Borgarstjórn - 6.3.2003

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2003, fimmtudaginn 6. mars, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Stefán Jón Hafstein, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Helgi Hjörvar, Anna Kristinsdóttir, Gísli Helgason, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Kristján Guðmundsson, Björn Bjarnason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Alfreð Þorsteinsson, Gísli Marteinn Baldursson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Fundarritun annaðist Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

Í upphafi fundar tilkynnti forseti að 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar og 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 4. mars væri frestað þar til kæmi að 10. lið útsendrar dagskrár.

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 25. febrúar.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 4. mars.

- Kl. 14.30 tók Kjartan Magnússon sæti á fundinum og Gísli Marteinn Baldursson vék af fundi. - Kl. 15.30 tók Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sæti á fundinum og Kristján Guðmundsson vék af fundi. - Kl. 16.55 vék Árni Þór Sigurðsson af fundi og Kolbeinn Óttarsson Proppé tók þar sæti. - Kl. 17.35 tók Árni Þór Sigurðsson sæti á fundinum og Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi.

24. liður fundargerðar borgarráðs, kosning varamanns í hafnarstjórn, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

- Kl. 17.50 var gert hlé á fundi. - Kl. 18.27 var fundi fram haldið.

3. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 19. febrúar.

4. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 3. mars.

- Kl. 18.45 vék Alfreð Þorsteinsson af fundi og Steinunn Birna Ragnarsdóttir tók þar sæti.

5. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 21. febrúar.

- Kl. 19.25 vék Hanna Birna Kristjánsdóttir af fundi og Gísli Marteinn Baldursson tók þar sæti.

6. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 27. febrúar.

7. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 17. febrúar.

- Kl. 19.47 vék Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af fundi og Hanna Birna Kristjánsdóttir tók þar sæti.

8. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 19. febrúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhljóða atkvæðum.

9. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 26. febrúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhljóða atkvæðum.

10. Lagt fram frumvarp að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar árin 2004-2006. Jafnframt lagðir fram 19. liður fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar og 22. liður fundargerðar borgarráðs frá 4. mars, frestað fyrr á fundinum. Samþykkt með samhljóða atkvæðum að vísa frumvarpi að þriggja ára áætlun til síðari umræðu.

Fundi slitið kl. 20.47.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð

Árni Þór Sigurðsson

Anna Kristinsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson