Borgarstjórn
Ár 2026, mánudaginn 11. maí, var haldinn aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 16:03. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Helga Þórðardóttir, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Hildur Björnsdóttir, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Marta Guðjónsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Skúli Helgason, Unnur Þöll Benediktsdóttir og Þorvaldur Daníelsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 7. maí 2026.
- Kl. 16:24 víkur Einar Þorsteinsson af fundinum og Ásta Björg Björgvinsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 16:50 víkur Þorvaldur Daníelsson af fundinum og Ásrún Kristjánsdóttir tekur þar sæti
6. liður fundargerðarinnar, Fleyvangur, skólabrú – hönnun, er samþykktur með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.8. liður fundargerðarinnar, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026. Greidd eru atkvæði um 6. lið viðaukans sérstaklega, fjárfestingarheimild vegna þjóðvega, hluti Reykjavíkur, og aðrar umferðargötur.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, óháðir borgarfulltrúar, sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Viðaukinn, að undanskildum 6. lið, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, óháðir borgarfulltrúar, sitja hjá við afgreiðslu málsins.10. liður fundargerðarinnar, uppbygging félagslegs húsnæðis og nýting eiginfjárframlags til Félagsbústaða hf., er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.11. liður fundargerðarinnar, viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf. er samþykktur með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.22. liður fundargerðarinnar, endurskoðun Græna plansins – uppfærð heildarstefna Reykjavíkur til 2030, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, óháðir borgarfulltrúar,sitja hjá við afgreiðslu málsins.23. liður fundargerðarinnar, viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar, Visku stéttarfélags háskólamenntaðra og Félags íslenskra náttúrufræðinga um uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis, er samþykktur með 17 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa.
24. liður fundargerðarinnar, viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar og Bjargs íbúðafélags, er samþykktur með 17 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa.26. liður fundargerðarinnar, uppmæling á stjórnsýsluhúsum, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa.
Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 8. maí 2026, mannréttindaráðs frá 30. apríl, menningar- og íþróttaráðs frá 8. maí og umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí. MSS26010002
Leitað er afbrigða um að taka tillögu um hverfislögreglustöð í Breiðholti til afgreiðslu.
Fellt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, óháðra borgarfulltrúa, og Ásrúnar Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ásta Björg Björgvinsdóttir og Unnur Þöll Benediksdóttir, borgarfulltrúar Framsóknarflokksins, sitja hjá við afgreiðslu málsins.Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun undir 23. og 24. lið fundargerðar borgarráðs:
Samstarfsflokkarnir eru stoltir af viljayfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra náttúrufræðinga og Visku stéttarfélags háskólamenntaðra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum og af nýrri viljayfirlýsingu sem treystir áframhaldandi samstarf við Bjarg. Tæplega 4000 manns eru á biðlista hjá Bjargi, 1000 einstaklingar hjá Visku og FÍN uppfylla skilyrði tekjumarks almennra íbúða. Viljayfirlýsingin er í samræmi við markmið húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreytt framboð húsnæðiskosta fyrir alla félagshópa og félagslega fjölbreytni innan hverfa, Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 og samningsmarkmið Reykjavíkurborgar á nýjum uppbyggingarsvæðum. Einnig voru samþykktar á fundinum tillögur um uppbyggingu félagslegs húsnæðis á vegum Félagsbústaða, sem tryggja fjölgun íbúða, sjálfbærni í rekstri félagsins og nýja aðferðafræði til að standa að uppbyggingu íbúða. Við erum stolt af því að taka raunveruleg skref til þess að fjölga íbúðum í borginni.