Borgarstjórn - 7.11.2002

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2002, fimmtudaginn 7. nóvember, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 17.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Anna Kristinsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Helgi Hjörvar, Ólafur F. Magnússon, Kjartan Magnússon, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Björn Bjarnason, Guðlaugur Þór Þórðarson og Alda Sigurðardóttir. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

Í upphafi fundar kvaddi Helgi Hjörvar sér hljóðs og gerði að umtalsefni málefni Landsvirkjunar og fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda.

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 22. október.

- Kl. 17.14 tók Gísli Marteinn Baldursson sæti á fundinum.

14. liður fundargerðarinnar, breyting á fyrirmynd að samþykkt fyrir nefndir og ráð, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum. 15. liður fundargerðarinnar, samþykkt fyrir stjórn Höfuðborgarstofu, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum. 16. liður fundargerðarinnar, breyting á samþykkt fyrir samgöngunefnd, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum. 17. liður fundargerðarinnar, breyting á samþykkt fyrir fræðsluráð, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 29. október. 13. liður fundargerðarinnar, lántaka Orkuveitu Reykjavíkur sf., samþykktur með 14 samhljóða atkvæðum.

- Kl. 19.05 var gert hlé á fundi. - Kl. 19.35 var fundi fram haldið og vék þá Alfreð Þorsteinsson af fundi og Kolbeinn Óttarsson Proppé tók þar sæti.

3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 2. nóvember.

4. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 5. nóvember.

- Kl. 19.48 vék Helgi Hjörvar af fundi og Sigrún Elsa Smáradóttir tók þar sæti.

5. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 16. október.

6. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 23. október.

7. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 30. október.

8. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 28. október.

9. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 4. nóvember. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

10. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 18. október.

11. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 21. október.

12. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 10. október.

13. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 24. október.

14. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 21. október.

15. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 16. október. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

16. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 23. október. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

17. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 30. október. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið kl. 20.32.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Árni Þór Sigurðsson

Anna Kristinsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson