Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 2. júní, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:03. Voru þá komnir til fundar eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Líf Magneudóttir, Albert Guðmundsson, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Björn Gíslason, Brynjar Níelsson, Einar Þorsteinsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Lárus Sigurðsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Róbert Ragnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason, Stein Olav Romslo og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Líf Magneudóttir, starfsaldursforseti borgarstjórnar, les upp bréf yfirkjörstjórnar Reykjavíkur frá 22. maí sl., þar sem skýrt er frá því að eftirtaldir fulltrúar hafi verið kjörnir í Borgarstjórn Reykjavíkur í borgarstjórnarkosningum 16. maí sl.
Af A-lista:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Líf MagneudóttirAf B-lista:
Einar Þorsteinsson
Af C-lista:
Björg Magnúsdóttir
Róbert RagnarssonAf D-lista:
Hildur Björnsdóttir
Bjarni Guðjónsson
Brynjar Níelsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Rúnar Freyr Gíslason
Guðný María Jóhannsdóttir
Albert Guðmundsson
Bjarni Fritzson
Sigrún Ásta EinarsdóttirAf J-lista:
Silja Sóley Birgisdóttir
Af M-lista:
Ari Edwald
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Lárus SigurðssonAf S-lista:
Pétur Hafliði Marteinsson
Heiða Björg Hilmisdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Skúli Helgason
Stein Olav Romslo MSS25050113Fylgigögn
-
Fram fer kosning forseta borgarstjórnar til eins árs og fjögurra varaforseta.
Forseti er kosin Björg Magnúsdóttir með tólf atkvæðum.Kosning varaforseta fer fram án atkvæðagreiðslu
1. varaforseti er Brynjar Níelsson
2. varaforseti er Stein Olav Romslo
3. varaforseti er Einar Þorsteinsson
4. varaforseti er Sanna Magdalena Mörtudóttir MSS26060004 -
Fram fer kosning borgarstjóra til fjögurra ára.
Borgarstjóri til fjögurra ára er kosin Hildur Björnsdóttir með tólf atkvæðum. MSS26060005 -
Fram fer kosning tveggja skrifara til eins árs og tveggja til vara.
Kosnar voru án atkvæðagreiðslu Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir.
Varaskrifarar voru kosin með sama hætti Albert Guðmundsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. MSS26060004 -
Fram fer kosning varafulltrúa í forsætisnefnd til fjögurra ára.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Róbert Ragnarsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Magnea Gná JóhannsdóttirKosin eru af SA lista án atkvæðagreiðslu:
Skúli Helgason
Líf MagneudóttirLögð fram tilkynning Miðflokksins um að Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í forsætisnefnd og Lárus Blöndal Sigurðsson verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Sósíalistaflokks Íslands um að Silja Sóley Birgisdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í forsætisnefnd og Sigrún E Unnsteinsdóttir verði varaáheyrnarfulltrúi. MSS26060006
-
Fram fer kosning sjö borgarráðsfulltrúa til eins árs og sjö til vara, formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:Einar Þorsteinsson
Björg Magnúsdóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Bjarni GuðjónssonKosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Ari Edwald
Kosin eru af S lista án atkvæðagreiðslu:
Pétur Hafliði Marteinsson
Heiða Björg Hilmisdóttir
Formaður er kosinn án atkvæðagreiðslu Einar Þorsteinsson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:Magnea Gná Jóhannsdóttir
Guðný María Jóhannsdóttir
Rúnar Freyr Gíslason
Róbert RagnarssonKosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Kosin eru af S lista án atkvæðagreiðslu:
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Skúli HelgasonLögð er fram tilkynning Vinstrisins um að Sanna Magdalena Mörtudóttur verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði og Líf Magneudóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Sósíalistaflokks Íslands um að Silja Sóley Birgisdóttir verði áheyrnarfulltrúi í borgarráði og Sigrún E Unnsteinsdóttir verði varaáheyrnarfulltrúi. MSS26060007
-
Fram fer fyrri umræða um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar vegna 63. gr. samþykktarinnar. MSS26060008
Lögð er fram breytingartillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins þar sem lagðar eru til frekari breytingar á 2. mgr. 63. gr. frá upphaflegri tillögu.
