Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 6. október, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:02. Voru þá komnir til fundar, auk staðgengils borgarstjóra Einars Þorsteinssonar, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björg Magnúsdóttir, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björn Gíslason, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný María Jóhannsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Regína Ásvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar, í samráði við skrifstofu eignastýringar, að hefja formlegar viðræður um leigu húsnæðis að Grensásvegi 8 fyrir tónlistar- og menningartengda starfsemi.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstrisins:
Borgarstjórn felur menningar-og íþróttasviði Reykjavíkurborgar að setja saman samráðshóp fólks úr ólíkum listgreinum sem gætu hugsanlega nýtt sér leiguhúsnæðið að Grensásvegi 8, áður en ákvörðun er tekin um hvort Reykjavíkurborg gangi til viðræðna við leigusala og taki á leigu húsnæðið.
Greinargerð fylgir breytingartillögunni.
Breytingartillaga Vinstrisins er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um húsnæði fyrir tónlistar- og menningarstarfsemi er samþykkt.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26100013Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagna samþykkt tillögu um að hefja formlegar viðræður um leigu húsnæðis að Grensásvegi 8 fyrir tónlistar- og menningarstarfsemi. Með því er stigið mikilvægt skref í átt að bættri æfinga- og starfsaðstöðu fyrir listafólk og öflugri stuðningi við ungt fólk og grasrót menningarlífsins. Hér er spennandi tækifæri til að skapa lifandi suðupott ólíkra listgreina þar sem ungt listafólk getur hist, þróað hugmyndir og unnið saman. Gaman yrði að sjá slíka uppbyggingu verða að verulegum möguleika og mikilvægt að móta starfsemina í samráði við listafólkið sjálft. Samnýtt húsnæði skapar tækifæri til samstarfs, sköpunar og fjölbreyttra menningarviðburða og getur nýst fleiri hópum með betri nýtingu fjármuna borgarinnar.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að unnið sé að skapandi rými á Grensásvegi 8, enda hefur tónlistarfólk verið á hrakhólum frá því að Tónlistarþróunarmiðstöðin missti húsnæðið á Hólmaslóð í júní. Leigan á þó að greiðast með fjármunum sem hingað til hafa farið í beina styrki og gæta þarf að því að nýtt húsnæði verði ekki á kostnað starfsins sem á að fara þar fram. Grensásvegur 8 er gott skref en það getur ekki verið eina svarið, því skapandi rými hafa horfið jafnt og þétt úr borginni og það er tímabært að móta skýra framtíðarsýn um hvað tekur við.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillögunni er fagnað enda tímabært að finna Tónlistarþróunarmiðstöðinni nýjan stað eftir lokun á Hólmaslóð. Stærðin og staðsetningin mun eflaust henta vel undir tónlistar- og menningarstarfsemina. Tryggja þarf að rekstarfyrirkomulagið verði ekki íþyngjandi fyrir samtökin sem verða í húsnæðinu. Því menning þarf andrými til þess að blómstra og fjárhagslegar kvaðir geta komið í veg fyrir jafnt aðgengi að menningarstarfi. Mikilvægt er að samráð sé við listahópana sem eiga að fá aðsetur í húsinu hvað varðar uppsetningu rýmanna og rekstrarfyrirkomulagið áður en gengið sé frá samningum. Þrátt fyrir orð meirihlutans um að svo verði er furðulegt að breytingartillaga um samráð var felld. Einnig er mikilvægt að tryggja húsnæðisöryggi með langtímasamningi því starfsemin hefur ekki efni á að standa í stöðugum flutningum og því þarf að huga að því hvernig er hægt að tryggja heilbrigt samneyti við aðra í byggingunni. Menningarstarfsemi hefur átt undir högg að sækja síðustu áratugi. Fjárframlög til tónlistarskóla og myndlistarskóla hafa minnkað töluvert, miðlungs stór rými fyrir tónleika hafa nánast horfið og nýlega var leigusamningum við listamenn sagt upp vegna brunavarna. Öflugt menningarlíf í borginni stuðlar að bættum lífsgæðum, hefur ríkt forvarnargildi og það er skylda höfuðborgar hverrar þjóðar að rækta það svo sómi sé að.