Borgarstjórn - 6.6.2002

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2002, fimmtudaginn 6. júní, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 17.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Pétursson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Árni Þór Sigurðsson, Ólafur F. Magnússon, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Bryndís Þórðardóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Kristján Guðmundsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, og Eyþór Arnalds. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 21. maí.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 24. maí.

3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá kl. 18.45, 25. maí.

4. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá kl. 21.30, 25. maí.

5. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 28. maí.

6. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 4. júní.

- Kl. 17.57 vék Árni Þór Sigurðsson af fundi og Kristín Blöndal tók þar sæti. - Kl. 18.00 vék Steinunn Valdís Óskarsdóttir af fundi og Óskar Bergsson tók þar sæti. - Kl. 18.02 vék Alfreð Þorsteinsson af fundi og Guðrún Jónsdóttir tók þar sæti.

7. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 15. maí.

8. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 29. maí.

9. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 28. maí.

10. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 27. maí. Samþykkt með samhljóða atkvæðum.

11. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17. maí.

12. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 17. apríl.

13. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 15. maí.

14. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 15. maí.

15. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 22. maí.

16. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 13. maí.

17. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 27. maí.

18. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 15. maí. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhljóða atkvæðum.

19. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 22. maí. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhljóða atkvæðum.

20. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 29. maí. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhljóða atkvæðum.

21. Lögð fram fundargerð umhverfis- og heilbrigðisnefndar frá 30. maí.

Í lok fundar tóku til máls Jóna Gróa Sigurðardóttir, Inga Jóna Þórðardóttir og Sigrún Magnúsdóttir og þökkuðu borgarstjórn og starfsmönnum samstarfið. Þá mælti forseti borgarstjórnar nokkur orð varðandi það kjörtímabil sem senn er liðið og þakkaði borgarfulltrúum og starfsmönnum samstarfið.

Fundi slitið kl. 18.30.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Helgi Hjörvar

Guðlaugur Þór Þórðarson Hrannar Björn Arnarsson