Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 5. maí, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13:34. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Einar Þorsteinsson, Ellen Jacqueline Calmon, Friðjón R. Friðjónsson, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Marta Guðjónsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Skúli Helgason, Stefán Pálsson, Þorvaldur Daníelsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2025, ódags., sbr. 1. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 28. apríl 2026. Einnig er lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. apríl 2026, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 27. apríl 2026, verkstöðuskýrsla nýframkvæmda, ódags., ábyrgða- og skuldbindingayfirlit, dags. 27. apríl 2026, yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar, ódags., bréf endurskoðunarnefndar, dags. 13. apríl 2026, skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. apríl 2026, um samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2025, bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. apríl 2026, vegna breytinga á framlögðum gögnum ársreiknings 2025 og umsögn endurskoðunarnefndar, dags. 20. apríl 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn Grant Thornton, dags. 27. apríl 2026.
- Kl. 13:38 tekur Hjálmar Sveinsson sæti á fundinum og Ellen Jacqueline Calmon víkur af fundi.
- Kl. 14:10 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum og Ásrún Kristjánsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 14:15 tekur Aðalsteinn Haukur Sverrisson sæti á fundinum og Þorvaldur Daníelsson víkur af fundi.
- Kl. 14:58 tekur Helga Þórðardóttir sæti á fundinum og Einar Sveinbjörn Guðmundsson víkur af fundi.
- Kl. 15:35 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum og Stefán Pálsson víkur af fundi.
- Kl. 15:44 víkur Einar Þorsteinsson af fundinum og Ásta Björg Björgvinsdóttir tekur þar sæti.Samþykkt. FAS26010009
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er ánægjulegt að sjá hvernig markviss forgangsröðun samstarfsflokkanna í þágu barna og barnafjölskyldna birtist í rekstrartölum ársins. Við höfum staðið fyrir mikilli uppbyggingu í skólamálum, húsnæðismálum og annarri grunnþjónustu, á sama tíma og rekstur málaflokka borgarinnar er í jafnvægi og í samræmi við áætlanir. Þetta sýnir að það er mögulegt með ábyrgri fjármálastjórn að takast á við áskoranir samtímans og fjárfesta á sama tíma í framtíðinni. Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 sýnir að rekstur samstæðu borgarinnar er traustur og staða hennar sterk þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður. Jákvæð niðurstaða A- og B-hluta, sterk eignastaða og áframhaldandi fjárfesting í innviðum undirstrika getu borgarinnar til að standa vörð um grunnþjónustu borgarinnar og framtíðaruppbyggingu. Neikvæð niðurstaða A-hluta skýrist fyrst og fremst af einskiptisáhrifum hækkunar lífeyrisskuldbindinga sem tengjast nýjum kjarasamningum á árinu. Vakin er athygli á 450 m.kr. gjaldfærslu á 22 ára gamalli skuldbindingu sem tengist samningi þáverandi borgarstjóra við Nýja Landspítalann. Hún er umdeilanleg því eftir er að ljúka tengdum samningum sem geta skilað borginni tekjum á móti af byggingarrétti og gatnagerð. Niðurstaðan sýnir stöðugan og traustan rekstur þrátt fyrir utanaðkomandi áföll, svo sem verulega hækkun lífeyrisskuldbindinga og tekjufall hjá Orkuveitunni og Faxaflóahöfnum vegna rekstrarfalls Norðuráls.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Rekstur Reykjavíkurborgar var ósjálfbær á árinu 2025 þrátt fyrir hámarksskattheimtu og stórauknar tekjur. Ársreikningurinn sýnir gífurlega skuldasöfnun samstæðunnar en skuldir hennar námu rúmlega 560 milljörðum um síðustu áramót. Skuldirnar hækkuðu um næstum 36 milljarða á milli ára eða þrjá milljarða á mánuði. 5,3 milljarða króna tap varð af rekstri borgarsjóðs árið 2025. Hafa verður í huga að átta milljarða króna bókfærður hagnaður samstæðunnar er ekki raunverulegur hagnaður, byggður á tekjum, heldur froðuhagnaður, sem er til kominn vegna matsbreytingar á félagslegum íbúðum borgarinnar. Það gefur ranga mynd af rekstri Reykjavíkurborgar að nota slíka virðishækkun á félagslegum íbúðum til að fegra rekstrarreikning samstæðunnar. Án umræddrar matsbreytingar félagslegra íbúða nam tap samstæðu Reykjavíkurborgar 347 milljónum króna árið 2025. Ljóst er að mikið verk bíður næstu borgarstjórnar við að koma fjárhag Reykjavíkurborgar á réttan kjöl eftir langt tímabil óráðsíu og skuldasöfnunar. Til þess þarf að endurskoða allan rekstur borgarinnar og ráðast í víðtækan sparnað og hagræðingu. Í komandi borgarstjórnarkosningum gefst Reykvíkingum kærkomið tækifæri til að gera breytingar á stjórn borgarinnar og kjósa fólk til ábyrgðar í stað fjárhagslegrar upplausnar, sem ríkt hefur of lengi í Borgarstjórn Reykjavíkur.
Fylgigögn
- Samantekinn ársreikningur Reykjavíkurborgar 2025
- Ársreikningar A-hluta og málaflokkayfirlit 2025
- Ársreikningar B-hluta 2025
- Skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs með ársreikningi 2025
- Greinargerð fagsviða með ársreikningi 2025
- Greinargerð B-hluta félaga með ársreikningi Reykjavíkurborgar 2025
- Framvinduskýrsla - Verkstaða nýframkvæmda 2025
- Ábyrgða- og skuldbindingayfirlit 2025
- Umsögn endurskoðunarnefndar vegna ársreiknings 2025
- Yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar
- Bréf endurskoðunarnefndar
- Skýrsla um framkvæmd styrkjareglna
- Samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2025
- Bréf til borgarráðs vegna breytinga á ársreikningi 2025
- Endurskoðunarskýrsla Reykjavíkurborg 2025
-
Lagðar fram fundargerðir stafræns ráðs frá 22. apríl, skóla- og frístundaráðs frá 27. apríl og umhverfis- og skipulagsráðs frá 29. apríl. MSS26010022
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá fundargerð borgarráðs frá 30. apríl 2026.
12. liður, stefna um gönguvæna borg, er samþykktur.
19. liður, hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar 2026-2030, er samþykktur.
37. liður, stefna í málaflokki fatlaðs fólks, er borinn upp til atkvæða í tvennu lagi.
Stefna í málaflokki fatlaðs fólks er samþykkt.
Aðgerðaskjal með stefnu í málaflokki fatlaðs fólks er samþykkt. MSS26010002Fylgigögn
Fundi slitið kl. 17:23
Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 05.05.2026 - Prentvæn útgáfa