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 1. og 6. lið fundargerðar borgarráðs:Fullur skilningur er á því að mikil þörf er á nýjum skóla í Vogabyggð og mikilvægt að innviðir fylgi uppbyggingu hverfisins. En þó hönnunin sé glæsileg er um að ræða eitt stærsta og flóknasta uppbyggingarverkefni Reykjavíkurborgar á síðari árum sem lagt er fram örfáum dögum fyrir borgarstjórnarkosningar. Óábyrgt er af fráfarandi meirihluta að ýta af stað verkefni af þessari stærðargráðu á þessum tímapunkti, þegar ljóst er að enn á eftir að vinna mikla forvinnu og greiningu varðandi aðstæður og kostnað. Heildarkostnaður er áætlaður tæpir 15 milljarðar króna með vikmörkum upp á allt að 19,3 milljarða króna. Á sama tíma liggur enn ekki fyrir fullnægjandi greining á umfangi mengaðs jarðvegs á svæðinu þrátt fyrir að förgun hans sé einn stærsti kostnaðarliður verkefnisins. Sérstaklega verður að fara afar varlega við munna Elliðaáa þar sem um er að ræða viðkvæmt náttúrusvæði og rask á menguðum jarðvegi getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir lífríki og vatnsgæði. Best færi á því að ný borgarstjórn tæki afstöðu til verkefnis af þessari stærðargráðu að loknum kosningum og nánari greiningu á umfangi verkefnisins.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðar borgarráðs:
Framsókn situr hjá vegna þess að hér er verið að hefja ferli við hönnun húss sem afar óljóst er hver endanlegur kostnaður verður af. Efri vikmörk hljóða upp á hátt í 20 milljarða króna. Teikningin af þessu húsi er afar falleg og metnaðarfull. Mikilvægt er að sýna metnað í byggingu grunnskóla og sýna íbúum og starfsfólki að þau innviðagjöld sem greidd voru fjármagni innviði í hverfinu. Framsókn telur brýnt að skólinn rísi sem fyrst og hefði viljað sjá samanburð á hagkvæmari kosti sem gæti risið fyrr en 2035. Framsókn leggst ennfremur gegn þeim áformum meirihlutans að stefna að innvistun ræstinga hjá Reykjavíkurborg enda myndi það hafa í för með sér umtalsverðan aukinn kostnað.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun undir 6. og 8. lið fundargerðar borgarráðs:
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá í atkvæðagreiðslu vegna 6. liðar fyrirliggjandi viðauka, þar sem þeir eru alfarið andvígir framlögum til verkefna í tengslum við svokallaða borgarlínu, þar á meðal vegna smíði Fossvogsbrúar. Miðað við fyrirliggjandi gögn mun byggingin Fleyvangur – Skólabrú einkennast af framúrstefnulegum íburði og bruðli. Húsið verður augljóslega afar dýrt í byggingu og rekstri og margt bendir til að það sé uppskrift að kostnaðarlegu stórslysi, m.a. vegna legu og lögunar hússins. Kostnaðaráætlun byggingarinnar nemur nú 14.865 milljónum króna. Efri vikmörk nema 19.300 milljónum króna en neðri vikmörk 13.400 milljónum. Samkvæmt reynslu er eðlilegt að horfa til efri vikmarka a.m.k. Byggingarframkvæmdir verða væntanlega fjármagnaðar með dýrum lánum, sem velt verður yfir á næstu kynslóð. Sú spurning vaknar hvort stjórnendur borgarinnar hafi ekkert lært af kostnaðarsömum mistökum, sem gerð hafa verið í byggingarmálum borgarinnar á undanförnum árum, ekki síst á sviði skólamála. Bruðlinu virðist ekki ætla að linna miðað við verkefni sem eru á teikniborðinu. Mörg dæmi sýna þó að hægt sé að reisa glæsilegar og metnaðarfullar skólabyggingar án þess að kostnaður fari úr böndunum. Verðlaunasamkeppni virðist oft hafa þær afleiðingar í för með sér að kostnaður opinberra bygginga hleypur upp úr öllu valdi. Oft virðast arkitektar líta á slík verkefni sem tækifæri til að reisa sjálfum sér framúrstefnulegt minnismerki. Hagkvæmni og notagildi virðist þá ekki skipta máli, hvorki byggingarkostnaður viðkomandi húss, né rekstrarkostnaður þess til framtíðar.
Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs frá 7. maí
- - 6. liður; Skólabrú - Fleyvangur - hönnun
- - 8. liður; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026
- - 10. liður; uppbygging félagslegs húsnæðis og nýting eiginfjárframlags til Félagsbústaða
- - 11. liður; viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf.
- - 22. liður; endurskoðun Græna Plansins - uppfærð heildarstefna Reykjavíkur til 2030
- - 23. liður; viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar, Visku stéttarfélags háskólamenntaðra og Félags íslenskra náttúrufræðinga um uppb
- - 24. liður; viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar og Bjarg íbúðafélags
- - 26. liður; uppmæling á stjórnsýsluhúsum
- Fundargerð forsætisnefndar frá 8. maí
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 30. apríl
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá frá 6. maí
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 8. maí
Fundi slitið kl. 17:23
Sabine Leskopf Andrea Helgadóttir
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 11.05.2026 - Prentvæn útgáfa