Breytingartillagan er samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Samþykkt að vísa tillögunni svo breyttri til síðari umræðu.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Áður en ráðist er í umfangsmiklar breytingar á skipulagi ráða og nefnda bendir Samfylkingin á að nauðsynlegt er að kostnaður við þær breytingar liggi fyrir. Hér er verið að fjölga ráðum og nefndum og opna á að fleiri geti setið í þeim sem mun hafa í för með sér aukin útgjöld borgarinnar og fyrir þeim er engin heimild í fjárhagsáætlun borgarinnar. Nauðsynlegt er að ráðast í kostnaðargreiningu á fyrirhuguðum breytingum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna leikskóla- og daggæsluráð. Ráðið fer með verkefni á sviði leikskóla- og daggæslu barna eins og þau eru nú skilgreind í 3. gr. samþykktar skóla- og frístundaráðs þar með talið verkefni leikskólanefndar skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008 og verkefni félagsmálanefndar skv. 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, að því er lýtur að daggæslu í heimahúsum. Ráðið skal skipað fimm fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara, aðalfulltrúar skulu koma úr hópi aðal- og varamanna í borgarstjórn. Ráðið verður í flokki I skv. samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Forsætisnefnd er falið að vinna samþykkt fyrir ráðið í samráði við skóla- og frístundaráð sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september ásamt breytingum á samþykkt skóla- og frístundaráðs. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt skóla- og frístundaráðs þar til ný samþykkt liggur fyrir. MSS26060009
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að breyta fjölda fulltrúa í leikskóla- og daggæsluráði úr fimm í sjö og jafnmörgum til vara.
Breytingartillagan er samþykkt.
Tillaga um stofnun leikskóla- og daggæsluráðs er samþykkt.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að breyta heiti menningar- og íþróttaráðs í íþrótta- og tómstundaráð. Ráðið fer með verkefni samkvæmt gildandi samþykkt menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar að undanskildum menningarmálum sem færast yfir til nýstofnaðs menningarráðs. Forsætisnefnd er falið að vinna breytingar á samþykkt fyrir ráðið, í samráði við menningar- og íþróttasvið sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt menningar- og íþróttaráðs þar til ný samþykkt liggur fyrir.
Við afgreiðslu á breytingartillögu undir sjöunda lið var nafni menningar- og íþróttaráðs breytt í íþrótta- og útilífsráð og er sú breyting færð til bókar undir þessum lið.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060010Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna menningarráð. Ráðið fer með menningarmál eins og þau eru skilgreind í gildandi samþykkt menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fastanefnd í flokki I samkvæmt samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg og er skipuð fimm fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Forsætisnefnd er falið að vinna samþykkt fyrir ráðið, í samráði við menningar- og íþróttasvið, sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt menningar- og íþróttaráðs þar til ný samþykkt liggur fyrir. MSS26060011
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að breyta fjölda fulltrúa í menningarráði úr fimm í sjö og jafnmarga til vara.
Breytingartillagan er samþykkt.
Tillaga um stofnun menningarráðs er samþykkt.
Borgarfulltrúi Vinstrisins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að stofna öldungaráð. Ráðið fer með verkefni samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem fjallað er um þjónustu við aldraða og framkvæmd og þróun öldrunarmála. Ráðið fer einnig með verkefni samkvæmt ákvæðum laga 125/1999 um málefni aldraðra. Ráðið skal skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara þar sem borgarstjórn kýs þrjá fulltrúa og þrjá til vara, Félag eldri borgara tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara. Ráðið verður í flokki II skv. samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Forsætisnefnd er falið að vinna samþykkt fyrir ráðið, sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september.
Samþykkt. MSS26060012
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:Nýr og öflugur samvinnuvettvangur fjölbreyttra hópa var skapaður í nýju mannréttindaráði þar sem eldra fólk, fatlað fólk og innflytjendur áttu sæti. Ráðið fór meðal annars með hlutverk öldungaráðs Reykjavíkur þar sem fulltrúar þriggja samtaka áttu sæti, frá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, Samtökum aldraðra og U3A Reykjavík sem eru samtök fólks á þriðja æviskeiðinu. Með tillögu Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins er horfið frá þessu þar sem einungis fulltrúar frá Félagi eldri borgara munu eiga sæti í ráðinu fyrir hönd eldri borgara. Mikilvægt er að vanda vel til verka og fara vel yfir það sem vel gekk í mannréttindaráði áður en næstu skref eru útfærð.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að leggja niður stafrænt ráð Reykjavíkur og færa verkefni ráðsins til borgarráðs.