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að setja íslenskukennslu barna af erlendum uppruna í forgang. Skóla- og frístundasviði verði falið að móta aðgerðir þess efnis, með jöfnuð barna að leiðarljósi. Aðgerðirnar taki til leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs með það að markmiði að öll börn öðlist góð tök á íslensku sem grundvöll að námi, félagsfærni og inngildingu í samfélagið. Tillögurnar skulu lagðar fram í skóla- og frístundaráði og leikskóla- og daggæsluráði fyrir lok nóvember 2026 og í framhaldi í borgarráði og til umræðu og afgreiðslu í borgarstjórn.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS26100014Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin leggur til að Reykjavíkurborg setji í forgang áherslu á íslenskukennslu barna með annað móðurmál sem meginþátt í þeirri sóknaráætlun í menntamálum sem nú er unnið að á skóla- og frístundasviði. Ísland ver minna fjármagni í tungumálakennslu aðfluttra íbúa en flestar aðrar þjóðir innan OECD og þó fjárveitingar til málaflokksins hafi nær þrefaldast á undanförnum 10 árum hefur það ekki haldist í hendur við fjórföldun á fjölda grunnskólanema með annað móðurmál en íslensku. Sögulegt tækifæri er fyrir borgina að stórefla íslenskukennslu þessa hóps þar sem borgin nýtur nú í fyrsta sinn eftir áralanga baráttu jafnaðarmanna, framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að fjármagna þessa kennslu, alls 749 m.kr. á ári. Mikilvægt er að þetta fjármagn renni beint til eflingar íslenskukennslunnar eins og lög gera ráð fyrir. Mikilvægt er að hefja málörvun og uppbyggingu íslensks málumhverfis strax í leikskóla og auka til muna snemmtækan stuðning með því að margfalda kennslustundir í íslensku fjöltyngdra barna strax á yngsta stigi grunnskólans. Þannig má stuðla að því að börn af erlendum uppruna standi jafnfætis jafnöldrum sínum í grunnskólum borgarinnar. Þar með stuðlum við að auknum jöfnuði í borginni okkur öllum til góða.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn hefur nú þegar stigið fyrsta skrefið í sókn í skólamálum, en þann 17. september samþykkti borgarráð að halda víðtækan samtalsfund með hagaðilum skólastarfs og fól skóla- og frístundasviði að leggja fram tillögur að aðgerðum til að bæta námsárangur. Tillaga Samfylkingarinnar, um að setja íslenskukennslu barna af erlendum uppruna í forgang, fellur vel að þeirri vinnu sem nú þegar er hafin, og við leggjum því til að henni verði vísað inn til skóla- og frístundasviðs í yfirstandandi vinnu um sókn í skólamálum.
Borgarfulltrúar Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn styður að íslenskukennsla barna með annað móðurmál verði sett í forgang. Íslensk tunga er forsenda virkrar þátttöku í námi, atvinnulífi og samfélaginu og ein mikilvægasta undirstaða íslenskrar menningar og þjóðarvitundar. Mikilvægt er að aðgerðirnar hafi skýr og mælanleg markmið og að árangur verði metinn reglulega. Börn af erlendum uppruna eiga að fá öflugan stuðning til að ná góðum tökum á íslensku, en jafnframt þarf að gera skýrar væntingar um að íslenska sé sameiginlegt tungumál skólastarfs og samfélagslegrar þátttöku. Foreldrar og forráðamenn þurfa einnig að axla ábyrgð, vera virkir þátttakendur og sækja íslenskunám eftir þörfum. Íslenskukennsla verður ekki aðskilin frá aðlögun að íslensku samfélagi. Börn sem hér alast upp þurfa að kynnast íslenskri sögu, menningu, bókmenntum, hefðum og lýðræðislegum grunngildum. Raunveruleg aðlögun felst bæði í stuðningi samfélagsins og þeirri ábyrgð þeirra sem hér setjast að að læra tungumálið, virða íslenska menningu og taka virkan þátt í samfélaginu.