Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 3. febrúar, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:10. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Kristinn Jón Ólafsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Skúli Helgason, Stefán Pálsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna:
Samstarfsflokkarnir leggja til að gjaldtaka í strætisvögnum, hvort sem er á vegum Strætó bs. eða Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., verði felld niður vegna reykvískra barna á grunnskólaaldri. Það gildi þangað til grunnskólagöngu lýkur. Borgarstjóra er falið, í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið, skóla- og frístundasvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið og Strætó bs., að kostnaðarmeta tillöguna og undirbúa framkvæmd hennar. Tillaga að endanlegri útfærslu verði lögð fyrir borgarráð til staðfestingar þannig að hún geti komið til framkvæmda eigi síðar en 1. maí 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26020006
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til að tillögu Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og Flokks fólksins um gjaldfrjálsan strætó fyrir grunnskólabörn verði vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs og Strætó bs. Meðal annars verði kallað eftir skýru kostnaðarmati á tillögunni, reiknuð verði tækifæri til hagræðingar í skólaakstri á móti og kallað verði eftir gögnum um árangur af verkefninu „Frítt í strætó fyrir 11 ára og yngri“.
Tillagan er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fella niður gjaldtöku í strætisvögnum, hvort sem er á vegum Strætó bs. eða Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., vegna reykvískra barna 18 ára og yngri. Markmiðið er að börn geti komist leiðar sinnar í skóla, íþróttir eða frístundastarf án endurgjalds og jafnframt hvetja til aukinnar framtíðarnotkunar almenningssamgangna. Borgarstjóra er falið, í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið, skóla- og frístundasvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið og Strætó bs., að kostnaðarmeta tillöguna og undirbúa framkvæmd hennar. Tillaga að endanlegri útfærslu verði lögð fyrir borgarráð til staðfestingar þannig að hún geti komið til framkvæmda eigi síðar en 1. maí 2026.
Tillagan er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Framsóknarflokksins.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna er samþykkt.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er jákvætt og mikilvægt skref að afnema gjaldtöku í Strætó fyrir öll grunnskólabörn með tillögunni sem hér er lögð fram. Tillagan dregur úr aðstöðumun barna og eykur frelsi þeirra til að ferðast um borgina vegna skóla, frístundar, íþrótta eða félagslífs. Þar að auki eru líkur á að dregið verði úr skutli foreldra á annatímum og þar með dragi úr umferðarþunga og loftmengun. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó bs. má gera ráð fyrir að kostnaður við þessa aðgerð, fyrir Reykjavíkurborg, gæti orðið um 167 milljónir á ári. Nánara kostnaðarmat verður unnið og sömuleiðis hvort draga megi úr kostnaði vegna skólaaksturs að einhverju marki á móti. Við vonumst til þess að vilji verði hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að taka þetta skref heildrænt, en við viljum og munum framkvæma þetta í Reykjavík.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn gagnrýnir að meirihlutinn hafi hafnað breytingartillögu Framsóknar um að fella niður gjaldtöku í almenningssamgöngur fyrir öll reykvísk börn 18 ára og yngri. Markmiðið með tillögunni er að börn geti komist leiðar sinnar í skóla, íþróttir eða frístundastarf án endurgjalds og jafnframt hvetja til aukinnar framtíðarnotkunar almenningssamgangna. Framsókn styður við þá tillögu sem miðar við 16 ár en leggur áherslu á að þetta ætti að ná til allra barna, ekki bara á grunnskólaaldri heldur að 18 ára aldri.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík hefur um langa hríð stutt það að grunnskólabörn fái frítt í strætó enda var ákvæði um slíkt í meirihlutasáttmála sem Viðreisn tók þátt í vorið 2022. Viðreisn stóð að því að endurvekja næturstrætó árið 2023. Varðandi ungt fólk á aldrinum 16-18 ára þá telur Viðreisn að skoða eigi útfærslur af góðum afsláttarfargjöldum fyrir framhaldsskólanema. Í anda samgöngusáttmála og uppbyggingar Borgarlínu er eðlilegt að börn á grunnskólaaldri geti notað almenningasamgöngur að vild, það skapar frelsi og meiri gæði fyrir börnin. Afleidd afleiðing gæti verið minna um að skutla og sækja fyrir aðstandendur, slíkt er í raun partur af loftslagsmarkmiðum borgarinnar. Mikilvægt er að fundin verði tæknileg lausn með stafrænu korti borgarinnar. Einnig er mikilvægt að útfærslan sé rædd innan byggðasamlagsins Strætó við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar verður að draga fram að meirihlutinn skreytir sig hér með stolnum fjöðrum þar sem málið er augljóslega frá fyrri meirihluta áranna 2022-2025.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að leita samstarfs við forsvarsfólk atvinnulífsins um lausn leikskóla- og daggæsluvandans í Reykjavík. Kannaður verði vilji fyrirtækja í Reykjavík til að opna leikskóla- eða daggæsluúrræði á vinnustöðum fyrir börn starfsmanna. Skóla- og frístundasviði verði falið að útfæra með hvaða hætti mótframlögum með börnum í daggæslu eða leikskólum á vinnustöðum foreldra verði háttað og með hvaða hætti borgin getur stutt við þá vinnustaði sem vilja byggja upp slík úrræði. Tillögurnar verði bornar undir skóla- og frístundaráð og í kjölfarið borgarráð, til samþykktar.
- Kl. 14:47 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum og Stefán Pálsson víkur af fundi.
Tillagan er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar. MSS26020008
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að meirihlutinn leggist gegn samstarfi við atvinnulíf um lausnir í leikskóla- og daggæslumálum. Rök meirihlutans eru fátækleg og byggja á hugmyndafræðilegum kreddum. Nauðsynlegt verður að bjóða fjölskyldum í Reykjavík fjölbreyttar lausnir við þeim viðvarandi leikskólavanda sem blasað hefur við í Reykjavík um árabil. Leikskólar eða daggæsla á vinnustöðum foreldra geta skapað verulegt hagræði fyrir fjölskyldur í Reykjavík, en fyrirkomulagið gæti stutt foreldra aftur á vinnumarkað, dregið verulega úr skutli og tryggt fjölskyldum aukin lífsgæði í hversdeginum.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirtæki geta ráðið til sín dagforeldra með leyfi frá Reykjavíkurborg og útvegað þeim húsnæði. Eingöngu eitt fyrirtæki hefur nýtt sér slíkt leyfi. Það er mun meira mál að stofna fyrirtækjaleikskóla og hefur ekkert fyrirtæki leitað til borgarinnar með slíka beiðni frá því samstarfsflokkarnir mynduðu meirihluta fyrir ári síðan. Stór álitamál fylgja slíku fyrirkomulagi, ekki síst varðandi jafnræði barna um aðgengi að leikskóla. Samstarfsflokkarnir vilja standa vörð um borgarreknu leikskólana og halda áfram góðu samstarfi við sjálfstætt starfandi leikskóla. Við viljum efla og styrkja almennu leikskólana og standa vörð um jafnræði barna og faglegt starf í leikskólum borgarinnar.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Framsóknar gagnrýna að meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli enn og aftur hafna samstarfi við vinnustaðina í borginni. Fyrir liggur talsverður áhugi frá vinnustöðum í borginni á að eiga í samstarfi við borgina um leiðir til að brúa bilið í leikskólamálum. Núverandi meirihluti hafnar slíku samstarfi og það bitnar á barnafjölskyldum í borginni. Leikskólar eða daggæsluúrræði á vinnustöðum myndu fjölga plássum bæði fyrir börn starfsmanna og annarra barna í borginni og um leið gefa vinnustöðum í borginni tækifæri til að styðja við fjölskylduvænt vinnuumhverfi. Umræðan í borgarstjórn sýnir skýrt að flokkarnir í meirihlutanum eru á móti breytingum í borginni og sjá ekki tilefni til að leita fjölbreyttra leiða í leikskólamálum heldur vilja frekar leggja stein í götu þeirra sem vilja taka þátt í að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að láta framkvæma skoðanakönnun á meðal íbúa um bíla- og hjólastæðastefnu Reykjavíkurborgar.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 17:03 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi og Birkir Ingibjartsson tekur sæti.
Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs með 22 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Viðreisnar gegn einu atkvæði borgarfulltrúa Vinstri grænna. MSS26020009
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Framsóknar telja mikilvægt að fá álit borgarbúa á bíla- og hjólastæðastefnu borgarinnar til þess að geta metið hvaða leið eigi að fara þegar kemur að breytingum á núverandi stefnu. Ákvörðun meirihlutans um að vísa tillögunni til umhverfis- og skipulagsráðs og umræða meirihlutans gefur þó til kynna að það eigi ekki að láta framkvæma skoðanakönnunina. Þá gefur orðræða meirihlutans ekki til kynna mikinn vilja meirihlutans til að breyta reglum borgarinnar um hjóla- og bílastæði.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar:
Lagt er til að Borgarstjórn Reykjavíkur feli borgarstjóra, í samráði við fjármála- og áhættustýringarsvið, að greina og útfæra stofnun sérstaks innviðasjóðs Reykjavíkur innan A-hluta borgarinnar. Markmið sjóðsins verði að styðja við fjármögnun innviðauppbyggingar, svo sem leikskóla, skóla, samgöngumannvirkja og menningar- og íþróttamannvirkja, og/eða stuðla að niðurgreiðslu skulda sem tengjast slíkum innviðafjárfestingum. Í greiningunni verði sérstaklega fjallað um mögulega tekjustofna sjóðsins, þar á meðal arðgreiðslur frá B-hlutafélögum borgarinnar og valdar einsskiptistekjur, afmörkun sjóðsins gagnvart rekstrarútgjöldum, áhrif á fjárhagslega stöðu, skuldsetningu og fjárfestingagetu borgarinnar til lengri tíma og hvernig fyrirkomulag sjóðsins samræmist gildandi eigendastefnu Reykjavíkur og markmiðum um gagnsæi og ábyrga fjármálastjórn. Borgarstjóra verði falið að leggja fram lokatillögu á grundvelli greiningarinnar til afgreiðslu í borgarstjórn.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26020010
Frestað.Fylgigögn
-
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um stöðu húsnæðismála skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25110070 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að:
1. Auglýsa eftir áhugasömum aðilum til þess að koma á fót vinnustaðaleikskólum í samstarfi við Reykjavíkurborg. Samhliða verði útfærðar reglur um vinnustaðaleikskóla þar sem markmiðið er að fjölga leikskólaplássum bæði fyrir starfsfólk vinnustaða í borginni og fyrir börn úr hverfum borgarinnar. Forsenda verkefnisins er að leikskólavist barna sé ekki bundin við ráðningarsamband foreldra/forsjáraðila við vinnuveitanda og að tiltekið hlutfall leikskólaplássa sé nýtt af börnum úr Reykjavík óháð vinnustaðnum.
2. Auglýsa eftir áhugasömum aðilum til þess að koma á fót daggæslu á vinnustað í samstarfi við Reykjavíkurborg. Samhliða verði útfærðar reglur um daggæsluúrræði vinnustaða þar sem markmiðið er að fjölga daggæsluplássum fyrir starfsfólk vinnustaða í borginni.Greinargerð fylgir tillögunni.