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og borgarfulltrúa Vinstrisins, Lífar Magneudóttur, gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og borgarfulltrú Vinstrisins, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.MSS26060013Fylgigögn
-
Fram fer kosning sjö fulltrúa í mannréttindaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Friðjón R. Friðjónsson
Magnea Gná Jóhannsdóttir
Helga Margrét MarzellíusardóttirKosinn er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Stefán Pálsson
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Steinunn Gyðu- og GuðjónsdóttirFormaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Safa Jemai
Monika Katarzyna Waleszczyńska
Daníel Hjörvar Guðmundsson
Þorvaldur DaníelssonKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Líf MagneudóttirKosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Lárus Blöndal Sigurðsson
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir MSS26060014
-
Kosning sjö fulltrúa í íþrótta- og útilífsráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarni Guðjónsson
Björn Gíslason
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Albert GuðmundssonKosinn er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Stefán Pálsson
Kosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Lárus Blöndal Sigurðsson
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Bjarni Guðjónsson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarni Fritzson
Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Rúnar Freyr Gíslason
Halldór BachmannKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Líf Magneudóttir
Kosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Helgi Áss Grétarsson
Kosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Birkir Ingibjartsson MSS26060010
-
Fram fer kosning sjö fulltrúa í umhverfis- og skipulagsráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Guðný María Jóhannsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Magnea Gná JóhannsdóttirKosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Páll Edwald
Kosin eru af S lista án atkvæðagreiðslu:
Pétur Hafliði Marteinsson
Heiða Björg HilmisdóttirFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Guðný María Jóhannsdóttir.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Sigrún Ásta Einarsdóttir
Albert Guðmundsson
Eyþór Máni Steinarsson
Einar ÞorsteinssonKosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Ari Edwald
Kosnir eru af S lista án atkvæðagreiðslu:
Stein Olav Romslo
Birkir IngibjartssonLögð fram tilkynning Vinstrisins um að Líf Magneudóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í umhverfis- og skipulagsráði og Sanna Magdalena Mörtudóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Sósíalistaflokks Íslands um að Sigrún E Unnsteinsdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í umhverfis- og skipulagsráði og Hannes Pétursson verði varaáheyrnarfulltrúi. MSS26060015
-
Fram fer kosning sjö fulltrúa í skóla- og frístundaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarni Fritzson
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Hafrún Kristjánsson
Magnea Gná JóhannsdóttirKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Hlédís Maren Guðmundsson
Kosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Stein Olav RomsloFormaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Bjarni Fritzson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Rúnar Freyr Gíslason
Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson
Halldór BachmannKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Ásta Þ. Skjalddal GuðjónsdóttirKosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Kristín Kolbrún Waage KolbeinsdóttirKosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Skúli Helgason MSS26060016 -
Fram fer kosning sjö fulltrúa í velferðarráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Róbert Ragnarsson
Magnea Gná Jóhannsdóttir
Þorvaldur Davíð KristjánssonKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Ásta Þ. Skjalddal GuðjónsdóttirKosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Helgi Áss GrétarssonKosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Skúli HelgasonFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Albert Guðmundsson
Ingunn Rós Kristjánsdóttir
Þorvaldur Daníelsson
Sigrún Ásta EinarsdóttirKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Regína Ásvaldsdóttir MSS26060017
-
Kosning fulltrúa í almannavarnarnefnd til fjögurra ára og tveggja til vara.
Kosinn er af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Einar Þorsteinsson
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin er af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Björg Magnúsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Heiða Björg Hilmisdóttir MSS26060018
-
Kosning sjö fulltrúa í menningarráð til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Rúnar Freyr Gíslason
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Helga Margrét Marzellíusardóttir
Friðjón R. FriðjónssonKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Líf Magneudóttir
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Kosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Skúli Helgason
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Rúnar Freyr Gíslason.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarni Guðjónsson
Eyþór Máni Steinarsson
Bjarni Fritzson
Andrea Edda GuðlaugsdóttirKosinn er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Stefán Pálsson
Kosinn er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Helgi Áss Grétarsson
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Heiða Björg Hilmisdóttir MSS26060011
-
Kosning sjö fulltrúa í leikskóla- og daggæsluráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Sigrún Ásta Einarsdóttir
Björg Magnúsdóttir
Albert Guðmundsson
Margrét Rós SigurjónsdóttirKosin er af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Silja Sóley Birgisdóttir
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Formaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Sigrún Ásta Einarsdóttir.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Brynjar Níelsson
Ingunn Rós Kristjánsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson
Andrea Edda GuðlaugsdóttirKosin eru af AJ lista án atkvæðagreiðslu:
Sigrún E Unnsteinsdóttir
Kosin er af M lista án atkvæðagreiðslu:
Helgi Áss Grétarsson
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Stein Olav Romslo MSS26060009
-
Kosning fimm fulltrúa í innkaupa- og framkvæmdaráð til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Friðjón R. Friðjónsson
Björn Gíslason
Safa JemaiKosin er af AM lista án atkvæðagreiðslu:
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Regína Ásvaldsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Friðjón R. Friðjónsson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarni Guðjónsson
Sigrún Ásta Einarsdóttir
Rúnar Freyr GíslasonKosin er af AM lista án atkvæðagreiðslu:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir MSS26060019
-
Kosning þriggja fulltrúa í öldungaráð til fjögurra ára og þriggja til vara; formannskjör.
Kosnir eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Albert Guðmundsson
Björn GíslasonKosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Albert Guðmundsson.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Brynjar Níelsson
Ragnhildur Alda María VilhjálmsdóttirKosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Heiða Björg Hilmisdóttir MSS26060012
-
Kosning fimm fulltrúa í heilbrigðisnefnd til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson
Daníel Hjörvar GuðmundssonKosin er af AM lista án atkvæðagreiðslu:
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Kosin er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Formaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Margrét Rós Sigurjónsdóttir.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Rúnar Freyr Gíslason
Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Sverrir Páll EinarssonKosin er af AM lista án atkvæðagreiðslu:
Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Kosinn er af S lista án atkvæðagreiðslu:
Stein Olav Romslo MSS26060020
-
Kosning eins fulltrúa í samstarfsnefnd skíðasvæðanna til fjögurra ára.
Kosinn er af DCB lista án atkvæðagreiðslu:
Þorvaldur Daníelsson MSS26060021
-
Lögð fram yfirlýsing Vinstrisins um samkomulag skv. 3. mgr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga. MSS26060022
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að íslenski fáninn verði dreginn að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur. Einnig er lagt til að samþykkt verði að fella niður gildandi reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar sem samþykktar voru á fundi forsætisnefndar í apríl sl. Í landinu gilda lög um þjóðfána Íslendinga og stuðst verður við þau.
Samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060024Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar telja hið besta mál að flagga íslenska fánanum við Ráðhús Reykjavíkur. Reykjavíkurborg hefur mikilvæga rödd, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi og það er okkar skylda að nota hana. Nú verður óvissa um hvernig borgin muni nota sína rödd til að sýna samstöðu með hópum sem þurfa á því að halda. Á síðustu árum höfum við fengið til okkar þúsundir nýrra Reykvíkinga frá einmitt Úkraínu og Palestínu út af hræðilegum stríðsátökum í þeirra heimalöndum. Og þá skiptir máli að sýna að þau sem hingað koma eru velkomin. Með því að fella niður gildandi reglur um notkun fána mun borgarstjórn samtímis fella niður heimild til að flagga fánum er varða málefni og viðburði tengdum Reykjavíkurborg, og regnbogafáninn fellur vissulega þar undir. Það er vanhugsað að fella niður reglurnar með einu pennastriki án þess að tryggja það að við höldum áfram að sýna samstöðu með hinsegin samfélaginu, sér í lagi með hinsegin börnum og ungmennum.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Með þessari tillögu er verið að fella niður gildandi reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar. Fulltrúar Vinstrisins leggjast gegn því þar sem reglurnar eru skýrar og kveða á um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar sem eru Ráðhús Reykjavíkur, Höfðatorg (Borgartún 8-16a), Höfði og Tjarnargata 12. Reglurnar fjalla meðal annars um íslenska þjóðfánann, fána Reykjavíkurborgar og fána er varða málefni og viðburði tengda Reykjavíkurborg. Þegar engar reglur eru til staðar þá opnar slíkt á óskýrleika. Mikilvægt er að hafa skýrar reglur til að einfalda verklag en nú eru engar reglur til staðar.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands bendir á að margt vantar í þessa tillögu hvað útfærslu varðar. Gildandi reglur um notkun fána setja ramma um hvernig röðun er á flöggun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar þ.m.t. þegar öðrum fánum er flaggað þegar á við eins og við opinberar móttökur eða viðburði. Því er varpað fram spurningunni hvort ekki eigi að endurskoða reglurnar bæði til að gefa íslenska þjóðfánanum aukið vægi en einnig setja ramma í kringum notkun annarra fána til þess að hafa skýrt verklag. Að lokum fagnar fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands því að íslenska fánanum verði flaggað daglega, þar sem hann er sameiningartákn okkar allra sem buma hér á Íslandi en það er mikilvægt að við sýnum í verki að hann tákni raunverulega sameiningu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela borgarstjóra að hefja viðræður við forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og bæjarstjóra nágrannasveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans. Tryggt verði að endurskoðun tefji ekki nauðsynlegar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu.
Samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands. MSS26060025
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin og Vinstrið hvetja nýjan meirihluta til að falla frá heildarendurskoðun samgöngusáttmálans. Slíkt frumhlaup steypir mikilvægustu innviðauppbyggingu höfuðborgarsvæðisins í algjöra óvissu og tefur nauðsynlegar samgöngubætur. Það lýsir ábyrgðarleysi að stærsta sveitarfélagið krefjist þess að opna samninginn í heild sinni, sérstaklega þar sem núverandi formaður borgarráðs og þáverandi borgarstjóri undirritaði samkomulagið sjálfur fyrir aðeins 18 mánuðum og Viðreisn varði það í kosningabaráttunni. Hætta er á að aðrir samningsaðilar bakki út í kjölfarið. Í stað þess að rífa upp allan sáttmálann á frekar að skilgreina skýr og afmörkuð samningsmarkmið, líkt og varðandi Miklubrautargöng, og ræða þau sérstaklega í góðu samtali við ríki og nágrannasveitarfélög án þess að setja aðrar framkvæmdir í stopp.
Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Miðflokksins styðja tillögu nýs meirihluta í borgarstjórn um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans. Tillagan er þó afar almenn og ekki ljóst hvort eða hvernig endurskoðunin eigi að ná til stærsta og umdeildasta verkefnis sáttmálans. Ljóst er að innan meirihlutans eru skiptar skoðanir um Borgarlínu. Ekki kemur fram í tillögunni hvert markmið slíkrar endurskoðunar eigi að vera en mikilvægt er að það liggi fyrir sem fyrst. Miðflokkurinn telur að við slíka endurskoðun eigi að falla frá áformum um borgarlínuverkefnið og fyrirhugaðar skattahækkanir, sem það hefði óhjákvæmilega í för með sér. Um er að ræða risavaxið opinbert verkefni með neikvæða arðsemi, sem yrði afar óhagkvæmt. Miðflokkurinn leggur áherslu á að núverandi strætisvagnakerfi verði bætt með hagkvæmum hætti í stað þess að bíða í a.m.k. fimm ár eftir borgarlínu. Unnt væri að stórefla strætókerfið með ýmsum aðgerðum, t.d. fjölgun hægri settra sérakreina, forgangi strætó á umferðarljósum og umbótum á biðstöðvum og skiptistöðvum fyrir lítinn hluta af því fé sem borgarlínan myndi kosta. Mikilvægt er að flýta einstökum framkvæmdum sáttmálans, sem eru hagkvæmar, t.d. endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar-Bústaðavegar, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallljósastýringa í borginni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu í Reykjavík.
Samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands. MSS26060026
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin telur ekki þörf á að Reykjavíkurborg leiti eftir samstarfi við fyrirtæki um rekstur leikskóla. Leikskólar eru grunnþjónusta sem á að byggjast á jafnræði barna og fjölskyldna þeirra, óháð stöðu foreldra á vinnumarkaði. Samkvæmt nýrri spá borgarinnar stefnir í að byrjað verði að taka á móti 12 mánaða börnum í leikskólum borgarinnar haustið 2027. Það er vegna þess að samþykktar áætlanir um uppbyggingu gera ráð fyrir því að rúmlega 1700 ný leikskólapláss verði opnuð á næstu fimm árum þar af um 640 á þessu ári og því næsta. Það er því í raun ekki þörf fyrir hugmyndir á borð við fyrirtækjaleikskóla, sem að auki myndi búa til tvöfalt kerfi þar sem sum börn njóta forgangs umfram önnur, háð vinnustað foreldra þeirra. Stærsta áskorun leikskólastarfs í Reykjavík snýr að mönnun en ekki rekstrarformi. Skortur á menntuðum leikskólakennurum verður ekki leystur með því að fjölga rekstraraðilum. Þvert á móti er hætta á að fyrirtækjareknir leikskólar keppi um sama starfsfólk og borgarreknir leikskólar og veiki þannig heildarkerfið. Samfylkingin leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu öflugs leikskólakerfis sem gætir jafnræðis fyrir öll börn í Reykjavík. Aðgangur að leikskóla á að ráðast af þörfum barna og fjölskyldna, ekki af því hvar foreldrar starfa.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Leikskólar eru faglegar stofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki við umönnun og félagslega aðlögun ungra barna. Slíkur rekstur á ekki heima í höndum fyrirtækja í óskyldum rekstri vegna þess eins að yfirvöld hafa ekki uppfyllt skyldur sínar um að tryggja öllum börnum pláss á leikskólum. Fyrirtækjaleikskólar brjóta ennfremur gegn jafnræðisreglunni þar sem þeir veita ákveðnum hópum og ákveðnum starfsstéttum, forgang að leikskólaplássum. Þessi stefna er líkleg til að leiða til aukins ójafnaðar og býr til grunninn að tvíhliða kerfi. Ég skil hvatann sem býr að baki, að vilja mæta foreldrum sem bíða með börn á löngum biðlistum. Þetta er hins vegar ekki lausn, aðeins tilfærsla á vandanum og hál braut sem mun leiða til frekari vandamála síðar meir. Meirihlutinn mun án efa samþykkja þessa tillögu og bendir fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands á að ef þessi leið verður farin þarf að gæta verulega að ýmsum atriðum, m.a. að ekki sé munur á milli gjaldskráa fyrirhugaðra fyrirtækjaleikskóla og almennra leikskóla og að ekki sé um að ræða rekstur þar sem hægt er að leysa út hagnað eða færa rekstrarafgang til móðurfyrirtækis. Ekki er tekið fram í tillögunni ef fyrirtæki sýna áhuga hverjum verður falið það vald að mynda samning og á hvaða forsendum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að setja á fót stýrihóp um hagræðingu og innleiðingu breytinga í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og feli borgarstjóra að vinna erindisbréf sem lagt verður fram í borgarráði.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060027Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn fagnar tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um stofnun stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Miðflokkurinn telur einsýnt að til þess að hámarka árangur þessarar vinnu sé nauðsynlegt að leita til utanaðkomandi aðila sem eru með endurskipulagningu sveitarfélaga sem sérsvið. Þá teljum við mikilvægt að stýrihópurinn starfi utan núverandi embættismannakerfis Reykjavíkurborgar. Þá er að okkar mati eðlilegra að stefna skuli að ljúka innleiðingu breytinga á næstu 6-12 mánuðum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela íþrótta- og útilífsráði að vinna að því að lengja aftur opnunartíma sundlauga til kl. 22.
Samþykkt. MSS26060028
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Reykjavíkurborg býður nú þegar upp á lengsta opnunartíma sundlauga á landinu enda metnaðarmál borgarinnar að bjóða gestum góða þjónustu í þeim átta sundlaugum sem starfræktar eru í borginni. Í fyrra var mótuð sú stefna að lengja kvöldopnun sundlauga á sumrin til kl. 22 og var reynslan af því góð enda bæði góð heilsubót og nærandi fyrir sálina að skella sér í sund á fallegum sumarkvöldum í góðum félagsskap. Sumaropnun sundlauganna tók gildi í gær og stendur til 1. september. Tillaga nýs meirihluta er því að hluta til komin til framkvæmda með samþykkt samstarfsflokkanna í síðasta meirihluta. Samfylkingin styður tillöguna um að lengja vetraropnun sundlauganna enda í góðu samræmi við lýðheilsustefnu borgarinnar að börn og ungmenni eigi þann góða samastað til hollrar hreyfingar og samveru sem hinar frábæru sundlaugar borgarinnar eru.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að unnið verði að því að lengja aftur opnunartíma sundlauga til kl. 22. Sundlaugarmenning er sérstaða okkar Íslendinga og mikilvægt er að rækta hana. Lengri opnunartími er jafnframt hluti af forvörnum fyrir ungt fólk sem er hvað líklegast að nýti sér þessa lengingu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- og skipulagsráði að hefja endurskoðun á fyrirliggjandi deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut í samvinnu við hagaðila.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands leggja til að málinu verði vísað frá.