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er fátt brýnna en að bæta íslenskukennslu til barna með annað móðurmál en íslensku og því jákvætt að málið verði tekið fyrir í skóla- og frístundaráði. Í úttekt á íslenskuverum Reykjavíkurborgar var ljósi varpað á verulegan skort á samræmi milli veranna og ÍSAT kennslu, árangursmat á kennslunni, alltof lág viðmið um íslenskukunnáttu til að fara yfir í almenna kennslu, viðhald og eflingu íslenskukunnáttu eftir dvöl í íslenskuveri, óhentugri staðsetningu fyrir fjölda nemenda sem þurfa að verja miklum tíma í ferðir milli íslenskuvers og heimaskóla og skort á plássum sem hefur skapað tvöfalt kerfi. Ef við viljum raunverulega ná árangri og tryggja börnum með erlendan bakgrunn jöfn tækifæri til náms þá verðum við að hafa öfluga íslenskukennslu á fyrstu stigum. Sömuleiðis þarf að tryggja félagslega þátttöku barna með gjaldfrjálsu íþrótta- og tómstundastarfi og fyrir börn sem hefja sína skólagöngu í leikskólum þarf að stuðla að öflugu íslensku málumhverfi og þjálfa kennara og leikskólaleiðbeinendur að bera kennsl á þegar barn er ekki að meðtaka námið og gefa þeim verkfæri til þess að styðja við íslenska máltöku og eflingu orðaforða meðal þeirra barna með erlendan bakgrunn.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi ályktunartillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að skora á Alþingi að endurskoða ákvæði 11. greinar sveitarstjórnarlaga á þann veg að íbúatengdir flokkar um fjölda kjörinna fulltrúa verði felldir brott. Í stað þess verði kveðið á um að í hverri sveitarstjórn skuli sitja að lágmarki fimm og að hámarki 31 aðalfulltrúi, en sveitarstjórnum verði að öðru leyti treyst til að nýta sjálfsstjórnarrétt sinn og ákveða fjölda kjörinna fulltrúa út frá eigin forsendum og staðbundnum þörfum.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26100015Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar skulu sveitarfélög sjálf ráða málefnum sínum. Sveitarstjórnum er treyst til að skipuleggja stjórnsýslu sína, nefndir, boðleiðir og fjárhagsáætlun, en ekki til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa. Það er lykilatriði í því hvernig þær skipuleggja sig til að veita íbúum sem besta þjónustu. Í 61 sveitarfélagi á Íslandi, sem eru afar ólík að stærð og aðstæðum, á eitt ekki við um öll. Meirihlutinn skorar á Alþingi að fella íbúatengda flokkun brott í yfirstandandi endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Í stað þeirra verði kveðið á um að lágmarki fimm og að hámarki 31 aðalfulltrúa, og sveitarstjórnir ákveði fjöldann sjálfar út frá eigin forsendum og staðbundnum þörfum. Hver fjöldinn á að vera í Reykjavík er sjálfstæð umræða. Þar þarf að vega skilvirka ákvarðanatöku, kostnað, lýðræðislega þátttöku, atkvæðavægi og góða stjórnarhætti. Sú ákvörðun á þó heima hjá borgarstjórn, ekki Alþingi.