Borgarstjórn - 7.2.2002

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2002, fimmtudaginn 7. febrúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Pétursson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Kristín Blöndal, Alfreð Þorsteinsson, Ólafur F. Magnússon, Guðrún Pétursdóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Inga Jóna Þórðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 22. janúar.

- Kl. 14.08 vék Hrannar Björn Arnarsson af fundi og Sigrún Elsa Smáradóttir tók þar sæti. - Kl. 15.00 tók Hrannar Björn Arnarsson sæti á fundinum og Sigrún Elsa Smáradóttir vék af fundi.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 29. janúar.

- Kl. 15.02 vék Guðrún Pétursdóttir af fundi og Eyþór Arnalds tók þar sæti. - Kl. 15.30 vék Alfreð Þorsteinsson af fundi og Guðrún Jónsdóttir tók þar sæti. - Kl. 15.38 tók Árni Þór Sigurðsson sæti á fundinum og Kristín Blöndal vék af fundi. - Kl. 15.51 vék Árni Þór Sigurðsson af fundi og Kristín Blöndal tók þar sæti.

20. liður fundargerðar borgarráðs, kosning yfirkjörstjórnar, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

- Kl. 16.08 var gert hlé á fundi. - Kl. 16.36 var fundi fram haldið og vék þá Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af fundi og Kjartan Magnússon tók þar sæti.

3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 5. febrúar.

- Kl. 17.02 tók Anna Geirsdóttir sæti á fundinum og Guðrún Jónsdóttir vék af fundi.

4. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 16. janúar.

5. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 30. janúar.

6. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 21. janúar.

7. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 28. janúar.

8. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 16. janúar.

9. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 23. janúar.

10. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 14. janúar.

11. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 16. janúar. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að fresta 16. lið fundargerðar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, sbr. b-hluta fundargerðarinnar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur að öðru leyti með samhljóða atkvæðum.

12. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 23. janúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

13. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 30. janúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

14. Lögð fram fundargerð umhverfis- og heilbrigðisnefndar frá 24. janúar.

Fundi slitið kl. 20.38.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Helgi Hjörvar

Hrannar Björn Arnarsson Guðlaugur Þór Þórðarson