Frávísunartillagan er felld með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.Tillaga um endurskoðun á deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut er samþykkt með með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands. MSS26060029
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að við vinnu við skipulag Suðurlandsbrautar verði tekið mið af sjónarmiðum rekstraraðila, húseigenda, íbúa í nágrenninu og annarra sem verða fyrir áhrifum framkvæmdanna. Mikilvægt er að greina skýrt á milli athugasemda sem lúta að útfærslu samgöngumannvirkja annars vegar og þeirra sem snúa að framkvæmdatíma og fyrirkomulagi framkvæmda hins vegar. Samfylkingin telur rétt að fara yfir þær athugasemdir sem fram hafa komið og meta hvaða atriði er hægt að bæta án þess að gengið sé á markmið verkefnisins um bættar almenningssamgöngur. Þar getur verið um að ræða aðgengi, bílastæði, vörumóttöku eða aðra þætti sem hafa áhrif á daglega starfsemi fyrirtækja á svæðinu. Jafnframt þarf að gæta þess að heildarhagsmunir borgarbúa og markmið um bættar samgöngur vegi þungt við ákvarðanatöku. Áhyggjur af raski á framkvæmdatíma eru eðlilegar og mikilvægt að borgin leggi fram trúverðuga og raunhæfa áætlun um áfangaskiptingu, upplýsingagjöf og aðgerðir til að lágmarka áhrif á atvinnustarfsemi. Þá hvetja borgarfulltrúar Samfylkingarinnar til þess að unnið sé af metnaði að uppbyggingu Borgarlínu og annarra samgönguinnviða fyrir vaxandi borg. Verkefnið er ekki að hverfa frá markmiðum um öflugar almenningssamgöngur heldur að tryggja sem besta útfærslu þeirra.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skipulag Suðurlandsbrautar á uppruna sinn í aðalskipulagi Reykjavíkur frá 2010 og árið 2021 eru unnin frumdrög borgarlínu út frá gildandi aðalskipulagi. Boðaðar breytingar á Suðurlandsbraut vekja upp margar spurningar. Til dæmis hvort meirihlutinn ætli sér að taka upp aðalskipulagið til að ná fram markmiðum sínum í að vera þrándur í götu hágæða almenningssamgangna. Þegar hefur farið fram tímafrek og kostnaðarsöm greiningarvinna, forgangsröðun, forhönnun og deiliskipulagsgerð og nú liggur afrakstur þeirrar vinnu fyrir í ósamþykktu deiliskipulagi sem þegar hefur fengið auglýsingu og er tilbúið til afgreiðslu. Skynsamlegast væri að samþykkja tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar sem þegar hefur verið unnin, í óbreyttri mynd, en fara í samráð og samtal um útfærslu framkvæmdaáætlunar deiliskipulagsins.
Fylgigögn
-
Lagðar fram til undirritunar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. MSS26060030
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka svohljóðandi tillögu Samfylkingarinnar á dagskrá:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela fjármála- og áhættustýringarsviði að vinna kostnaðarmat vegna þeirra breytinga sem eru til meðferðar á vettvangi borgarstjórnar og varða breytingar á kjörgengisskilyrðum í fagráð Reykjavíkurborgar og stofnun nýrra ráða. Nauðsynlegt er fyrir borgarstjórn að gera sér grein fyrir raunverulegum kostnaði sem breytingarnar hafa í för með sér áður en málið er tekið til síðari umræðu í borgarstjórn.
Samþykkt. MSS26060037
Fundi slitið kl. 16:32
Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 02.06.2026 - Prentvæn útgáfa