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar taka undir að mikilvægt sé að skoða hvort núverandi rammi um fjölda borgarfulltrúa sé réttur en tillagan eins og hún er sett fram getur skapað verulegan lýðræðishalla. Borgarfulltrúar í Reykjavík voru 15 í um hundrað ár, frá 1908 til 2018, á sama tíma og borgarbúum fjölgaði úr rúmlega 10.000 í 123.000 þegar loks var fjölgað í 23. Í dag standa um 6.400 íbúar að baki hverjum borgarfulltrúa sem er mun meira en gerist í öðrum sveitarfélögum. Ef borgarfulltrúum fækkar mikið, jafnvel niður í fimm eins og tillagan opnar á, myndi flokkum í borgarstjórn fækka og fleiri atkvæði falla dauð niður. Þá snúa lögin sem um ræðir að öllum sveitarfélögum landsins og því væri eðlilegt að umræðan færi fram á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fækkun borgarfulltrúa hefur lengi verið áhugamál Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, flokks sem ítrekað naut þess í krafti stærðar sinnar að fá fleiri fulltrúa en kjörstyrkur hans gaf tilefni til og stundum jafnvel hreinan meirihluta fulltrúa þrátt fyrir að hafa ekki hlotið helming atkvæða. Vinstrið hafnar þessari tillögu Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar út frá lýðræðissjónarmiðum. Það fer ekki vel á því að flokkar í borgarstjórn hlutist sjálfir um fulltrúafjölda sinn líkt og hér er gert ráð fyrir, hvað þá þegar gert er ráð fyrir jafn fráleitri niðurstöðu og fimm manna borgarstjórn. Minnt er á að bæjarfulltrúum var fjölgað upp í fimmtán þegar íbúar Reykjavíkur voru innan við tíuþúsund talsins og viðfangsefni sveitarfélagsins mun minni í sniðum. Æskilegra væri að að leita leiða til að samsetning borgarstjórnar endurspegli betur íbúasamsetninguna. Það verður ekki gert með fámennari og einsleitari borgarstjórn.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Ekki er skynsamlegt að afnema viðmið um fjölda borgarfulltrúa á þann veg sem tekið er fram í tillögunni. Það að hver sveitarstjórn meti hver fjöldi fulltrúa ætti að vera á milli fimm til 31 getur haft í för með sér misræmi milli stærðar sveitarfélaga og fjölda fulltrúa. Með þessu er verið að búa til þann möguleika að framtíðarmeirihluti í borginni gæti fækkað borgarfulltrúum niður í fimm manns og valdið skaðlegum lýðræðislegum halla. Ef við berum saman við önnur ríki í Evrópu þá eru þau langflest með ramma yfir fjölda fulltrúa miðað við stærð sveitarfélagsins og á Norðurlöndum væru borgarfulltrúar í borg eins og Reykjavík mun fleiri. Tillagan er augljóslega tilkomin vegna þess að meirihlutinn vill fækka kjörnum borgarfulltrúum niður í 15. Bent er á að sami meirihluti heimilaði öllum varaborgarfulltrúum að taka sæti í ráðum og nefndum. Í fyrra fyrirkomulagi hefðu aðeins 23 borgarfulltrúar og fyrstu varaborgarfulltrúar, sem eru sjö talsins, setið í ráðum og nefndum og yrðu þar með á launum. Nú eru hins vegar fimmtán varaborgarfulltrúar í ráðum og nefndum sem þýðir að samtals eru 38 fulltrúar að vinna sem launaðir kjörnir fulltrúar. Eina ástæðan fyrir fækkun borgarfulltrúa er því að auka vægi stærri flokkanna og draga úr lýðræðislegu aðhaldi.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að Reykjavíkurborg hafi frumkvæði að viðræðum við Lögregluna höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um sérstakt samstarfsverkefni um aukna og sýnilega viðveru lögreglu í Breiðholti. Meginviðvera lögreglu verði í og við Mjódd, einkum við skiptistöð Strætó og verslunar- og þjónustukjarnann. Jafnframt verði lögð áhersla á reglubundið eftirlit um allan borgarhlutann, styttri viðbragðstíma þegar lögregla er kölluð til og aukið samstarf við skóla, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög, íbúa og rekstraraðila. Verkefnið verði unnið í anda samfélagslöggæslu. Stefnt verði að því að Reykjavíkurborg leggi verkefninu til fjármagn og eftir atvikum, hentuga aðstöðu í Mjódd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fari með faglega stjórn verkefnisins, þar á meðal ákvörðun um mönnun, verkaskiptingu og framkvæmd löggæslunnar. Verkefnið verði fyrst rekið til reynslu í 12 mánuði. Áður en það hefst verði skilgreind mælanleg markmið um viðveru, viðbragðstíma, fjölda útkalla, þróun ofbeldis- og eignabrota og öryggistilfinningu íbúa, farþega, starfsfólks og rekstraraðila. Að reynslutímanum loknum verði borgarstjórn kynnt sameiginlegt mat samstarfsaðila á árangri verkefnisins og tillögur um framhaldið.