíðarsvæði í Gufunesi á röngum forsendum. Fullyrðingar um 50 til 100 milljóna króna kostnað borgarinnar vegna innviða standast ekki. Samkvæmt afnotasamningi áttu samtök hjólabúa að bera allan rekstrar- og uppbyggingarkostnað, fyrir utan tengingu að lóðamörkum. Borgin rifti samningnum og ber ábyrgð á stöðunni. Úrræðaleysi meirihlutans er algjört og engin áform eru um annað fyrirkomulag fyrir hjólabúa. Hugmyndir um að íbúarnir fari á langa biðlista Félagsbústaða eða flytji á tjaldsvæði sem bjóða ekki upp á langtímaleigu eru ekki lausnir. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands skorar á meirihlutann að hefja raunverulegt samtal við íbúana, sýna þeim virðingu og finna lausn á þeirra málum.
Fylgigögn
-
Lagt til að Harpa Sif Eyjólfsdóttir taki sæti varafulltrúa í heilbrigðisnefnd í stað Stein Olav Romslo.
Samþykkt. MSS26060020 -
Lagt til að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir taki sæti varafulltrúa í leikskóla- og daggæsluráði í stað Stein Olav Romslo.
Samþykkt. MSS26060009 -
Lagt til að Stein Olav Romslo taki sæti í mannréttindaráði í stað Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur.
Samþykkt. MSS26060014 -
Lagt til að Arnar Ingi Ingason taki sæti varafulltrúa í menningarráði í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur.
Samþykkt. MSS26060011 -
Lagt til að Isabel Alejandra Díaz taki sæti varafulltrúa í skóla- og frístundaráði í stað Skúla Helgasonar.
Samþykkt. MSS26060016 -
Lagt til að Harpa Sif Eyjólfsdóttir taki sæti varafulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði í stað Stein Olav Romslo.
Samþykkt. MSS26060015 -
Lögð fram fundargerð borgarráðs 11. júní 2026. MSS26010002
17. liður; þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 – umboð til borgarráðs o.fl., er samþykktur. MSS26030033
18. liður; þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 – kjörstaðir í Reykjavík, er samþykktur. MSS26030033
19. liður; þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 – þóknanir til kjörstjórna, er samþykktur. MSS26030033
Lögð fram fundargerð forsætisnefndar frá 12. júní 2026.
5. liður; ráðningarsamningur borgarstjóra, er samþykktur. MSS26060089
6. liður; tillaga að sumarleyfi borgarstjórnar 2026, er samþykktur. MSS26060082
7. liður; fundadagatal borgarstjórnar og forsætisnefndar 2026-2027, er samþykktur. MSS26060066Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá kosningu þriggja fulltrúa í yfirkjörstjórn Reykjavíkur og þriggja til vara.
Kosin eru af DC-lista án atkvæðagreiðslu:
Ari Karlsson
Jarþrúður ÁsmundsdóttirKosin er af S-lista án atkvæðagreiðslu:
Eva B. Helgadóttir
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosnar eru af DC-lista án atkvæðagreiðslu:
Katrín Helga Hallgrímsdóttir
Laufey María JóhannsdóttirKosinn er af S-lista án atkvæðagreiðslu:
Tómas Hrafn Sveinsson
Lögð fram tilkynning frá Miðflokknum um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn Reykjavíkur:
Katrín Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi
Sonja Ólafsdóttir, varaáheyrnarfulltrúiLögð fram tilkynning frá Vinstrinu um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn Reykjavíkur:
Svandís Svavarsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Sara Stef Hildardóttir, varaáheyrnarfulltrúi MSS26060110
Fundi slitið kl. 17:00
Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 16.06.2026 - Prentvæn útgáfa