Borgarstjórn - 18.10.2001

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2001, fimmtudaginn 18. október, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún Magnúsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Anna Geirsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Kjartan Magnússon, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Inga Jóna Þórðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 9. október. - Kl. 14.04 vék Helgi Hjörvar af fundi og Árni Þór Sigurðsson tók þar sæti. - Kl. 14.35 vék Guðrún Jónsdóttir af fundi og Kristín Blöndal tók þar sæti.

2. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 26. september.

3. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 3. október.

4. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 8. október.

5. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 15. október. Samþykkt með samhljóða atkvæðum.

6. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 3. október.

7. Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 3. október.

8. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 24. september.

9. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 8. október.

- Kl. 15.16 vék Árni Þór Sigurðsson af fundi og Guðrún Jónsdóttir tók þar sæti.

10. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 3. október. 20. liður B-hluta fundargerðarinnar samþykktur með 8 atkvæðum gegn 7. B-hluti fundargerðarinnar að öðru leyti samþykktur með samhlj. atkv.

11. Lögð fram fundargerð umhverfis- og heilbrigðisnefndar frá 11. október.

- Kl. 15.36 tók Árni Þór Sigurðsson sæti á fundinum og Guðrún Jónsdóttir vék af fundi.

Fundi slitið kl. 15.38.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir

Hrannar Björn Arnarsson Ólafur F. Magnússon