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 20 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Miðflokksins að vísa tillögunni frá. MSS26100016Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Umræða um Breiðholt, rétt eins og um borgina alla, verður að byggja á gögnum og staðreyndum. Í greinargerð tillögu Miðflokksins er hvorki að finna tölur um afbrot í hverfinu né um viðbragðstíma lögreglunnar, þótt könnun lögreglunnar frá 2025 sýni að Breiðholtsbúar sjái lögregluna nú þegar oftar en íbúar flestra annarra hverfa Reykjavíkur. Löggæsla er verkefni ríkisins og borgin á að einbeita sér að því sem hún ber sjálf ábyrgð á og getur raunverulega haft áhrif á. Þar má nefna hverfamiðað samstarf skóla, frístundastarfs og félagsþjónustu í kringum börn og fjölskyldur - sem ákveðið hefur verið að leggja niður. Mikilvægt er að umræða um öryggi borgarbúa taki mið af raunveruleikanum og hafa þarf í huga að um helmingur allra tilkynntra ofbeldisbrota á sér stað á heimilum. Heimilisofbeldi og kynferðisbrot verða oftast bakvið luktar dyr en eru engu að síður ógn við öryggi borgaranna.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Viðfangsefni lögreglunnar eru yfirhöfuð af fjölbreyttum toga og starfsumhverfi lögreglunnar hefur tekið miklum breytingum á stuttum tíma. Aukin harka í undirheimum, aukning ofbeldisbrota, netglæpir, mansal og skipulögð brotastarfsemi eru dæmi um viðfangsefni sem leggjast þungt á herðar lögreglunnar og við reiðum okkur á að hún leysi. Svo það megi verða þarf Alþingi að tryggja nægilegt fjármagn til almennrar löggæslu enda leiða vanfjármagnaðar stofnanir af sér undirmönnun, fækkun í stéttinni, veikindi og kulnun sem að lokum bitnar á öryggi landsmanna. Eins þarf að leggja áherslu á að fá menntaða lögregluþjóna til starfa og treysta þannig og efla undirstöður lögreglunámsins með auknu fjármagni til kennslu og rannsókna og inntöku nemenda með fjölbreytta reynslu, menntun og bakgrunn. Þá má nefna að verkefni þar sem unnið er með hugmyndafræði samfélagslöggæslu er til fyrirmyndar og mikilvægt er Reykjavíkurborg styðji vel við þá vinnu. Til að borgarstjórn hafi raunveruleg áhrif á gang mála ætti borgarstjóra að vera í lófa lagið að biðja um fund með allsherjar- og menntamálanefnd og benda á ofangreinda þætti sem vert er að leggja áherslu á svo tryggja megi öryggi og þjónustu við Reykvíkinga og íbúa höfuðborgarsvæðisins. Aðstoðarlögreglustjóri hefur bent á að ekki sé þörf á nýrri hverfislögreglustöð og að betur færi á því að fjölga frekar lögreglumönnum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga Vinstrisins:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að kortleggja rými og aðstöðu í Reykjavík svo unnt sé að koma upp fjölbreyttri vinnuaðstöðu fyrir listafólk.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands að vísa tillögunni frá.