Tillagan er felld með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar. MSS26020011
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Framsóknar gagnrýna að meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli enn og aftur hafna samstarfi við vinnustaðina í borginni. Fyrir liggur talsverður áhugi frá vinnustöðum í borginni á að eiga í samstarfi við borgina um leiðir til að brúa bilið í leikskólamálum. Núverandi meirihluti hafnar slíku samstarfi og það bitnar á barnafjölskyldum í borginni. Leikskólar eða daggæsluúrræði á vinnustöðum myndu fjölga plássum bæði fyrir börn starfsmanna og annarra barna í borginni og um leið gefa vinnustöðum í borginni tækifæri til að styðja við fjölskylduvænt vinnuumhverfi. Umræðan í borgarstjórn sýnir skýrt að flokkarnir í meirihlutanum eru á móti breytingum í borginni og sjá ekki tilefni til að leita fjölbreyttra leiða í leikskólamálum heldur vilja frekar leggja stein í götu þeirra sem vilja taka þátt í að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirtæki geta ráðið til sín dagforeldra með leyfi frá Reykjavíkurborg og útvegað þeim húsnæði. Eingöngu eitt fyrirtæki hefur nýtt sér slíkt leyfi. Það er mun meira mál að stofna fyrirtækjaleikskóla og hefur ekkert fyrirtæki leitað til borgarinnar með slíka beiðni frá því samstarfsflokkarnir mynduðu meirihluta fyrir ári síðan. Stór álitamál fylgja slíku fyrirkomulagi ekki síst varðandi jafnræði barna um aðgengi að leikskóla. Samstarfsflokkarnir vilja standa vörð um borgarreknu leikskólana og halda áfram góðu samstarfi við sjálfstætt starfandi leikskóla. Við viljum efla og styrkja almennu leikskólana og standa vörð um jafnræði barna og faglegt starf í leikskólum borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að taka upp viðræður við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um starfrækslu hverfislögreglustöðvar í Breiðholti í því skyni að styrkja löggæslu í borgarhlutanum. Stöðin verði starfrækt í anda svonefndrar samfélagslöggæslu og áhersla lögð á að tengja hana skólunum í hverfinu með jákvæðum hætti. Um yrði að ræða samstarfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að Reykjavíkurborg sæi stöðinni fyrir húsnæði eins og gert var þegar hverfislögreglustöð var áður starfrækt í Breiðholti með góðum árangri.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta tillögunni.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25090069Fylgigögn
-
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25120075 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 22. og 29. janúar 2026. MSS26010002
18. liður fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar, samstarfs- og styrktarsamningur við UngRÚV 2026-2028, er samþykktur með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. SFS22120075
26. liður fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2025, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn tíu atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. FAS25010024
27. liður fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar, viðauki við fjárfestingaráætlun 2025, er samþykktur með með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 10 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
Borgarfulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.FAS25010013
1. liður fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar, Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 – Laugardalur, breytt landnotkun, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK25030005
2. liður fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar, Laugardalur – breyting á deiliskipulagi vegna skólaþorps við Reykjaveg, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24100252Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun við 18. og 27. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar:
Vegna 18. liðar: Markmið samningsins er að styðja við unglingalýðræði og skapa vettvang fyrir raddir unglinga í íslensku samfélagi í samræmi við menntastefnu Reykjavíkurborgar. Með honum fá nemendur á unglingastigi grunnskóla tækifæri og vettvang til að láta raddir sínar heyrast og læra á fjölmiðlaumhverfi, m.a. með námskeiðum í tækni- og dagskrárgerð. Hjarta þessa samstarfs er Skrekkur – hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar en samningurinn gerir mögulegt að öll börn geti fylgst með úrslitakvöldi í því fyrirmyndarverkefni. Samningurinn samræmist innkaupareglum Reykjavíkurborgar líkt og borgarlögmaður hefur áður staðfest og fjárhæð samningsins er undir viðmiðunarfjárhæðum VIII. kafla laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Vegna 27. liðar: Hér er um að ræða tilfærslu á fjármagni í fjárfestingaáætlun ársins 2025, sem ekki var nýtt á tímabilinu vegna framvindu verkefnanna. Þessi tilfærsla kemur ekki til með að hægja á viðkomandi skólaverkefnum á árinu 2026.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun við 18. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar:
Það er ánægjulegt að RÚV sýni þessu verkefni áhuga og sinni þannig fræðsluhlutverki sínu. Rétt er að benda á að RÚV ber að auka framleiðslu á íslensku efni fyrir börn samkvæmt þar til bærum þjónustusamningi stofnunarinnar við íslenska ríkið. Hér hefði verið rétt að fara í útboð/verðfyrirspurn og kanna áhuga annarra sjónvarpsstöðva til að taka verkefnið að sér eða öðrum fjölmiðlum. Þá vekur athygli að hér er ekki um þjónustukaup að ræða heldur er skóla- og frístundaráð að styrkja RÚV ohf. Ekki liggja fyrir skýrar talningar um áhorf á efnið sem framleitt hefur verið hingað til, það er á grundvelli fyrri samnings við RÚV sem nú stendur til að endurnýja. Vert er hér að hafa í huga víðtækt viðskiptasamband sem Reykjavíkurborg hefur haft við RÚV, samanber svar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, lagt fram á fundi borgarráðs 24. júlí 2025 (MSS24050002). Það er því þörf á að rýna með gagnrýnum hætti viðskiptatengsl borgarinnar við RÚV og gjalda varhug við áframhaldandi samningsgerð af þessum toga. Þetta á ekki síst við þegar aðrir valkostir halda áfram að vera ókannaðir, það er, gætu ekki aðrir fjölmiðlar sinnt þessu verkefni sem Reykjavíkurborg hyggst hér fjármagna?
