Borgarstjórn - 3.1.2002

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2002, fimmtudaginn 3. janúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar, auk borgarritara, sem sat fundinn í fjarveru borgarstjóra: Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Pétursson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Árni Þór Sigurðsson, Ólafur F. Magnússon, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Kjartan Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Inga Jóna Þórðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Fundarritun önnuðust Kristbjörg Stephensen og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 28. desember.

- Kl. 14.26 tók Kristín Blöndal sæti á fundinum og Guðrún Jónsdóttir vék af fundi. - Kl. 15.00 vék Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af fundi og Eyþór Arnalds tók þar sæti.

6. liður fundargerðarinnar, ráðning í starf sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs, samþykktur með 8 samhljóða atkvæðum.

2. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 10. desember.

3. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 21. desember.

4. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 19. desember.

- Kl. 15.50 vék Árni Þór Sigurðsson af fundi og Guðrún Jónsdóttir tók þar sæti.

5. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 19. desember.

6. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 17. desember. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

7. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 28. desember.

Fundi slitið kl. 15.52.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Helgi Hjörvar

Hrannar Björn Arnarsson Guðlaugur Þór Þórðarson