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26100017Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það eru vonbrigði að tillögu Vinstrisins sé vísað frá. Skortur er á áreiðanlegum og fjölbreyttum vinnurýmum sem henta hinum ólíku listformum og margvíslegri menningarsköpun. Vinnurýmum í miðborginni fer ört fækkandi og ekki hefur verið hugsað fyrir endann á því. Mikilvægt er að kortleggja tækifærin, hvort sem þau eru að finna í eignasafni borgarinnar eða með öðrum leiðum, til að búa til vinnurými sem henta fjölbreyttum hópi listafólks og í samtali við það. Það þarf að bregðast við þessari óheillaþróun sem brotthvarf vinnurýma listafólks er og löngu orðið tímabært að borgarstjórn framfylgi aðgerðaráætlun sinni um Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Sú tillaga sem var samþykkt í borgarráði 13. júlí um að kortleggja eignasafn Reykjavíkurborgar gengur ekki út á að finna vinnurými listafólks. Tillaga Vinstrisins gengur lengra og bindur sig ekki einvörðungu við eignasafn borgarinnar en þar segir: Að kortleggja rými og aðstöðu í Reykjavík svo unnt sé að koma upp fjölbreyttri vinnuaðstöðu fyrir listafólk.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Í menningarstefnu Reykjavíkurborgar segir að Reykjavík sé borg þar sem listafólki finnist gott að búa og skapa í. Mikilvæg forsenda þess er að listafólk hafi aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Borgin hefur leigt út slík rými á undanförnum árum til listafólks til fjölbreyttrar sköpunar. Nýr meirihluti hefur sagt upp leigusamningum við 15 menningarhópa á þeim forsendum að brunavarnir á viðkomandi stöðum séu óviðunandi. Sannarlega þurfa brunavarnir að vera í lagi en mikilvægt er að fórna ekki ómetanlegu uppbyggingarstarfi sem listamenn hafa sjálfir lagt gríðarlegan tíma, vinnu, og eigin fjármuni til að standa straum af, eins og bent er á í yfirlýsingu stjórnar Sambands íslenskra myndlistarmanna og ályktun Bandalags íslenskra listamanna (BÍL). Stjórn BÍL gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin og bendir á að þau samræmist ekki menningarstefnu Reykjavíkurborgar, þar sem lögð er skýr áhersla á samstarf, samtal og þátttöku menningarlífsins í mótun borgarinnar. Samfylkingin lagði fram tillögu í menningarráði sl. föstudag um að menningar- og íþróttasviði verði falið að leita allra leiða til að finna annað húsnæði fyrir viðkomandi listhópa. Samráð verði haft við viðkomandi hópa og reynt til þrautar að finna lausnir sem afstýra afdrifaríku menningarslysi í borginni.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistafélags Íslands telur að hægt væri að vinna tillögu Vinstrisins samhliða kortlagningu sem samþykkt var í borgarráði 16. júlí sl. þar sem samþykkt var að fara í kortlagningu á eignasafni borgarinnar m.a. til að meta hvort nýta megi eignir borgarinnar í þágu skapandi greinar og í menningarráði 2. október þar sem lögð var fram tillaga að rýna hvernig megi koma til móts við þá 15 hópa sem fengu uppsögn á leigusamningum og koma upp spretthópi til að leysa málið. Því máli var vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs í sambandi við fyrrnefnda tillögu í borgarráði. Mikilvægt er að við áframhaldandi vinnu sé tryggt ríkt samstarf við menningarhópana til að finna farsæla lausn. Bent er á að margir leigjendur voru tilbúnir að fjármagna nauðsynlegar framkvæmdir til að mæta brunavörnum ef langtímaleigusamningur væri á borðinu. Við þurfum að styðja við menningarlíf í borginni og mæta áskorunum sem koma upp með lausnamiðaðri nálgun.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela borgarstjóra að hefja viðræður við forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um lagaheimild til að leggja útsvar á fjármagnstekjur til jafns við aðrar tekjur (þ.e. atvinnutekjur, lífeyristekjur og bótagreiðslur).
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26100018
- Kl. 17:55 víkur Skúli Helgason af fundinum og Birkir Ingibjartsson tekur þar sæti.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Borgarstjórn skorar á Alþingi að tryggja sveitarfélögunum hlutdeild í skatttekjum af fjármagnstekjum.
Breytingartillagan er samþykkt.