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun við 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar og 2. og 12. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar:
Borgarfulltrúi Framsóknar telur afar brýnt að bregðast við fjárhagsstöðu Félagsbústaða og tryggja sjálfbæran rekstur félagsins. Framsókn gagnrýnir þó harðlega að fjármunum sé ráðstafað með þessum hætti. Mikilvægt er að fjárhagsleg endurskipulagning Félagsbústaða sé byggð á gögnum og greiningum sem nú þegar liggja fyrir en meirihlutinn hefur ákveðið að hunsa þá greiningu sem starfshópur hefur skilað. Þá gagnrýnir Framsókn að fjármagn sé sótt í viðhaldsfjármuni grunn- og leikskóla auk þess sem fjármagn verður skorið niður til frágangs gatna í Vogabyggð. Framsókn gagnrýnir harðlega niðurskurð á styrkveitingum til opna leikskólans Memmm Play, sem sinnir afar mikilvægu starfi fyrir barnafjölskyldur borginni. Memmm Play heldur úti gjaldfrjálsu, framsæknu og faglegu starfi í samfélagshúsum borgarinnar. Styrkur borgarinnar er sambærilegur við Hafnarfjörð, þrátt fyrir að íbúar borgarinnar séu um fimmfalt fleiri og starfsstaðir þrír í Reykjavík. Framsókn styður að reist sé skólaþorp í Laugardalnum til þess að hægt sé að ráðast í afar brýnt viðhald og endurbyggingu skólabygginga í dalnum. Framsókn situr hinsvegar hjá við afgreiðsluna vegna þeirra athugasemda sem fram hafa komið um aðgengi hreyfihamlaðra við skólaþorpið. Þá brýnir Framsókn fyrir umhverfis- og skipulagssviði að ráðast í framkvæmdir til þess að bæta umferðaröryggi barna á leið til og frá skóla á svæðinu.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun við 18. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar:
Borgarfulltrúi Viðreisnar er sammála því að tryggja áframhaldandi samstarf um Skrekk, enda er þar um að ræða rótgróið og farsælt skóla- og menningarverkefni sem hefur skýra tengingu við starfsemi skóla- og frístundasviðs og nýtur víðtæks stuðnings meðal barna, foreldra og skólasamfélagsins. Þar liggur réttmæt ástæða fyrir samstarfi borgarinnar við RÚV. Hins vegar er ekki unnt að fallast á að Reykjavíkurborg gangi lengra og styrki eða fjármagni önnur verkefni UngRÚV með þessum hætti. Með samningnum er stigið skref í átt að því að borgin taki að sér hlutverk sem ekki falla undir hennar lögbundnu ábyrgð og opnað á hættulega þróun þar sem borgarsjóður verður almennt tæki til að styðja fræðslu- og vitundarverkefni. Ef þessi nálgun er réttlætanleg vakna óhjákvæmilega spurningar: Ætti borgin þá einnig að fjármagna þjálfun ungs fólks í heilbrigðismálum í samstarfi við Landspítalann? Eða fræðslu barna í loftslagsmálum með sérstökum samningum við Landsvirkjun eða Orkuveitu Reykjavíkur? Borgin á að halda fókus, virða sitt hlutverk og beita skattfé af ábyrgð. Stuðningur við Skrekk stenst þau skilyrði og önnur ákvæði samningsins gera það ekki.
Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs frá 22. janúar
- - 18. liður; samstarfs- og styrktarsamningur við UngRÚV 2026-2028
- - 26. liður; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2025
- - 27. liður; viðauki við fjárfestingaráætlun 2025
- Fundargerð borgarráðs frá 29. janúar
- - 1. liður; Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 – Laugardalur, breytt landnotkun
- - 2. liður; Laugardalur – breyting á deiliskipulagi vegna skólaþorps við Reykjaveg
-
Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar 30. janúar, mannréttindaráðs frá 15. og 22. janúar, menningar- og íþróttaráðs frá 23. janúar, skóla- og frístundaráðs frá 26. janúar, umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. og 28. janúar og velferðarráðs frá 21. janúar. MSS26010022
3. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar, breyting á samþykkt endurskoðunarnefndar, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS23010279Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun við 1. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar:
Framsókn vekur athygli á því að flokkurinn sendi fjögur mál inn á dagskrá borgarstjórnar en einungis tvö þeirra rötuðu á dagskrá fundarins. Það er réttur kjörinna fulltrúa að fá mál sín á dagskrá borgarstjórnar og eru því gerðar alvarlegar athugasemdir við að mál Framsóknar hafi ekki ratað á dagskrá borgarstjórnar.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Samstarfsflokkarnir harma þau mistök, en benda jafnframt á að dagskrá borgarstjórnar var til umræðu á fundi forsætisnefndar þar sem Framsóknarflokkurinn á fulltrúa sem sat fundinn.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Framsókn vekur athygli á því að fulltrúi Framsóknar sótti fund forsætisnefndar í fjarfundi. Framsókn gagnrýnir að gögn sem varða dagskrá fundarins eru ekki send út á fundasvæði forsætisnefndar heldur einungis varpað upp í skamma stund á skjá. Mál Framsóknar voru öll fjögur send í sama pósti á netfang forsætisnefndar en einungis tvö þeirra rötuðu á dagskrá fundarins. Forseti borgarstjórnar ber endanlega ábyrgð á dagskrá borgarstjórnar og borgarfulltrúar verða að geta treyst því að öll innsend mál rati á dagskrá borgarstjórnar. Einnig væri eðlilegt að dagskrá borgarstjórnar væri sett inn á fundasvæði forsætisnefndar þegar fundur forsætisnefndar er settur.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Ítarlega er farið yfir dagskrá borgarstjórnar á skjá sem og munnlega.
Borgarfulltrúar Framsóknar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Framsókn gagnrýnir að meirihlutinn geti ekki fallist á að mistök hafi hér átt sér stað og látið þar við sitja. Það er ekki ítarlega farið yfir dagskrá borgarstjórnar á fundi forsætisnefndar heldur er dagskránni varpað upp á skjá þar sem hún er skönnuð af fulltrúum í forsætisnefnd. Fulltrúi Framsóknar þurfti að óska eftir að því að dagskránni væri varpað upp í gegnum fjarfundarbúnað á fundinum í upphafi fundar þegar dagskráin var tekin fyrir. Eðlilegra er að setja gögnin inn á fundasvæði forsætisnefndar í framtíðinni. Ítrekað er að kjörnir fulltrúar eiga að treysta því að öll innsend mál séu sett á dagskrá borgarstjórnar.
Fylgigögn
- Fundargerð forsætisnefndar frá 30. janúar
- - 3. liður; breyting á samþykkt endurskoðunarnefndar
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 15. janúar
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 22. janúar
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 23. janúar
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 26. janúar
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. janúar
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 28. janúar
- Fundargerð velferðarráðs frá 21. janúar
Fundi slitið kl. 20:07
Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir
Kjartan Magnússon
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 03.02.2026 - Prentvæn útgáfa