Tillagan er samþykkt svo breytt.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn lagði fram breytingartillögu sem er í raun ný tillaga en er í það minnsta fyrsta skref sem byrjar umræðuna og því samþykktir fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands breytinguna en hefði þótt farsælla að fyrri útfærsla hefði verið samþykkt. Ef útsvar hefði verið lagt á fjármagnstekjur til jafns við aðrar tekjur árið 2025 hefðu 16,6 milljarðar aukalega skilað sér í borgarsjóð og þar af hefði yfir helmingur komið frá tekjuhæsta 1% Reykvíkinga. Það er öllum ljóst að sveitarfélögum vantar auknar tekjur til þess að mæta uppsafnaðri innviðaskuld og fjármagna málaflokk fatlaðs fólks. Það ætti að vera sjálfsagt sanngirnismál að krefjast þess að allir íbúar greiði hlutfallslega jafnt til nærsamfélagsins en eins og staðan er í dag er það ekki raunin.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillagan gerir ráð fyrir að útsvar verði lagt á fjármagnstekjur til viðbótar við fjármagnstekjuskatt sem þegar rennur til ríkisins. Hún snýst því ekki um að skipta núverandi skatttekjum með öðrum hætti milli ríkis og sveitarfélaga. Hún myndi auka skattbyrði borgarbúa um allt að 16,6 milljarða króna á ári. Nýi skatturinn legðist á allar fjármagnstekjur, líka hjá þeim sem greiða nú þegar útsvar af launatekjum sínum. Það er réttmætt sjónarmið að íbúar sem eingöngu hafa fjármagnstekjur leggi sitt af mörkum til þjónustu sveitarfélagsins. Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í september var Sambandinu falið að taka upp samtal við ríkið um hvernig tryggja megi að þeir greiði útsvar. Sú vinna er í réttum farvegi, í samstarfi við þau sveitarfélög þar sem fjármagnstekjur eru hlutfallslega miklar. Það þjónar hvorki hagsmunum Reykjavíkurborgar né sveitarfélaganna í heild að borgin hefji sérstakar viðræður við ríkið samhliða þeirri vinnu. Sanngjarnari skipting tekna milli ríkis og sveitarfélaga er brýnt verkefni. Því leggur meirihlutinn fram breytingartillögu um að borgarstjórn skori á Alþingi að tryggja sveitarfélögunum hlutdeild í skatttekjum af fjármagnstekjum.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar styðja tillöguna og telja tímabært að borgin taki aftur upp þráðinn við ríkisstjórnina um útsvar á fjármagnstekjur. Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir tveimur vikum var samþykkt að sambandið tæki upp þetta samtal við ríkið þannig að sveitarfélögin standa saman að kröfunni. Reykjavík á að ganga á undan með samþykkt þessarar tillögu. Útfærslan skiptir þó öllu, því það þarf að verja venjulegan sparnað fólks og þá hvata sem knýja áfram fjárfestingu og nýsköpun, enda er öflugt atvinnulíf forsenda sterkrar velferðar.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er ekki sanngjarnt að þeir sem sem greiða fjármagnstekjuskatt af tekjum sínum og nýta sér þjónustu sveitarfélagsins séu undanþegnir greiðslu útsvars. Það er óeðlilegt að fjármagnseigendur greiði lítið sem ekkert og jafnvel ekkert fyrir alla þá uppbyggingu sem fer fram í nærsamfélaginu. Um eðlilega kröfu er að ræða er varðar tekjustofna sveitarfélaga og er í grunninn sanngirnismál.
Fylgigögn
-
Lagt til að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir taki sæti í borgarráði í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Jafnframt er lagt til að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir verði varamaður í ráðinu í stað Steinunnar.
Samþykkt. MSS26060007 -
Lagt til að Birkir Ingibjartsson taki sæti í umhverfis- og skipulagsráð í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Jafnframt er lagt til að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir verði varamaður í ráðinu í stað Birkis.
Samþykkt. MSS26060015 -
Samþykkt að taka á dagskrá kosningu í skóla- og frístundaráð. Lagt er til að Skúli Helgason taki sæti í skóla- og frístundaráði í stað Stein Olav Romslo.
Samþykkt. MSS26060016 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 29. september og 1. október 2026. MSS26010002
26. liður fundargerðar borgarráðs frá 29. september; endurskoðunarnefnd - kosning formanns, er samþykktur. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080028Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 2. október, leikskóla- og daggæsluráðs frá 28. september, skóla- og frístundaráðs frá 28. september og umhverfis- og skipulagsráðs frá 30. september. MSS26010022
2. liður fundargerðir forsætisnefndar frá 2. október; tilnefning fulltrúa Orkuveitunnar í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar er samþykktur. MSS26080028.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 18:17
Björg Magnúsdóttir Albert Guðmundsson
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar frá 6. október 2026 - prentvæn útgáfa